Fréttablaðið - 23.02.2007, Blaðsíða 29
Sævar Sigurðsson, leikstjóri
og klippari hjá Þeim tveim-
ur kvikmyndagerð, freistaði
gæfunnar í happaþrennu-
braski. Hann gæti hugsað sér
að reyna aftur.
Hver kannast ekki við spennuna
sem því fylgir að skafa gráu film-
una af happaþrennu og sjá hvort
ekki séu þrjár myndir eins. Allir
sem gera það kannast líka við
pirringinn sem myndast ef vinn-
ingurinn er enginn, sem er mun
algengara en hitt. Sævar Sigurðs-
son kannast vel við þessar tilfinn-
ingar en þegar hann var 15 ára
ákvað hann að kaupa happaþrenn-
ur fyrir 5.000 krónur. „Þetta voru
kannski ekki mín verstu kaup, en
þetta voru þau heimskulegustu,“
segir Sævar. „Þetta var nú svo
sem ekkert stórtap því ég vann
2.500 krónur til baka á happa-
þrennunum.“
Réttara er að segja „hefði
unnið“ því Sævar leysti aldrei út
vinningana. „Ég gleymdi þessu
alltaf og á endanum runnu happa-
þrennurnar út án þess að ég næði
í vinninginn,“ segir Sævar og
hlær og er greinilegt að hann
tekur tapið ekki mjög nærri sér.
„Nei, veistu? Nú þegar ég rifja
þetta upp kitlar svolítið að reyna
bara aftur.“
Bestu kaup Sævars eru skó-
fatnaður. „Ég var á ferðalagi í
Bandaríkjunum og var staddur í
Los Angeles, nánar tiltekið í
Hollywood á Sunset Boulevard.
Þar fór ég inn í kúrekabúð og
ákvað að fá mér kúrekastígvél,“
segir Sævar. „Ég vissi að þetta
var heimskulegt. Búðin var frek-
ar dýr og ég bjóst ekki við að ég
myndi nota stígvélin mikið en ég
ákvað bara að eiga þarna heimsku-
leg viðskipti og hafa gaman af
því. Svo kemur á daginn að á þeim
tveimur árum sem ég hef átt stíg-
vélin hef ég notað þau heilmikið
og er meira að segja að hugsa um
að fá mér annað par.“
Kannski Sævar geti keypt sér
kúrekastígvél fyrir vinninginn úr
næsta happaþrennubraski, það er
að segja ef hann gleymir ekki að
leysa út vinninginn.
Happaþrennur fyrir
fimm þúsund krónur
Rammamiðstöðin í
Síðumúla 34 selur
íslenska grafík og
innrömmuð plaköt
með allt að 50 pró-
senta afslætti.
Prúttsala er á
íslenskri myndlist í
Rammamiðstöðinni í
Síðumúla og inn-
römmuð plaköt og
íslensk grafík fæst
þar á hálfvirði. Þá er
freistandi tilboð á
römmum á sama stað,
bæði úr áli og tré, auk
smelluramma. Einnig
er boðið þar upp á inn-
römmun á 25 prósenta
afslætti svo nú er
tækifæri til að gera
myndum og útsaumi
hátt undir höfði og
setja í smekklega
ramma.
Myndir og rammar
550 5000
AUGLÝSINGASÍMI
Stærðfræðikennari
óskast til kennslu í
heimahúsi
Óskað er eftir metnaðarfullum og þolinmóðum
stærðfræðikennara til að aðstoða 14 ára dreng
í stærðfræði.
Þekking á vinnubrögðum í kennslu lesblindra barna
áskilin svo og reynsla og góður árangur á því sviði,
góð laun í boði.
Upplýsingar veitir Ásta í síma: 847 8058
Mörkinni 6, Símí 588-5518
Opið virka daga frá kl. 10-18 og laugardaga frá kl. 10-16 • Sunnud. 12-16