Fréttablaðið - 15.03.2007, Page 8
Texti sem Jónína Bene-
diktsdóttir hefur skrifað um Baugs-
málið á bloggsíðu sína hefur verið
lagður fram í Baugsmálinu og var
borinn undir Jónínu þegar hún bar
vitni í gær. Lögmaður eins ákærða
segir að þær segi allt sem segja
þurfi um trúverðugleika hennar
sem vitnis.
„Ég var ekki sátt við þessa
menn, mér finnst þeir ekki hafa
komið vel fram við mig,“ sagði
Jónína þegar Sigurður Tómas
Magnússon, settur ríkissak-
sóknari í málinu, spurði
hana hvort hún bæri kala
til Jóhannesar Jónsson-
ar, Jóns Ásgeirs Jóhann-
essonar og Tryggva Jóns-
sonar, en tveir síðastnefndu eru
ákærðir í málinu.
Í samtali við fjölmiðla eftir að
hún bar vitni sagði Jónína að í dag
skiptu þessir menn sig engu máli.
Jónína sagðist í gær hafa átt
þátt í að koma Jóni Gerald Sullen-
berger, einum ákærðu, í samband
við Jón Steinar Gunnlaugsson
hæstaréttardómara, sem þá var
starfandi lögmaður. Hún hafi þó
ekki heyrt af því að Jón Gerald
ætlaði með gögn sín um Baug til
lögreglu fyrr en daginn áður en
hann lét verða af því, og hún hafi
frekar latt hann en hvatt til að fara
þessa leið.
Fyrir dóminum í gær staðfesti
Jónína að hún hafi sent Styrmi
Gunnarssyni, ritstjóra Morgun-
blaðsins, tölvupóst sem vitnað var
til í Fréttablaðinu 24. september
2005, undir fyrirsögninni „Eyddu
fingraförum Morgunblaðsins“, en
sagði samhengið vanta þar sem á
undan og eftir hafi komið samtöl
sem Fréttablaðið hafi ekki haft
aðgang að.
Í póstinum segir Jónína að Jón
Gerald sé illur út í feðgana, vænt-
anlega Jón Ásgeir og Jóhannes, og
vilji helst „kála þeim“. Hún spyr
Styrmi hvort hann geti talað við
„Davíð“ til að róa Jón Gerald.
Jónína staðfesti í gær að átt sé
við Davíð Oddsson.
Í samtali við fjölmiðla
sagði Jónína að hún hafi
viljað að Davíð sann-
færði Jón Gerald um að
stjórnmálin tengist ekki dómstól-
unum, en hún hafði áhyggjur af
tengslum Baugs við Davíð í gegn-
um Hrein Loftsson, stjórnarfor-
mann Baugs og fyrrverandi
aðstoðarmann Davíðs.
Sigurður Tómas spurði Jónínu
um dvöl hennar um borð í
skemmtibátnum Thee Viking.
Hún var í sambúð með Jóhannesi
Jónssyni frá árinu 1999 til 2001
og kom því nokkrum sinnum á
bátinn, auk þess sem hún sagðist
hafa farið eftir það og hitt Jón
Gerald. Hún sagðist hafa vitað að
Jón Ásgeir og Jóhannes hafi átt
bátinn með Jóni Gerald, eins og
þá tvo báta sem á undan komu.
Bloggfærslur
lagðar fram
Trúverðugleiki Jónínu Benediktsdóttur sem vitn-
is verður meðal annars metinn út frá færslum á
bloggi hennar. Hún sagðist í gær hafa verið ósátt við
Baugsmenn, en í dag skipti þeir hana engu máli.
BAUGS M Á L I Ð
HVERNIG BORÐAR MAÐUR MEIRI TREFJAR?
Flest okkar hafa gott af því að borða meiri trefjar.
Fullorðnir ættu að borða a.m.k. 25 grömm af trefjum á
dag, en að meðaltali borðum við ekki nema 16,7
grömm*, eða aðeins 2/3 af ráðlögðum dagskammti.
Þó við Íslendingar höldum að við séum best á öllum
sviðum hafa rannsóknir sýnt að við stöndum okkur alls ekki
nógu vel þegar kemur að neyslu trefja. En það er auðvelt að
bæta sig – ef þú borðar Kellogg’s All–Bran á hverjum degi
færðu næstum helming af ráðlögðum trefjaskammti, sem
hjálpar þér að halda meltingunni í góðu lagi. Laus við
þembu, þyngsli og doða líður þér vel innan sem utan.
Fáðu þér gómsætt Kellogg’s All–Bran, Sultana Bran eða
Bran Flakes og vertu bestur ... í trefjum!
*Skv. Lýðheilsustöð
F
í
t
o
n
/
S
Í
A
George W. Bush, forseti
Bandaríkjanna, lauk í gær sjö daga
heimsókn sinni í Suður-Ameríku.
Ofbeldisfull mótmæli einkenndu
ferðina sem virðist aðallega hafa
verið táknræn og til þess að bæta
tengsl við álfuna þar sem engir
nýir samningar voru gerðir.
Undanfarin ár hafa vinstrisinn-
aðir leiðtogar komist til valda víða
um Suður-Ameríku, oft með mál-
flutningi sem beinist gegn stjórn-
völdum í Bandaríkjunum.
Meðan á heimsókn Bush stóð
ferðaðist einn helsti gagnrýnandi
Bush, hinn vinstrisinnaði forseti
Venesúela, Hugo Chavez, einnig
um ríki Suður-Ameríku og hædd-
ist að stefnu Bandaríkjaforseta.
Bush endaði ferðina í nágranna-
ríkinu Mexíkó þar sem pólitískir
hagsmunir Bandaríkjanna eru
hvað mestir. Óeirðaástand braust
út í Mexíkóborg í gær þegar mót-
mælendur slógust við óeirðalög-
reglu fyrir framan bandaríska
sendiráðið í Mexíkóborg, grýttu
hótelið sem Bush dvaldi á og
brenndu bandaríska fánann meðal
annars.
Helsta gagnrýnin á Bush beinist
að hertri innflytjendalöggjöf í
Bandaríkjunum og stefnu banda-
rískra stjórnvalda varðandi stríðið
í Írak. Andúð í garð Bandaríkjanna
jókst til muna eftir að Bush undir-
ritaði frumvarp um að koma upp
hundruð kílómetra langri girðingu,
vegatálmum og innrauðum mynda-
vélum á landamærum Bandaríkj-
anna og Mexíkó.