Fréttablaðið - 15.03.2007, Page 88

Fréttablaðið - 15.03.2007, Page 88
Nú er hátíð í bæ hjá prestum og verslunarfólki. Akkorð. Enda heill árgangur á leið í ,,fullorðinna manna tölu“. Þrátt fyrir áfang- ann munu krakkarnir hanga lengi enn á Hótel Mömmu, vel nærð- ir og ánægðir með fermingarupp- skeruna, að lágmarki 5.000 kall á hvern ættingja, en mun meira frá náskyldum. menningarsvæði eru með manndómsvígslur. Íslenska ferm- ingarveislan fölnar í samanburði við það sem sum samfélög leggja á krakkana: margra daga leynd- ardómsfullar serímóníur með kvalafullum líkamsskreytingum og mannraunum. Hvert samfélag speglar sig í manndómsvígslunni og því er augljóst af hverju við leggjum svona mikið upp úr gjöf- unum. Við vitum sem er að pen- ingar eru mátturinn og dýrðin að eilífu amen og eins gott að kenna krökkunum þetta strax. fermingarkrakkarn- ir eru á versta hugsanlega aldri til að standa í þessu. Mitt á milli barns og fullorðins, óöruggar hálfver- ur. Ég var að minnsta kosti með í maganum vikum saman fyrir mína fermingarveislu. Að allt þetta fólk ætlaði að koma bara út af mér – það var hræðilega ógnvænleg hug- mynd að ég ætti að vera miðpunkt- ur athyglinnar. Ég hefði feginn skipt á veislunni og vikulangri út- legð í Heiðmörk, þar sem ég hefði getað reikað um á lindarskýlu og fundið mitt andlega sjálf í leiðslu af berserkjasveppum. það varð ekki aftur snúið. Kvöldið fyrir ferminguna lá ég á bæn og bað þann sem ég var að fara að frelsast til um að redda þessu. Og Guð hlustaði á mig enda engin flóð eða hungursneyð- ar á dagskránni þann daginn. Um morguninn var ég kominn með rauðu hundana, bullandi hita og óráð. Ekki þótti ráð að drösla mér í kirkjuna en ekki var aftur snúið með veisluna, hnallþórur og majonestertur fyrir 60 manns biðu alskapaðar fyrir gestina sem ekki var tími til að afboða. var uppi í rúmi á meðan gest- irnir gæddu sér á kræsingum í vandræðalegri þögn. Þeim var hleypt inn til mín í hollum með gjafirnar. Í svitakófi í náttfötun- um talaði ég tungum undir sæng ófermdur en sæll í hjarta. Í gegn- um hitaóráðið gat ég ekki betur greint en ég hefði grætt 107 þús- und kall – gamlar – plús vasatölvu og fyrstu plötu HLH-flokksins. Þegar Guð reddaði mér LÖGFRÆÐIAÐSTOÐ ORATOR - félag laganema við Háskóla Íslands mmtudaga milli 19:30 - 22:00 í síma 551-1012 F ít o n / S ÍA - S v e n n i S p e ig h t Ánægðustu viðskiptavinirnir eru hjá Vodafone Gríptu augnablikið og lifðu núna Ánægðustu viðskiptavinir í flokki farsímafyrirtækja eru hjá Vodafone samkvæmt Ánægjuvoginni 2006. Við þökkum traustið og munum áfram leggja okkur fram við að veita framúrskarandi þjónustu. Góð þjónusta við þig er það sem skiptir okkur mestu máli.

x

Fréttablaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.