Fréttablaðið - 23.02.2007, Blaðsíða 6

Fréttablaðið - 23.02.2007, Blaðsíða 6
 Einn útsendari Mömmu.is fór til Þórshafn- ar síðustu helgi í því sjónarmiði að skipta út gömlum afruglurum Stöðvar 2 fyrir nýja frá Digital Íslandi. Starfsmaðurinn virðist hafa verið eitthvað illa fyrir kallaður þennan laugardaginn og fann til mikill- ar ógleði af peningalyktinni sem er allsráðandi í bænum. Í það minnsta kúgaðist hann og kastaði loks upp. Eftir það sá hann sitt óvænna og lagði á flótta. Félagar starfsmannsins slógust með í för og því var ekki lokið við að setja nýju afruglarana í stofur Þórshafnarbúa þann daginn. Fleira kom til en lyktin ein sem hindraði endurnýj- unarstarf Mömmu. Loðnubræðslan var með allra mesta móti þessa helgi og því fáir íbúar sem gáfu sér tíma til að bíða heima til að taka á móti nýjum mynd- lyklum. Til stendur að skipta um sjónvarpssendi í bænum á næstu dögum og til að nota nýja kerfið eru nýir afruglarar nauðsynlegir. Framkvæmdastjóri Mömmu, Björn Víglundsson, segir þó ekkert að óttast fyrir þá sem enn nota gömlu gerðina. Ekki verði slökkt á núverandi kerfi fyrr en dreifingu þeirra nýju ljúki. Hörfaði frá Þórshöfn ælandi Ólafur Ragnar Gríms- son, forseti Íslands, er gestur norsk-íslenska viðskiptaráðsins í dag og í gær meðan á Noregs- heimsókn hans stendur í tengslum við 70 ára afmæli Hákonar konungs. Fjölmiðlum og öðrum áhugasömum er boðið að sitja hádegisverðarfund í dag þar sem Ólafur mun fjalla um stöðu Íslands sem lítils lands með sterka þjóð. Einnig mun Ólafur heimsækja norsk útibú íslenskra fyrirtækja á borð við Glitni, Kaupthing og Actavis í dag auk norska fyrirtækisins Aker Seafoods. Forseti Íslands á ferð í Noregi Fimmtán ára stúlka hefur kært sautján ára stúlku og nokkrar vinkonur hennar fyrir að hafa ráðist á sig í Smáralindinni um klukkan sex í fyrrakvöld. Stúlkan var færð á slysadeild eftir árásina, talsvert klóruð en ekki alvarlega slösuð. Ekki liggur fyrir hvert tilefni árásarinnar var eða hvort stúlknahópurinn þekkti þá sem kærði. Lögreglan mun kanna hvort eftirlitsmyndavélar í Smáralind hafi fest atvikið á filmu og er vonast til að það geti varpað einhverju ljósi á atburðinn. Réðust á stúlku í Smáralind Umboðsmaður Alþingis hefur komist að þeirri nið- urstöðu að Umferðarstofu sé óheimilt að innheimta sérstakt gjald þegar einkanúmer eru endur- nýjuð. Í áliti sínu beinir hann einn- ig þeim tilmælum til stjórnvalda að þau endurgreiði það fé sem þegar hafi verið ofgreitt vegna gjaldsins. Gjaldið er 25 þúsund krónur samkvæmt gjaldskrá Umferðarstofu. Þeir sem eru með einkanúmer á bifreiðum sínum hafa þurft að end- urnýja þau á átta ára fresti. Kvart- að var til umboðsmanns Alþingis vegna þessa og spurt hvort Umferð- arstofa hefði heimild til þessarar innheimtu. Í niðurstöðu umboðsmanns telur hann ljóst að með setningu ákvæð- is um greiðslu vegna endurnýjun- arinnar hafi löggjafinn tekið þá ákvörðun að gjald vegna einka- númers skyldi bundið við ákveðna fasta upphæð, án þess að sú fjár- hæð væri í efnislegum tengslum við þann kostnað sem Umferðar- stofa bæri af skráningu einkanúm- era og annarri umsýslu sem því fylgdi. Því væri setning gjaldsins byggð á sjónarmiðum um aukna tekjuöflun ríkissjóðs. Einkanúm- eragjaldið ætti því meira sameig- legt með skattlagningu en þjón- ustugjaldi. Þar af leiðandi þyrfti innheimta þess að uppfylla þær lagalegu kröfur sem gerðar eru til innheimtu