Fréttablaðið - 15.03.2007, Page 74
Hótel Holt bauð gestakokkinn
Jean-Yves Johany velkominn til
leiks í vikunni, en hann er fyrst-
ur þriggja franskra kokka sem
kemur hingað til lands í tengsl-
um við frönsku menningarhátíð-
ina Pourquoi-pas?. Kokkarnir hafa
allir hlotið eina eða tvær Michel-
in stjörnur og því um mikinn feng
fyrir íslenska matarunnendur að
ræða. Tveir matreiðslumeistar-
anna verða á Hótel Holti, en sá
þriðji hjá Sigga Hall.
„Kokkarnir voru valdir af
franska sendiráðinu,“ segir
Eiríkur Ingi Friðgeirsson, hótel-
stjóri á Hótel Holti. „Þeir koma
svo allir með sína matseðla með
sér. Johany kemur frá Suður-
Frakklandi og á veitingahús á
frönsku rivíerunni. Þetta er eng-
inn aukvisi,“ sagði Eiríkur kátur.
Hann var einkar ánægður með
suður-franska matseðilinn. „Við
höfum ekki fengið mikið af heim-
sóknum frá því landssvæði. Mat-
reiðslan í Provence er miklu létt-
ari, og mér finnst hún persónu-
lega langskemmtilegust. Þeir
nota mikið af rótargrænmeti og
olíum, og eru ekki með þessa
gömlu, frönsku klassík og þungu
sósur,“ sagði Eiríkur. „Það eru
meiri áhrif frá Ítalíu og Spáni en
uppi í sveitum,“ bætti hann við.
Johany verður á Hótel Holti til
18. mars. Næstu gestir eru vænt-
anlegir í apríl og maí, þegar Guy
Lassausaie heimsækir Hótel Holt.
Michelin-kokkur á Holtinu
að ef skápaplássið í eld-
húsinu er lítið er tilvalið að
skella nokkrum snögum upp.
Mörg búsáhöld eru til þess gerð
að hengja upp, og fallegt sigti á
fallegum snaga getur verið jafn
fallegt og það er hagkvæmt.
Ógleymanleg gúllassúpa í Ungverjalandi
Þemadagar í vínbúðunum í mars eru tileinkaðir vínum frá Bandaríkj-
unum og Argentínu. Af því tilefni munu Vínþjónasamtökin standa fyrir
bandarískum degi á Nordica hóteli á morgun klukkan 17. Víngerðar-
maðurinn Cal Dennison frá Gallo mun halda fyrirlestur um vín fyrir-
tækisins og þá miklu sprengju sem hefur orðið í víngerð í Kaliforníu
undanfarin áratug. Á eftir verður kynning á bandarískum vínum frá
helstu framleiðendum sem selja vín sín hér á landi.
Gallo er eitt kunnasta vínfyrirtæki heims og hefur löngum verið
það stærsta þótt eitthvað hafi það breyst við samruna stórfyrirtækja
nýverið. Bræðurnir Julio og Ernst Gallo stofnuðu það árið 1933 þegar
áfengisbanni í Bandaríkjunum var aflétt. Þetta var á miðjum kreppuár-
unum og aðgangur þeirra að lánsfé var takmarkaður, sagt er að tengda-
móðir Ernst hafi lánað þeim allt sparifé sitt. Bræðurnir kunnu ekkert í
víngerð og gerðu fyrstu vín sín eftir gömlum bæklingi sem þeir fundu
á bókasafni. En þeir reyndust harðskeyttir viðskiptamenn, óhemju
duglegir og voru fljótir að læra handtökin. Þeir skiptu með sér verkum
og sá Julio um víngerðina en Ernst um markaðssetninguna. Og það var
markaðssetningin sem skilaði þeim hinum gífurlega árangri fyrirtæk-
isins eins og lesa má um í fjölda minningargreina sem birst hafa um
Ernst Gallo sem lést í síðustu viku, 97 ára að aldri. Hann er talinn í hópi
helstu markaðsmanna síðustu aldar í Bandaríkjunum.
Julio vildi ekki gefa bróður sínum neitt eftir og sagð-
ist alltaf geta framleitt meira en Ernst gæti selt. Ernst
sneri þessari staðhæfingu að sjálfsögðu við. Áður en
Julio lést 1994 var hann búinn að leggja drög að stefnu-
breytingu fyrirtækisins inn á braut dýrari og betri vína
en lengstum hafði Gallo verið þekkt fyrst og fremst sem
framleiðandi ódýrra borðvína. Þessi stefnubreyting skil-
aði miklum árangri og verðlaunum á vínsýningum. Vín
frá Gallo hafa fengist hér á landi um langt skeið og
verið í hópi vinsælustu bandarískra vína. Má nefna
vín eins og rósavínið Carlo Rossi, Turning Leaf vín-
línuna og nýjustu viðbótina, vínin sem kennd eru
við dalinn fræga og heita Napa Valley Reserve og
fást hér úr þrúgunum cabernet sauvignon og chard-
onnay.
Víngerðarmaðurinn Cal Dennison ber ábyrgð
á mörgum þessara vína. Hann hefur verið í hópi
fremstu víngerðarmanna Kaliforníu í tuttugu ár
og þykir skemmtilegur fyrirlesari. Hann er mik-
ill hestamaður, keppnismaður meira að segja í því
hættulega sporti sem kallað er ródeó.
Kaliforníujöfrar
Tónlistarmaðurinn Davíð Olgeirs-
son nýtur sín vel í eldhúsinu sínu.
Þar er það oftast kjúklingur sem
ratar í pottana.
„Við eldum mikið á þessu heimili,“ sagði
Davíð. „Við erum líka mikið kjúklingafólk,
eins og okkar kynslóð er. Þegar ég var að
alast upp var mikið um salmonellu um tíma.
Foreldrar mínir hættu alveg að kaupa kjúkl-
ing í nokkur ár. Ætli maður sé ekki að bæta
upp fyrir það núna,“ segir hann sposkur.
Þó að Davíð hafi lengi verið liðtækur í
eldhúsinu segir hann matreiðsluáhugann
hafa aukist eftir að hann flutti í Bryggju-
hverfið. „Eldhúsið okkar er svo æðislegt.
Það er opið, svo að maður er aldrei frá fólk-
inu, og svo er sjávarútsýni. Það er bara ekk-
ert skemmtilegra en að standa í eldhúsinu,”
sagði Davíð. Hann er einnig hrifinn af eld-
hústækjum, og fjárfesti til dæmis nýlega í
pönnunni góðu í Ikea. „Hún hefur verið ósp-
art notuð síðan. Þetta er grillpanna, sem
kemur í staðinn fyrir grillið á veturna. Svo
gerir hún mjög fallegar rendur í steikurn-
ar,“ sagði Davíð, sem er einmitt umhugað
um útlit matrétta. „Mér finnst það vera
mikið atriði, þó að fimm ára prinsessan sé
ekki endilega sammála.”
Kjúklingabringurnar í uppskriftinni sem
Davíð deilir með lesendum segir hann best
að steikja í 10-12 mínútur á hvorri hlið.
Davíð mælir einnig hiklaust með smjöri á
pönnuna. „Mér finnst bragðið sem það
gefur svo gott,“ sagði hann. Að lokum mælir
hann með snöggsteiktum sykurbaunum
sem meðlæti.