Fréttablaðið - 15.03.2007, Page 22
hagur heimilanna
Margt hefur áhrif á verðið
Er engin saumakona
Í marsmánuði árið 1997
kostaði 3.100 krónur að fylla
40 lítra bensíntankinn á
heimilisbílnum. Núna kost-
ar það 4.732 krónur. Hækk-
un á heimsmarkaðsverði,
átök í Mið-Austurlöndum og
aukinn hagvöxtur í Asíu eru
meðal þess sem hefur áhrif
á bensínverð á Íslandi.
Fréttir af hækkunum á bensín-
verði hafa verið algengar undan-
farin ár. Verðlækkanir eru fátíðar
og nú hefur meðalverð á bensín-
lítranum ekki farið niður fyrir 100
krónur síðan í febrúar 2004. Það
kostar því talsvert meira að reka
bíl en áður.
Runólfur Ólafsson, fram-
kvæmdastjóri Félags íslenskra
bifreiðaeigenda, telur ólíklegt að
bensínverð lækki í bráð. „Heims-
markaðurinn hefur rokið upp og
það hefur orðið 200 prósenta
hækkun á heimsmarkaðsverðinu á
síðustu tíu árum,“ segir Runólfur
og bætir því við að margir þættir
hafi áhrif á eldsneytisverð. „Jarð-
efniseldsneyti er takmörkuð auð-
lind sem verður sífellt verðmæt-
ari. Óróinn í Mið-Austurlöndum
hefur haft áhrif á verðið á síðustu
árum auk þess sem framþróun
fjölmennra ríkja á borð við Kína
og Indland eykur eftirspurn og
hækkar þar með verðið. Á sama
tíma hefur hinum iðnvædda heimi
ekki tekist að stemma stigu við
eldsneytisnotkun með nýtingu
nýrra auðlinda. Eftirspurnin eftir
eldsneyti hefur því sjaldan verið
meiri,“ segir Runólfur.
Eftirspurn hefur alltaf áhrif á
verðlag og þegar tölur síðustu ára
eru skoðaðar má sjá að verðið
hækkar oft á sumrin þegar fólk er
hvað mest á ferðinni. Nú er meðal-
verðið á bensínlítranum rúmar
118 krónur og Runólfur segir erf-
itt að spá fyrir um framhaldið
næstu mánuði. „Það er líklegt að
verðið hækki eitthvað í sumar en
það er samt erfitt að spá fyrir um
það,“ segir Runólfur.
Nú um mundir kostar 4.732
krónur að fylla 40 lítra bensíntank
á venjulegum heimilisbíl. Í júlí á
síðasta ári kostaði það 5.424 krón-
ur. Hæst hefur bensínlítrinn farið
í 135,6 krónur, í júlí 2006. Á tíu ára
tímabili frá 1997 til 2007 var bens-
ínið aldrei ódýrara en fyrstu þrjá
mánuði ársins 1999, þá kostaði lítr-
inn 70,2 krónur.
Brynja Björk Garðarsdóttir segir
efnin á markaðnum orðin það góð að
ekki þurfi að treysta á húsráð.
Lotus Professional
pappírsvörur
R
V
62
27
A
Rekstrarvörur
1982–200725ára
Halldór Sigdórsson
Þjónn, aðstoðarverslunarstjóri hjá RV
Á tilboði í
mars 2007
LinStyle servíettur og dúkar,
JustOne servíettur og
servíettubox
LinStyle servíettur
40x40cm, 50stk
794 kr.
2.388 kr.
JustOne startpakki
servíettubox og 600
servíettur