Fréttablaðið - 23.02.2007, Blaðsíða 34
BLS. 4 | sirkus | 23. FEBRÚAR 2007
J ú, það er rétt. Ég get staðfest það að ég keypti tvö ljón á ferð minni
um Búlgaríu um daginn,“ segir
kvikmyndaframleiðandinn Ingvar
Þórðarson. Hann festi kaup á
tveimur 18 mánaða ljónum á meðan
hann dvaldi ásamt meðframleiðanda
sínum, Júlíusi Kemp, í Búlgaríu við að
leggja lokahönd á vinnslu myndar-
innar Astropiu. Myndin skartar
meðal annars Kastljóssdrottningunni
Ragnhildi
Steinunni
Jóns-
dóttur í einu af aðalhlutverkunum,
en hún verður frumsýnd hér á Íslandi
í sumar. Heimildir Sirkus herma að
Ingvar hafi fyrst haft hug á því að
kaupa tígrisdýr en ekki fengið og því
keypt ljónin í Dýragarðinum í Sofíu,
höfuðborg Búlgaríu.
Aðspurður segir Ingvar ekkert
óeðlilegt við það að hann hafi keypt
ljón í Búlgaríu. „Það eru dýragarðar
þarna og ekki alltaf pláss fyrir öll
dýrin,“ segir Ingvar. Ljónin eru enn í
dýragarðinum í Búlgaríu og sér
Ingvar um að borga fæðið fyrir þau.
Ingvar vildi hvorki gefa kaupverðið
á ljónunum né hvaða áætlanir þeir
félagar hefðu uppi um dýrin. „Ég
get ekkert sagt. Þessi mál eru á
viðkvæmu stigi og ekki
tímabært að tjá sig um þau.
Það gæti spillt fyrir öllu,“ segir
Ingvar.
Eitt er þó ljóst og það er að
þau eru ekki á leiðinni í
Fjölskyldu- og húsdýragarð-
inn. Forstöðumaðurinn Tómas
Guðjónsson segir í samtali við Sirkus
að það hafi ekki komið til tals að taka
ljón inn í garðinn enda samræmist
það varla nafninu. „Það er ekki á
stefnuskránni að taka inn suðræn dýr
heldur frekar kuldaaðlöguð dýr frá
Skandinavíu,“ segir Tómas en bendir
þó að tvö ljón hafi verið á gamla
Sædýrasafninu sem var lokað fyrir
fjölmörgum árum.
Tómas sagðist ekki
halda að þessi
ljónakaup væru
gerð með það
fyrir augum að
græða á þeim. „Ég
myndi frekar líta til
hlutabréfa í þeim
efnum. Kaupin
gætu hins vegar
verið hluti af
verndarstefnu
hjá honum,“
segir Tómas.
Björn
Steinbjörns-
son hjá
Landbúnaðar-
stofnun segist
ekki fá
umsóknir um innflutning á ljónum
til landsins á hverjum degi og í raun
hafi hann aldrei fengið slíka umsókn.
„Þetta er flókið ferli en alls ekki
óyfirstíganlegt. Fyrst þarf að sækja
um leyfi til innflutnings hjá landbún-
aðarráðuneytinu. Síðan kemur
umsögn frá Landbúnaðarstofnun þar
sem athugað er með aðstæður og
hvort einhver fagkunnátta sé fyrir
hendi á landinu til að annast dýrin.
Þetta er ekki einfalt mál en ef það er
hægt að finna aðstöðu og einhvern
sem getur hugsað um dýrin þá sé ég
ekki neitt því til fyrirstöðu að ljón séu
flutt hingað til lands. En ég ítreka að
ég hef aldrei fengið slíka fyrirspurn,“
segir Björn.
oskar@frettabladid.is
STÓR OG GRIMM Ljónin hans Ingvars
munu stækka og verða eins og þetta
ljón.
EKKI Á LEIÐ Í HÚSDÝRA-
GARÐINN Tómas
Guðjónsson, forstöðu-
maður Fjölskyldu- og
húsdýragarðsins í
Laugardal, segir það
ekki á stefnuskránni að
bæta ljónum við í
fjölbreytta dýraflóru
garðsins.
Fjör á Apótekinu
Þótt hátíðarkvöldverður Food & Fun-
hátíðarinnar fari ekki fram fyrr en á
morgun telja margir að besta veisla
hátíðarinnar hafi farið fram á Apótekinu í
gærkvöld. Þar safnaðist saman flest af
fínasta fólki bæjarins og skemmti sér
fram á rauða nótt. Mikil og góð stemning
var í veislunni sem olli ekki vonbrigðum
frekar en fyrri daginn. Í fyrra lék Buff fyrir
dansi en nú stóð sjálfur eigandinn Guffi
vaktina sem plötusnúður og þótti standa
sig afar vel.
Forsetadóttir að byrja að
byggja
Forsetadóttirin
Dalla Ólafsdótt-
ir og eigin-maður
hennar Matthías
Sigurðsson
hafa sótt um
leyfi hjá
byggingafull-
trúa Kópavogs-
bæjar til að byggja einbýlishús í
Fróðaþingi 16 en þau fengu úthlutað
lóðinni í útdrætti um mitt ár 2005. Fyrir
eiga þau hjónin tæplega 90 fermetra
íbúð á Bergþórugötunni. Ekki er líklegt
að langan tíma taki að fá leyfið og má
búast við því að framkvæmdir hefjist
þegar nær dregur vori.
Jógvan með flest atkvæði
Færeyski hjartaknúsarinn
Jógvan fékk flest
atkvæði í síðasta þætti
X-faktors jafnvel þótt
einn dómaranna, Páll
Óskar Hjálmtýs-
son, hefði
gagnrýnt
hann
harkalega
fyrir lagaval. Jógvan þykir nú vera einna
líklegastur til að komast í
úrslit þáttarins enda bæði
myndarlegur og með
silkimjúka rödd. Það voru
því ólík örlög keppenda
Einars Bárðarsonar
því á sama tíma
var Siggi sendur
heim.
KVIKMYNDAFRAMLEIÐANDINN INGVAR ÞÓRÐARSON FÓR Í DÝRAGARÐINN Í SOFÍU
KEYPTI SÉR TVÖ
LJÓN Í BÚLGARÍU
VANTAR LJÓNATEMJARA Ef Ingvar Þórðarson ætlar sér
að flytja ljónin tvö til landsins þá þarf að verða sér úti um
almennilega aðstöðu og eitt stykki ljónatemjara. Hér sést
hann lengst til hægri ásamt Júlíusi Kemp og Valgerði
Sverrisdóttur utanríkisráðherra í Cannes á síðasta ári.
Útsala
20-50% afsláttur
Langholtsvegi 111, 104 Rvk. Sími 568 7900
Opið virka daga 11-18, laugardaga 11-16
30% afsláttur af rúmum
Baðsloppar
20% afsláttur
Handklæði
30% afsláttur
Rúmteppasett
20-40% afsláttur
Sængurfatnaður
20% afsláttur
rafstillanleg og hefðbundin. Nýtt kortatímabil
Heyrst hefur