Fréttablaðið - 23.02.2007, Blaðsíða 10
„Stefna skólans er að
halda skólagjöldum í lágmarki en
það eru nokkur atriði sem valda
því að við hækkum þau í haust.
Hluti skýringarinnar er verðlags-
þróun,“ segir Svafa Grönfeldt,
rektor Háskólans í Reykjavík, innt
eftir því af hverju skólagjöld
hækka umfram launa- og neyslu-
vísitölu í haust. Svafa segir aðal-
ástæðuna vera stóraukið framboð
valnámskeiða, aukinn húsnæðis-
kostnað og að 50 milljóna króna
fasteignagjöld falli nú á skólann
árlega í fyrsta skipti vegna breyt-
inga á innheimtu slíkra gjalda.
Skólagjöld í grunnnámi hækka
á næstu haustönn úr 110 þúsund
krónum í 128 þúsund krónur. Svafa
segir gjöldin hækka um fimm pró-
sent umfram verðlagsþróun en
bendir á að skólagjöldin séu í raun
mjög lág samanborið við aðra
íslenska skóla. „Ég vil líka skoða
skólagjöldin hjá okkur í ljósi þess
hvað nemendur fá í staðinn fyrir
þann kostnað sem þeir leggja í.“
Svafa nefnir sem dæmi að nýút-
skrifuðum stúdentum frá HR
bjóðist afar góð laun að námi
loknu. „Allt námið borgar sig upp
eftir nokkurra mánaða starf úti í
atvinnulífinu.“
Samkvæmt ósk formanna nem-
endafélaganna í skólanum hefur
nú þegar verið ákveðið að upplýs-
ingagjöf til nýnema um skólagjöld
og mögulega þróun þeirra á náms-
tímanum verði komið til skila
strax við upphaf náms.
Gjöldin lág miðað við ágóða
Magntollar
upp á jafnvel nokkur hundruð
krónur kílóið falla niður á 800 tonn-
um af innfluttu kjöti þegar land-
búnaðarráðuneytið auglýsir toll-
kvótana í byrjun mars. Guðmundur
B. Helgason ráðuneytisstjóri telur
að þessi niðurfelling eigi að skila
sér í lægra verði til neytenda.
Landbúnaðarráðherra hefur
mælt fyrir frumvarpi sem veitir
honum ótvíræðar heimildir til að
úthluta tollkvótunum, sem sam-
komulagið við ESB kveður á um,
og er búist við að frumvarpið verði
samþykkt í lok febrúar. Guðmund-
ur segir að frumvarpið tryggi
hnökralausa framkvæmd í ráðu-
neytinu frá 1. mars.
Þegar frumvarpið hefur verið
samþykkt verða tollkvótarnir aug-
lýstir og þeim úthlutað. Þetta ferli
segir Guðmundur að taki nokkra
daga, ekki vikur. Hann telur ekki
ástæðu til að ætla að mikil eftir-
spurn geti saxað á þann ávinning
sem niðurfelling magntolla geti
skilað en vill ekki nefna neina
ákveðna hlutfallslækkun.
„Framkvæmdin verður að leiða
í ljós með hvaða hætti innflutn-
ingsaðilar fara með þetta,“ segir
hann og telur samninginn við ESB
liggja ljósan fyrir. Hann hafi verið
kynntur ríkisstjórninni og verði
framkvæmdur af íslenskum stjórn-
völdum samkvæmt efni sínu. Að
öðru leyti þurfi ekki samþykki rík-
isstjórnarinnar.
Magntollarnir lækki verðið
Lögregla hafði
afskipti af tveimur bensínþjófum
í fyrradag. Rúmlega þrítugur
maður tók eldsneyti á bensínstöð í
Vogahverfi og ók á brott án þess
að greiða fyrir. Lögregla fór á
heimili mannsins, sem bar við
minnisleysi. Honum var gert að
fara aftur á bensínstöðina og
greiða 2.000 króna skuld sína.
Hálfþrítugur maður lék sama
leik á Vesturlandsvegi síðar um
daginn. Lögreglumaður bar
kennsl á hann og verður hann
látinn borga 1.000 krónur fyrir
bensínið. Þrír aðrir bensínþjófn-
aðir eru til rannsóknar.
Bensínþjófar á
ferð í borginni
Samkvæmt nýrri könnun
sem Capacent Gallup gerði fyrir
Náttúruverndarsamtök Íslands
vilja tæp 73 prósent svarenda að
stjórnmálaflokkarnir leggi meiri
áherslu á náttúruvernd og
umhverfismál.
