Fréttablaðið - 23.02.2007, Blaðsíða 46
23. FEBRÚAR 2007 FÖSTUDAGUR8 fréttablaðið sumarferðir
Flugferðir geta verið mjög
mismunandi og fer það eftir
ýmsu hvort þú njótir flugsins
eða ekki. Til dæmis getur það
verið alveg óþolandi að lenda
í miðjusæti á milli fólks sem
talar og talar um eitthvað sem
þú hefur engan áhuga á. Eins
getur verið þreytandi að sitja
við hliðina á barni sem líður
illa í vélinni og jafnvel grætur
megnið af ferðalaginu. Hér
koma nokkur ráð um hvernig
þú getur tryggt þér sem þægi-
legasta flugferð:
1. Skráðu þig inn snemma.
2. Ef þú ert einn á ferð og hitt-
ir einhvern sem þú þekkir og
er líka að ferðast einn skaltu
stinga upp á því að þið sitjið
saman.
3. Vertu kurteis við þann sem
skráir þig inn og spurðu hvort
vélin sé full. Ef fáir farþegar
eru í vélinni geturðu valið þér
sæti aftarlega og jafnvel feng-
ið heila sætaröð út af fyrir
þig. Spurðu líka hvort það séu
einhver laus sæti með auka-
plássi fyrir fætur. Einnig get-
urðu athugað á kurteislegan
hátt hvort það sé einhver
möguleiki að vera færður upp
um klassa. Það er aldrei að
vita.
4. Ef þú ert ekki ánægður
með sætið þitt getur verið
gott að spjalla við flugfreyj-
urnar um það. Hugsanlega
eru laus sæti á betri stöðum í
vélinni.
5. Svangur í fluginu? Ef þú
spyrð fallega hvort það sé ein-
hver afgangur af matnum eru
allar líkur á að þú fáir meira.
Það er alltaf afgangur.
6. Notaðu allt tiltækt til að
gera sætið þitt notalegt, eins
og púða, teppi, peysuna þína
eða annað sem þú finnur.
Sökktu þér svo ofan í bókina
þína og hlustaðu á iPod-inn.
Það gerir fólki erfiðara fyrir
með að trufla þig.
7. Augnhlífar og eyrnatappar
eru frábær tæki til að útiloka
allt í kringum þig.
8. Ferðastu í þægilegum
fötum en þó ekki stuttbuxum
og stuttermabol því það getur
verið kalt í vélinni á leiðinni.
Flugráð
Kínaklúbbur Unnar heldur í vor-
ferð til Kína hinn 19. apríl. Ferðin
tekur 22 daga. Farið verður til
höfuðborgarinnar Peking og einnig
skoðaðar borgirnar Xian, Guilin,
Sjanghæ, Suzhou, Yangshuo og
gengið á Kínamúrinn.
Unnur Guðjónsdóttir skipu-
leggur og leiðir ferðina að venju
en hún er vel kunnug í Kína enda
hefur hún farið þangað í á þriðja
tug skipta.
Nærri má geta að mikið ævin-
týri bíði þeirra sem leggja leið sína
til Kína með Unni en hún leggur
mikið upp úr því að sýna fólki hið
raunverulega Kína, ekki það Kína
sem flestir ferðamenn fá að sjá.
Nánari upplýsingar má nálgast
á www.simnet.is/kinaklubbur.
Til Peking með
Kínaklúbbi Unnar
Kínaklúbbur Unnar heldur í vorferð til Kína hinn 19. apríl.