Fréttablaðið - 15.03.2007, Side 42

Fréttablaðið - 15.03.2007, Side 42
fréttablaðið heilsa og lífsstíll 15. MARS 2007 FIMMTUDAGUR4 Elín Elísabet Torfadóttir, forrit- ari hjá Caldris, styrkir líkama og sál með karate. „Ég hafði alltaf verið spennt fyrir karate en lét fyrst verða af því að byrja þegar vinkona mín fékk mig með sér á æfingu í Þórshamri fyrir sex árum,“ segir Elín Torfa- dóttir sem tók svarta beltið fyrir ári síðan, þá komin fjóra mánuði á leið. Elín segir karate vera frábæra líkamrækt sem styrki og liðki allan líkamann. „Ég hef styrkst mikið í baki, kvið og fótleggjum. Reglulegar gráðanir eru einnig góð þjálfun í að standa frammi fyrir dómara og standa skil á sinni kunnáttu sem gerir mann sjálfs- öruggari. Ég er líka orðin örugg- ari með mig þegar ég er ein á ferli.” Elín bætir við að þótt karate sé sjálfsvarnaríþrótt sé flótti fyrsta vörnin sem kennd er ef maður verður fyrir árás utan karatesal- arins. Þegar Elín er spurð að því hvort allir geti byrjað að æfa karate segir hún sannarlega að svo sé. „Þegar ég byrjaði fyrst var sá yngsti í mínum hópi fimmt- án ára en sá elsti var um sextugt. Það er einmitt lagt mikið upp úr því að fólk geti æft karate á eigin forsendum, annaðhvort eins og almenna líkamsrækt eða sem keppnisíþrótt. Engum er þröngvað til að keppa. Ég ákvað hins vegar að byrja strax að keppa því það þroskar mann í karate. Bæði vegna þess að þú færð meiri athygli og leiðsögn frá þjálfara og það styrkir líka sjálfstraustið.” Aðspurð hvaða fleiri kosti það hafi að æfa karate aðra en aukinn liðleika og líkamlegan styrk segir Elín þá ótalmarga. Til að byrja með sé góður andi í Þórshamri og skemmtilegt fólk. En það sem henni finnist þó mikilvægast er að í karate er stöðugur lærdómur. Á hverju ári er markmiðið að taka næsta belti sem sé hvetjandi. „Ég mæli hiklaust með karate fyrir alla sem vilja halda sér í góðu formi langt fram eftir aldri,“ segir Elín að lokum. - árá Sjálfstraust og styrkur Elín Elísabet Torfadóttir heldur sér í formi með karate. FRÉTTABLAÐIÐ/VILHELM Árangur fer eftir gæðum Hvaða Spirulina ert þú að taka? Yggdrasill · www.celsus.is 29 vítamín og steinefni · 18 aminósýrur · Blaðgræna · Omega · GLA fi tusýrur · SOD eitt öfl ugasta andoxunarensím líkamans Eingöngu lífræn næringarefni tryggja betri upptöku og nýtingu í líkamanum. Gulli Betri Súrefnistæmdar umbúðir vernda næringarefnin. Lifestream þörungarnir eru ómengaðir, ræktaðir í ferskvatni eftir ströngum gæðastaðli. ISO9001 · ISO14001 V o ttað 100% lífræ nt Greinilegur árangur eftir nokkra daga inntöku Aukið úthald, þrek og betri líðan Fæst í öllum apótekumog heilsubúðum. www.celsus.is

x

Fréttablaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.