Fréttablaðið - 15.03.2007, Side 88
Nú er hátíð í bæ hjá prestum og verslunarfólki. Akkorð. Enda
heill árgangur á leið í ,,fullorðinna
manna tölu“. Þrátt fyrir áfang-
ann munu krakkarnir hanga lengi
enn á Hótel Mömmu, vel nærð-
ir og ánægðir með fermingarupp-
skeruna, að lágmarki 5.000 kall á
hvern ættingja, en mun meira frá
náskyldum.
menningarsvæði eru með
manndómsvígslur. Íslenska ferm-
ingarveislan fölnar í samanburði
við það sem sum samfélög leggja
á krakkana: margra daga leynd-
ardómsfullar serímóníur með
kvalafullum líkamsskreytingum
og mannraunum. Hvert samfélag
speglar sig í manndómsvígslunni
og því er augljóst af hverju við
leggjum svona mikið upp úr gjöf-
unum. Við vitum sem er að pen-
ingar eru mátturinn og dýrðin að
eilífu amen og eins gott að kenna
krökkunum þetta strax.
fermingarkrakkarn-
ir eru á versta hugsanlega aldri til
að standa í þessu. Mitt á milli barns
og fullorðins, óöruggar hálfver-
ur. Ég var að minnsta kosti með í
maganum vikum saman fyrir mína
fermingarveislu. Að allt þetta fólk
ætlaði að koma bara út af mér –
það var hræðilega ógnvænleg hug-
mynd að ég ætti að vera miðpunkt-
ur athyglinnar. Ég hefði feginn
skipt á veislunni og vikulangri út-
legð í Heiðmörk, þar sem ég hefði
getað reikað um á lindarskýlu og
fundið mitt andlega sjálf í leiðslu
af berserkjasveppum.
það varð ekki aftur snúið.
Kvöldið fyrir ferminguna lá ég á
bæn og bað þann sem ég var að
fara að frelsast til um að redda
þessu. Og Guð hlustaði á mig
enda engin flóð eða hungursneyð-
ar á dagskránni þann daginn. Um
morguninn var ég kominn með
rauðu hundana, bullandi hita og
óráð. Ekki þótti ráð að drösla
mér í kirkjuna en ekki var aftur
snúið með veisluna, hnallþórur og
majonestertur fyrir 60 manns biðu
alskapaðar fyrir gestina sem ekki
var tími til að afboða.
var uppi í rúmi á meðan gest-
irnir gæddu sér á kræsingum í
vandræðalegri þögn. Þeim var
hleypt inn til mín í hollum með
gjafirnar. Í svitakófi í náttfötun-
um talaði ég tungum undir sæng
ófermdur en sæll í hjarta. Í gegn-
um hitaóráðið gat ég ekki betur
greint en ég hefði grætt 107 þús-
und kall – gamlar – plús vasatölvu
og fyrstu plötu HLH-flokksins.
Þegar Guð
reddaði mér
LÖGFRÆÐIAÐSTOÐ ORATOR
- félag laganema við Háskóla Íslands
mmtudaga
milli 19:30 - 22:00 í síma 551-1012
F
ít
o
n
/
S
ÍA
-
S
v
e
n
n
i
S
p
e
ig
h
t
Ánægðustu
viðskiptavinirnir
eru hjá Vodafone
Gríptu augnablikið og lifðu núna
Ánægðustu viðskiptavinir í flokki farsímafyrirtækja eru hjá
Vodafone samkvæmt Ánægjuvoginni 2006. Við þökkum traustið
og munum áfram leggja okkur fram við að veita framúrskarandi
þjónustu. Góð þjónusta við þig er það sem skiptir okkur mestu máli.