Fréttablaðið - 23.02.2007, Blaðsíða 26
Öfugt við óstaðfestar fregnir í
Séðu og heyrðu fara leikarar
í Þjóðleikhúsinu ekki út að
borða á Hótel Holt í hvert
mál. Þeir borða þess í stað í
Málarasalnum.
Þegar litið var inn á æfingu á
verkinu Legi í Þjóðleikhúsinu var
verið að taka upp fagnaðarlæti og
hvatningaróp sem nota á í sýning-
unni. Ekki svo að skilja að búist sé
við svo slæmum móttökum að
spila þurfi klapp af bandi til að
forðast vandræðalega þögn í upp-
klappi. Þarna er á ferð bútur sem
notaður verður í miðju leikriti
þegar aðalpersónurnar, mæðgurn-
ar Ingunn og Vala, berjast um hylli
hins íslenska bachelors í beinni.
„Þetta er nett klikkað verk enda er
það Hugleikur Dagsson sem er
höfundurinn,“ segir Valur Freyr
Einarsson, einn af leikurum sýn-
ingarinnar. „Þetta er söngleikur
og maður veit að þegar Hugleikur
og tríóið Flís koma saman getur
útkoman ekki verið neitt annað en
einstök.“
Þegar fagnaðarlátunum var
lokið var farið í mat þar sem kokk-
arnir hafa eldað kjötbollur ofan í
leikaraliðið. „Þeir voru hérna tveir
handónýtir togarasjómenn sem
elduðu ofan í okkur en þegar
núverandi snillingar tóku við batn-
aði maturinn til muna,“ segir
Jóhannes Haukur Jóhannesson
leikari. Ekki hafðist upp á togara-
sjómönnunum til að leyfa þeim að
svara fyrir sig en kjötbollurnar
voru ljúffengar.
Matsalurinn kallast Málara-
salurinn vegna þess að áður fyrr
voru þar máluð leiktjöld og þau
látin síga niður á stóra sviðið gegn-
um gat í gólfinu. Gatið er nú horf-
ið og matarborð komin í staðinn.
„Matarlist og leiklist eiga vel
saman og saddur leikari er sæll
leikari,“ segir Friðrik Friðriksson,
en hann leikur meðal annars hinn
18 ára Kalla sem er innsiglaður í
plast vegna þess að hann er með
fuglaflensu. „Ég hef verið svolítið
fastur í þessum ungu hlutverkum
en nú er ég búinn að setja met.
Auk Kalla leik ég líka fóstrið í sýn-
ingunni. Ég kemst eiginlega ekki
lengra aftur í árum talið nema ég
leiki sáðfrumu.“
Vissulega er saddur leikari sæll
leikari, en er hann góður leikari?
Gúffa þeir sig út af kvöldmat og
velta svo inn á svið og leika Shake-
speare? „Það fer náttúrlega allt
eftir sýningu,“ segir Halldóra
Geirharðsdóttir leikkona. „Maður
hámar ekki í sig fyrir hádramat-
íska sýningu þar sem maður legg-
ur allt í tilfinningarnar. Það er
hins vegar allt í lagi að fá sér að
borða ef hlutverkið kallar ekki á
mikið drama eða aksjón.“
Þegar matnum var lokið héldu
leikarar aftur á svið, en síðustu
augnablikin áður en Stefán Jóns-
son leikstjóri hóf æfinguna aftur
voru heimsmálin rædd. Það væri
ekki í frásögur færandi ef sam-
ræðurnar hefðu ekki farið fram
undir risastórum móðurkviði sem
haldið er uppi af þykkum stálarmi.
Kjötbollur í Legi Hugleiks
SÓMABAKKAR
Nánari uppl‡singar á somi.is
*Gildir a›eins ef panta› er fyrir meira en 3.000 kr.
PANTA‹U Í SÍMA 565 6000 / FRÍ HEIMSENDING*
Við Fjöruborðið
Eyrarbraut 3 • 825 Stokkseyri • S. 483 1550
www.fjorubordid.is • ifno@fjorubordid.is
Sérfræðingar
í saltfiski
Þjónustum verslanir, veitingahús o.fl.
Fyrir verslanir:
Til suðu:
saltfiskbitar blandaðir
gellur
gollaraþunnildi
Til steikingar:
saltfiskbitar blandaðir
saltfiskkurl
saltfiskhnakkar tvær stærðir (lomos)
gellur
Fyrir veitingahús – hótel – mötuneyti:
saltfiskhnakkar tvær stærðir (lomos)
saltfiskbitar blandaðir til suðu og steikingar
saltfiskkurl
Fyrir utan saltfiskinn þjónustum við sitthvað fleira, svo sem:
ýsuhnakka
rækjur
þorskhnakka
steinbítskinnar og bita
Sími: 466 1016
ektafiskur@emax.is
F
í
t
o
n
/
S
Í
A