skatta og það taldi umboðsmaður hana ekki gera. Vetrarhátíð Á skíðum skemmti ég mér… alltaf þegar er snjór. Veðrið er of „gott“ fyrir skíðamenn. Dagskrá skíðamanna sem vera átti í Ártúnsbrekkunni, laugardaginn 24. febrúar frá kl.14:00, fellur niður. Um leið og veður leyfir verður dagskráin sett á laggirnar. Fylgist með á heimasíðum Skíðasambandsins og skíðadeildanna í Reykjavík. www.ski.is - www.ir/skidi.is - www.vikingur.is - www.armannski.is www.fram.is - www.kr.is/skidi ÍS L E N S K A S IA .I S O R K 3 63 75 0 2/ 07 Baugur er tólf strokka tryllitæki sem hefur verið keyrt í fyrsta og öðrum gír undanfar- in ár vegna rannsóknar Baugs- málsins. Þannig lýsti Jón Ásgeir Jóhannesson, forstjóri Baugs Group og einn ákærðu í Baugs- málinu, áhrifum lögreglurann- sóknar og dómsmála á fyrirtæk- ið, í dómsal í gær. Skýrslutökum yfir Jóni Ásgeiri var fram haldið í gær eftir um viku hlé, og svaraði hann meðal annars spurningum verjanda síns um tilurð Baugsmálsins. Hann sagði málið tilkomið af tvennu; óvildar Davíðs Oddssonar, fyrr- verandi forsætisráðherra, í garð Baugs, og persónulegri óvild Jóns Geralds Sullenbergers, annars ákærðu, í sinn garð. Jón Ásgeir sagði að Baugur Group hafi orðið fyrir miklum skaða vegna rannsóknar á málinu, til dæmis hafi þurft að taka það af markaði, og það hafi orðið af væn- legum viðskiptatækifærum. Mestur hluti gærdagsins fór í skýrslugjöf Jóns Ger- alds, framkvæmdastjóra Nordica Inc. í Bandaríkj- unum. Hann er ákærður í einum ákærulið, og hóf daginn á því að svara spurningum sækj- anda um sinn þátt í málinu. Jón Gerald staðfesti að hann hafi, að beiðni Tryggva Jóns- sonar, þáverandi aðstoðarfor- stjóra Baugs – sem einnig er ákærður í málinu, útbú- ið tilhæfulausan kred- itreikning upp á tæp- lega 62 milljónir króna í lok ágúst 2001 frá Nordica, fyrirtæki sínu á Miami í Banda- ríkjunum til Baugs. Hann sagði dómnum frá því að engin viðskipti hafi legið á bak við reikninginn, en ákæruvaldið heldur því fram að Jón Ásgeir og Tryggvi hafi gefið ranga mynd af stöðu Baugs á þessum tíma með því að láta færa reikninginn inn í bókhald Baugs sem tekjur. Jón Gerald hélt því fram í gær að ekki standi steinn yfir steini í skýringum Jóns Ásgeirs og Tryggva á tilkomu reikningsins, en þeir sögðu hann hafa verið end- urgreiðslu Nordica vegna þess að Jón Gerald hafi sent fyrirtækjum Baugs vörur frá Bandaríkjunum sem ekki hafi verið pantaðar. Hann neitaði því að hafa vitað að það ætti að nota reikninginn í bók- haldi Baugs, raunar hafi hann ekki leitt hugann að því til hvers ætti að nota reikninginn. Hann sagði fjár- hagsstöðu sína hafa á þeim tíma verið erfiða, hann hafi ekki getað hafnað því að gera Tryggva þenn- an greiða því Tryggvi hafi verið að vinna í að gera upp skuldir Baugs við sig. Tryllitæki í fyrsta gír vegna rannsóknar Forstjóri Baugs Group sagði félagið hafa skaðast verulega af lögreglurannsókn. Málið sé tilkomið vegna óvildar Davíðs Oddssonar og Jóns Geralds Sullenber- gers. Jón Gerald staðfesti fyrir dómi að hafa útbúið tilhæfulausan reikning. BAUGS M Á L I Ð Horfir þú á sjónvarp í meira en tvo klukkutíma á dag? Var rétt af Bændasamtökunum að meina gestum klámráð- stefnu að gista á Hótel Sögu?
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80
Blaðsíða 81
Blaðsíða 82
Blaðsíða 83
Blaðsíða 84
Blaðsíða 85
Blaðsíða 86
Blaðsíða 87
Blaðsíða 88

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.