Fréttablaðið - 14.04.2007, Side 4
Lárus Jónsson, fram-
kvæmdastjóri fjarskiptafyrirtæk-
isins Núll-níu, segir rannsókn þýska
fjármálaeftirlitsins á svissneska
símafyrirtækinu Amitelo ekki koma
sér á óvart. Hann hafi haft fregnir
af því áður að maðkur væri í
mysunni hjá fyrirtækinu.
Núll-níu og Amitelo buðu bæði í
rekstur nýs GSM-kerfis á Íslandi
fyrr í þessum mánuði og var
Amitelo með besta tilboðið. Í Frétta-
blaðinu í gær var sagt frá því að
þýski fréttaskýringaþátturinn Fron-
tal21 hefði flett ofan af Amitelo og
starfsemi þess á þriðjudaginn var.
Þar kom meðal annars fram að
fyrirtækið væri rannsakað vegna
gruns um að hafa keyrt upp hluta-
bréfaverð með villandi upplýsing-
um, og það hefði verið kært fyrir
að blekkja hluthafa sína. Höfuð-
stöðvar þeirra í Zürich höfðu stað-
ið tómar í hálft ár þegar þátta-
stjórnendur heimsóttu þær. Gengi
bréfa í fyrirtækinu hríðféllu eftir
sýningu þáttarins.
„Þetta staðfestir það sem ég hef
heyrt um þetta fyrirtæki,“ segir
Andreas Fink, forstjóri svissneska
símafyrirtækisins BebbiCell, sem
var einnig með í útboðinu.
Arnþór Halldórs, framkvæmda-
stjóri Hive, sem var með lægsta
tilboðið, segist hafa óskað eftir
fundi með Hrafnkeli V. Gíslasyni,
forstjóra Póst- og fjarskiptastofn-
unar, til þess að ræða um Amitelo
og önnur úthlutunarmál.
Þessi hugmynd fékk
sæmilegar móttökur
fyrst í stað á okkar fundum en
náði ekki fram að ganga vegna
andstöðu.
MARKAÐURINN
á www.visir
alla daga
Rannsókn kemur ekki á óvart
Þrír menn sprengdu
sjálfa sig í loft upp í Casablanca í
Marokkó þegar lögreglan lagði til
atlögu við þá. Lögreglan skaut
fjórða manninn áður en hann náði
að sprengja sprengju sem hann
var með á sér. Einn lögreglumað-
ur lét lífið og eitt barn særðist.
Talið er að mennirnir hafi ætlað
að fremja hryðjuverk, ekki
ósvipuð þeim sem framin voru í
maí árið 2003 þegar fimm
sprengjur sprungu samtímis í
Casablanca með þeim afleiðing-
um að 45 manns fórust.
Þúsundir manna voru hand-
teknar í kjölfar þeirra árása.
Þrír sprengdu
sig í loft upp
Geir H. Haarde,
forsætisráðherra og formaður
Sjálfstæðisflokksins, telur álitlegt
að ráðuneyti stjórnarráðsins verði
tíu í stað fjórtán nú.
Hann ræddi fækkun ráðuneyta
við aðra flokksformenn í vetur og
kannaði grundvöll þess að í lög yrði
sett opin heimild til sameiningar
og fækkunar.
„Þessi hugmynd fékk sæmilegar
móttökur fyrst í stað á okkar fund-
um en náði ekki fram að ganga
vegna andstöðu,“ sagði Geir í
fyrirspurnatíma á landsfundi Sjálf-
stæðisflokksins í gær.
Hann sagðist ekki hafa viljað
knýja málið fram í krafti þing-
meirihluta stjórnarflokkanna enda
málið ekki þess eðlis.
Fjármálaráðherra var spurður
út í gagnrýni á framkvæmd þjóð-
lendulaga en ríkið hefur þótt ganga
fram af of mikilli hörku í kröfu-
gerðum sínum um þjóðlendur. Upp-
lýsti Árni Mathiesen að eftirleiðis
hefði ríkið aðgang að skjölum
óbyggðanefndar um landamerki
jarða og yrðu kröfur því byggðar á
betri og fyllri gögnum en áður.
Alvarlegum ágreiningsmálum ætti
því að fækka.
Sturla Böðvarsson samgöngu-
ráðherra vildi engu svara efnislega
um skýrslu nefndar um
Reykjavíkurflugvöll sem Frétta-
blaðið greindi frá í gær. Sagði hann
störfum nefndarinnar ekki lokið og
nokkra kosti til skoðunar. Engu að
síður sagðist hann sannfærður um
góð niðurstaða fengist í málið.