En um 23 prósent segja að
flokkarnir leggi nú þegar
hæfilega áherslu á þennan
málaflokk. Rúm fimm prósent
sögðu að nú þegar væri lögð of
mikil áhersla á þennan málaflokk.
Um 800 manns svöruðu könnun-
inni á aldrinum 16-75 ára.
73 prósent vilja
umhverfismál-
in á oddinn
Þrír létust og
nítján særðust í óeirðum sem
brutust út í fangelsi í Venesúela
á miðvikudag þegar tvær
andstæðar klíkur fanga vopnaðir
handsprengjum börðust um
yfirráð í fangelsinu.
Þjóðvarðliðar náðu tökum á
ástandinu eftir að fimm hand-
sprengjum hafði verið kastað
samkvæmt tilkynningu frá
dómsmálaráðuneytinu.
Ofbeldi er algengt í yfirfull-
um fangelsum í Venesúela þar
sem um 20.000 fangar eru í 30
byggingum sem eiga að geta
hýst 15.000.
Börðust með
handsprengjum
Spennandi og viðburðarík
Safnanótt
í boði SPRON
Dagskrána í heild
og lista yfir söfn er að finna á vetrarhatid.is
SPRON Skólavörðustíg er opinn á
Safnanótt – skúlptúrsýning og æðislegur
flamenco-dans.
Safnastrætó ekur gestum frítt
á milli safnanna á 20 mínútna
fresti. Fyrsti vagn fer frá Þjóðminja-
safni kl. 19:00.
Safnanótt, einn af hápunktum Vetrarhátíðar í Reykjavík,
er í dag. Tuttugu og fjögur söfn í Reykjavík verða með fjölbreytta
dagskrá frá kl. 19 til miðnættis og aðgangur er ókeypis.
Taktu þátt í safn
anæturleik og þ
ú getur
unnið ferð fyrir
tvo til Parísar ása
mt aðgöngu-
miðum að hinu
glæsilega listasa
fni Louvre og
100.000 kr. í fer
ðagjaldeyri frá S
PRON.
Þú gætir séð Mó
nu Lísu!
Jón Loftsson, skóg-
ræktarstjóri ríkisins, segir að
framkvæmdin sé „alveg klárlega
lögbrot“. Skipti þá engu hvort
fyrrverandi framkvæmdastjóri
Skógræktarfélags Reykjavíkur
hafi gefið óformlegt samþykki
fyrir framkvæmdunum eða ekki.
Kæran komi ekki Skógrækt
Reykjavíkur við, nema að litlu
leyti. „Málið er að ef þú ætlar að
rjóðurfella skóg þá þarftu, sam-
kvæmt lögum, að fá umsögn Skóg-
ræktar ríkisins,“ segir Jón.
Eins sé með tilmæli Vilhjálms
Þ. Vilhjálmssonar borgarstjóra
um að kæra ekki fyrr en fullreynt
sé með bætur. „Menn geta náð
saman um einhverjar bætur og að
fresta kæru, en samt sem áður
hafa skógræktarlög verið brotin
og þú ferð ekki í svona aðgerð án
samþykkis Skógræktar ríkisins,“
segir Jón. Raskið hafi verið „svo
yfirþyrmandi að við ákváðum að
segja hingað og ekki lengra“.
Í kæru Skógræktarinnar kemur
fram að talið sé að allt að 700 tré
hafi verið felld, til dæmis um 300
þriggja til fjögurra metra háar
stafafurur.
Skógrækt ríkisins telur fram-
kvæmd Kópavogsbæjar og Klæðn-
ingar ehf. brjóta í bága við 6. og 7.
grein skógræktarlaga. Þar stend-
ur að „ekkert svæði [megi] rjóður-
fella nema með samþykki skóg-
ræktarstjóra“.
Einnig stendur í lögunum að
„bannað [sé] að stinga upp og
flytja á brott tré [...] án leyfis
skógræktarstjóra eða skógar-
varða“.
Segir í kærunni að framkvæmd-
araðilar í Heiðmörk hafi ekki leit-
að samþykkis lögbundinna aðila
til að fá að stinga upp og fjarlægja
trén. Skógræktarstjóri og skógar-
verðir hafi ekki veitt leyfi fyrir
framkvæmdunum, hvorki nýverið
né á skipulagsstigi framkvæmd-
arinnar.
Framkvæmd
fer fyrir dóm
Skógrækt ríkisins hefur kært umdeilda framkvæmd
Kópavogsbæjar í Heiðmörk fyrir brot á skógræktar-
lögum. Telur allt að sjö hundruð tré hafa verið felld.