Fréttablaðið - 23.02.2007, Blaðsíða 52
BLS. 10 | sirkus | 23. FEBRÚAR 2007
hvernig hjónabandið á að vera. Við
hættum að sinna þessari gagnkvæmu
ást sem þarf að ríkja,“ segir Eiríkur og
Helga bætir við að það hafi margt
hjálpast að.
„Ég fór í framhaldsnám, Eiríkur
hafði mikið að gera í tónlistinni og
börnin urðu stærri og allt í einu
höfðum við fjarlægst,“ segir Helga.
Það hjálpaði heldur ekki að á
svipuðum tíma varð Eiríkur ástfang-
inn af annarri konu.
„Ég get ekki skýrt út hvað gerðist
en ég varð bullandi ástfanginn af ann-
arri konu. Ég flutti í kjallarakytru rétt
hjá Helgu en þetta var mikil sorg. Ég
vissi að þetta yrði erfitt en það
reyndist erfiðara en ég hafði óttast.
Það að hafa svikið fjölskylduna á
þennan hátt sat í mér. Fjórum
mánuðum seinna greindist ég með
krabbamein þannig að það má segja
að ég hafi tekið þetta allt út á einu
ári,“ segir Eiríkur.
Leiðirnar liggja saman á ný
Það átti þó ekki fyrir þeim að liggja að
eyða lífinu lengi fjarri hvort öðru.
Helga kynnist manni og var í
fjarsambandi við hann í nokkurn
tíma. „Ég var eitthvað að skoða hvort
grasið væri grænna hinu megin við
lækinn,“ segir Helga og hefur
augljóslega komist að sömu niður-
stöðu og Eiríkur, að svo sé ekki.
Í byrjun ársins 2003 voru þau farin
að draga sig saman aftur en tóku því
rólega. „Þetta fór mjúkt í gang. Við
vorum að stelast heim til hennar eða
mín og sofa hjá. Þetta var laumuspil,
mjög spennandi og skemmtilegt,“
segir Eiríkur og játar því að þau hafi
hagað sér eins og unglingar sem voru
að byrja í sambandi.
„Nú erum við búin að vera í fjarbúð
í um fjögur ár og ætlum að flytja
saman. Við vitum hvaða vitleysu við
gerðum þannig að það ætti ekki að
gerast aftur. Við erum bæði mjög
meðvituð um að það þarf að vanda til
verka. Ég er ekki að segja að það þurfi
að vera urrandi hamingja á hverjum
degi en það þarf helst að vera gleði,
virðing og hamingja í sambandinu
þannig að ef eitthvað bjátar á þá sé
hægt að gera upp hlutina og taka á
þeim frekar fyrr en síðar. Við áttum
það til að þegja af okkur vandamálin í
einhverja daga. Síðan voru báðir
aðilar orðnir leiðir og þá komu
sættirnar í hjónarúminu.
Stundum er kannski betra að rífast
hressilega en við munum þó aldrei
brjóta neitt og bramla. Við erum bæði
of vel upp alin til þess,“ segir Eiríkur
og Helga tekur í sama streng.
Ástfangin upp fyrir haus
Það fer ekki fram hjá neinum sem
eyðir tíma með Eiríki og Helgu að þau
eru ástfangin í dag. „Já, bullandi
ástfangin upp fyrir haus,“ segir Helga
og hlær. „Umhverfið hefur alltaf sagt
okkur að við eigum að vera saman.
Ástin hefur aldrei slokknað síðan við
kynntumst fyrst. Hún lagðist í dvala
um hríð en slokknaði aldrei. Og gerir
það ekki úr þessu,“ segir Helga.
Aðspurður hvar hann sjái þau eftir
20 ár segir Eiríkur að það sé einfalt.
„Við verðum í sumarbústað í
Þrastarlundi og lifum hinu ljúfa lífi á
stefgjöldum sem ég fæ eftir öll
vinsælu lögin sem ég á eftir að semja.
Það væri frábært og gott að stefna
að,“ segir Eiríkur og horfir til Helgu.
oskar@frettabladid.is
DANS Á RÓSUM Lífið leikur við Helgu
Guðrúnu og Eirík. Þau ætla að byrja að
búa saman á nýjan leik í apríl eftir
þriggja ára fjarbúð og eru eins og
ástfangnir unglingar.
SIRKUSMYND/ANTON BRINK
FLOTTUR Það er óhætt að segja að
Eiríkur hafi verið vígalegur á sviðinu
á laugardaginn þegar hann söng
lagið „Ég les í lófa þínum“ og tryggði
sér farseðilinn til Helsinki.
SIRKUSMYND/VILHELM
„VIÐ HÖFUM ALDREI RIFIST EINS OG
HUNDUR OG KÖTTUR EN TIL ÞESS AÐ
VERA EKKI BARA AÐ GORTA AF ÞVÍ, ÞÁ
HEFUR ÞÖGNIN STUNDUM VERIÐ
OKKAR ÓVINUR.“
Helga um Eirík
„Eiríkur er mikið ljúfmenni. Hann er mjög rólegur. Hann er
ekki mikið gefinn fyrir matseld eða heimilisstörf. Hann er
frábær með börn. Það er yndislegt að ala upp börn með
honum. Hann er skemmtilegur, mjög næmur og mikill
mannþekkjari. Hann er afar duglegur við að laða að sér
utangarðsfólk og taka það upp á sína arma. Svo er hann
minn uppáhaldstónlistarmaður. Hann á sína rómantísku
hlið sem eiginmaður. Hann er ekki sá sem kemur heim
með blóm eða óvæntar gjafir en getur kveikt kertaljós og
komið með góða máltíð þegar svo ber undir.“
SAFNANÓTT
Í ÁRBÆJARSAFNI
Föstudaginn 23. febrúar 2007 frá 19:00 – 24:00
Í Árbæjarsafni verður menning ungs fólks í hávegum höfð á
Safnanótt. Í samvinnu við félagsmiðstöðvarnar Ársel, Fókus og í
Norðlingaholti býður safnið upp á dagskrá í tengslum við
sýninguna Diskó & pönk - ólíkir straumar?
Boðið verður upp á leiðsagnir um sýninguna á klukkutíma fresti
og rætt um unglingamenningu í Reykjavík fyrr og nú.
Á milli leiðsagna munu efnileg bílskúrsbönd úr nærliggjandi
hverfum leika fyrir gesti, auk þess sem fólki gefst færi á að
kynna sér undirstöðuatriði í diskódansi.
Opið frá 19:00-24:00
Strætó stoppar við Kistuhyl kl. 34 – 54 – 14