Í fjarveru Björns Bjarnasonar
dómsmálaráðherra kom það í hlut
Geirs Haarde að svara hvort til
greina kæmi að lögregla notaði
hunda til að vinna gegn ofbeldi á
götum Reykjavíkurborgar. Geir
kvaðst engu geta svarað til um það,
það væri í verkahring lögreglunn-
ar sjálfrar að meta hvort hundar
gætu nýst við löggæsluna, líkt og
stundum sæist í kvikmyndum.
Geir svaraði einnig fyrirspurn
um hvort Sjálfstæðisflokkurinn
myndi beita sér fyrir því að ein-
hleypar konur fengju að gangast
undir tæknifrjóvgun en þeim er
það meinað, lögum samkvæmt. Var
athygli vakin á þessari staðreynd í
fréttum Stöðvar tvö í vikunni. Geir
sagðist ekki vilja láta líta út eins og
hann væri mikill sérfræðingur um
málið en það hljómaði sem réttlætis-
mál og yrði skoðað á þeirri for-
sendu.
Andstaða við tillögu
um færri ráðuneyti
Geir H. Haarde forsætisráðherra lagði til í vetur að svigrúm yrði skapað í lögum
um sameiningu og fækkun ráðuneyta. Hugmyndin mætti andstöðu og gekk því
ekki fram. Geir greindi frá þessu á landsfundi Sjálfstæðisflokksins í gær.
Olíufélagið Esso og
Bílanaust hafa sameinast og heita
nú N1. Fyrirtækið er ekki lengur
olíufélag heldur alhliða verslun-
ar- og þjónustufyrirtæki, segir í
fréttatilkynningu.
Þjónusta N1
verður í boði á
um 115 stöðum
um land allt, og
er það tíunda
stærsta fyrir-
tæki landsins
með um sjö hundruð starfsmenn.
Hermann Guðmundsson, forstjóri
N1, segir nafnið hafa orðið fyrir
valinu til að undirstrika þann
metnað fyrirtækisins að vera í
forystu hvað varðar góða
þjónustu við bíleigendur.
Esso verður N1
Ríkisstjórnin heldur
naumlega velli samkvæmt
könnun sem Capacent Gallup
hefur gert fyrir Ríkisútvarpið.
Stjórnarflokkarnir fá 32 þing-
menn en stjórnarandstaðan 31.
Samfylkingin, Sjálfstæðisflokk-
urinn og Íslandshreyfingin missa
fylgi en Framsóknarflokkurinn,
Vinstri græn og Frjálslyndir
bæta við sig. Í könnuninni er
Sjálfstæðisflokkurinn með 37
prósenta fylgi, Vinstri græn fá 25
prósent, Samfylkingin 18 prósent,
Framsókn tíu prósent, Frjálslynd-
ir sex prósent og Íslandshreyf-
ingin þrjú prósent. Baráttusam-
tökin fá eitt prósent.
Stjórnin heldur
naumlega velli
Nýfædd þriðja dóttir
Vilhjálms Alexanders, krónprins
Hollands, og argentínsk-ættaðrar
eiginkonu hans, Maximu prins-
essu, heitir Ariane Vilhelmína
Maxima Ines. Þetta upplýsti
prinsinn í gær er hann mætti til að
skrá nafn dótturinnar í ráðhúsi
Haag-borgar.
Öllum hollenskum foreldrum er
gert að skrá nafn barns síns með
formlegum hætti í íbúaskrá
sveitarfélagsins. En ólíkt óbreytt-
um foreldrum í landinu var
forsætisráðherrann Jan Peter
Balkenende í fylgd með föðurnum
stolta. Systur Ariane heita Amalía
og Alexía.
Ariane Vilhelm-
ína Maxima Ines
Árvakur, útgáfufélag
Morgunblaðsins, keypti í gær allt
hlutafé í Ári og degi, útgáfufélagi
Blaðsins, en átti áður um helming
hlutafjár.
Rekstur blaðanna tveggja
verður sameinaður undir Árvakri,
en engar breytingar verða á
ritstjórn Blaðsins.
Tveir fyrrum eigenda Blaðsins
ganga til liðs við Árvakur. Karl
Garðarsson, fyrrverandi fram-
kvæmdastjóri Árs og dags,
verður nú útgáfustjóri prentmiðla
Árvakurs, en Steinn Kári
Ragnarsson verður enn sem fyrr
auglýsingastjóri Blaðsins.
Allt Blaðið var
selt Árvakri