Fréttablaðið - 23.02.2007, Blaðsíða 44
TIPLAÐ Í SANDINUM Útbúnaðurinn
fyrir strandferðina er allt annar en sá sem þarf í
hið hversdagslega líf á Fróni. Því standa margir
frammi fyrir því stuttu fyrir upphaf ferðar
að eiga ekkert til fararinnar. Bikiníið kannski
orðið hálf lúið, strandskórnir horfnir veg allrar
veraldar og sólgleraugun brotin.
Þó að gott sé að vera tímanlega í skipu-
lagninu er ekki gott að fara of snemma af stað.
Úrval bikinía í verslunum landsins í dag er lítið
enda koma nýjustu vor- og sumarvörurnar ekki í
búðir fyrr en eftir nokkrar vikur. Þó er alltaf hægt
að finna eitthvað ef vel er leitað. - sgi
23. FEBRÚAR 2007 FÖSTUDAGUR6 fréttablaðið sumarferðir
Til að blindast ekki
af sólinni þarf góð
sólgleraugu. Þessi
fást í Puma-búðinni
á Laugavegi.
11.990 kr.
Ferðaskrifstofan Terra Nova
býður annað árið í röð upp á ferðir
til Golden Sands í Búlgaríu. Ferða-
langar sem fóru þangað á vegum
þeirra í fyrra gerðu góðan róm að
aðbúnaði á staðnum og því hefur
Terra Nova aukið úrval gististaða
þar. Hægt er að velja um gistingu
á íbúðahótelum eða í hótelher-
bergjum þar sem val stendur um
morgunmat, hálft fæði eða allt
innifalið.
Að sögn starfsmanna Terra
Nova hafa Íslendingar uppgötvað
ágæti þess að hafa fæði innifalið í
ferðinni og æ fleiri velja nú hótel
þar sem allt er innifalið. Búlgaría
á sér langa og merkilega sögu en
Golden Sands við Svartahafíð er
góð baðströnd þar sem má finna
bæði þægindi og afþreyingu.
Terra Nova býður einnig upp á
ferðir til Bibione á Ítalíu. Þar má
gista í nýja íbúðahótelinu Planet-
arium Village. Frá Bibione er stutt
til Feneyja, Verona og fleiri fal-
legra staða á Ítalíu. Þá má í
nágrenni Bibione finna spennandi
skemmtigarða eins og Gulliver-
landia.
Salou á Costa Dorada-strönd-
inni skammt sunnan Barcelona er
sívinsæll áfangastaður Terra
Nova. Þar býður Terra Nova úrval
gististaða og stórar íbúðir fyrir
fjölskyldurnar. Ströndin er breið
og aðgrunn, veitingastaðir, versl-
anir og skemmtistaðir á hverju
strái og stutt til Barcelona. Ofan
við bæinn er Port Aventura-
skemmtigarðurinn, sá stærsti á
Spáni, en hann er í eigu Universal-
kvikmyndaveranna.
Að auki býður Terra Nova ferð-
ir til Portoroz í Slóveníu, vikuferð-
ir til Barcelona og flug tvisvar í
viku til Parísar, München og
Düsseldorf.
Skemmtigarðar fyrir fjölskylduna
Frá Bibione er stutt að fara til Feneyja, Verona og fleiri fallegra staða á Ítalíu. Golden Sands-ströndin á Búlgaríu.
Sportleg á ströndinni. Bikiní svipuð
þessum verða í vorlínunni hjá Puma
á næstunni. Pum- búðin 6.990 kr.
Túrkisblátt bikiní sem bundið er
saman. Þetta sett er nýlega komið
í sölu hjá Monsoon. Toppur: 1.599
kr. Buxur: 1.599 kr.
Gott er að geta
farið í eitthvað
skjólmeira en
bikiní þegar tölt
er um strendur og
strandbari. Þessi
kjóll er kannski
ekki sá skjólmesti
en er sætur, léttur
og mjúkur. Fæst
í Knickerbox á
útsölu, 2.339
krónur.
Sandurinn getur verið
heitur á ströndinni.
Þá koma þessar töfflur
að góðum notum. Mons-
oon, 1.099 kr.
Leyfishafi
Ferðamálastofu