Fréttablaðið - 14.04.2007, Qupperneq 6
Samtök sem nefna sig
Íslamskt ríki í Írak sögðust í gær
bera ábyrgð á sprengjuárásinni á
þinghúsið í Bagdad á fimmtudag-
inn.
Samtökin sögðu einn af
„riddurum“ sínum hafa framið
árásina. Í yfirlýsingu þeirra
segir að þrír þingmenn hafi
farist og nokkrir aðrir særst.
Bandaríkjamenn héldu því
hins vegar fram í gær að einn
Íraki hefði látið lífið en 22 særst
af völdum árásarinnar, sem
framin var á kaffistofu þingsins.
Öryggisráð Sameinuðu
þjóðanna fordæmdi í gær
árásina.
Á fimmtudaginn fordæmdi
Öryggisráðið tvær sjálfs-
morðsárásir í Algeirsborg á
miðvikudag, sem kostuðu 33
manns lífið.
Íslömsk samtök
segjast ábyrg
Gríðarleg mótmæli voru í
gær í Vetlanda í Svíþjóð þar sem
reiðir íbúar höfðu uppi háværar
kröfur um að yfirmaður Félags-
þjónustunnar segði af sér.
Mótmælin komu í framhaldi af
sjónvarpsþætti en í honum sagði
frá tíu ára telpu sem strauk frá
föður sínum eftir að hafa mátt
þola misnotkun og ofbeldi af
hendi hans í fimm ár.
Ókunnugar konur komu
stúlkunni til aðstoðar. Félagsþjón-
ustan gerði hins vegar ekkert til
að koma henni til aðstoðar þrátt
fyrir að þekkja feril föðurins.
Hann situr nú í fangelsi en
stúlkan er á fósturheimili.
Félagsþjónust-
an gerði ekkert
„Samfylkingin hefur þá staðföstu skoðun
að það eigi að verða fyrsta verk nýrrar ríkisstjórn-
ar að taka Ísland út af lista hinna vígfúsu þjóða,“
sagði Ingibjörg Sólrún Gísladóttir, formaður
Samfylkingarinnar, við dynjandi lófaklapp sam-
flokksmanna sinna, er hún flutti stefnuræðu sína á
landsfundi flokksins í gær.
Hún lagði enn fremur ríka áherslu á að tími
jafnaðarmanna væri kominn og hlúa þyrfti betur að
velferðarkerfinu. „Við munum sjá til þess að á
fyrstu tveimur árum í ríkisstjórn verði byggð 400
ný hjúkrunarrými fyrir aldraða og biðlistanum eytt.
Ég hef sagt þetta áður, ég ítreka það í dag [...]
Þekkið þið einhvern sem getur borið vitni um að
velferðarþjónustan hafi batnað [í tíð núverandi
ríkisstjórnar]? Svarið við þessari spurningu er
einfalt og er hægt að setja fram í þremur orðum:
biðlistar, biðlistar, biðlistar. Eftir hjúkrunarrýmum,
eftir hjartaaðgerðum, eftir búsetu fyrir geðfatlaða,
eftir greiningu á geðröskunum barna, eftir úrræð-
um fyrir þau, eftir sérkennslu. Það skortir lausnir.“
Ingibjörg talaði enn fremur fyrir því að Samfylk-
ingin myndi beita sér fyrir breytingum á lögum um
eftirlaun þingmanna og ráðherra. „Ég var andsnúin
þessu frá upphafi og ég mun beita mér fyrir því að
hinum umdeildu lögum verði breytt og meira
jafnræði komið á í lífeyrismálum ráðamanna og
almennings.“
Ingibjörg gagnrýndi ríkisstjórn Sjálfstæðis-
flokksins og Framsóknarflokksins harðlega fyrir að
vanrækja jafnréttismál og taka ekki á ofþenslu í
hagkerfinu, sem hefði leitt til ofurvaxta á lánum
sem legðust harðast á þá sem minnst mættu sín.
Ingibjörg lagði áherslu á að þúsundir atkvæða
mættu ekki detta niður dauð og öruggasta leiðin til
þess að útiloka að svo myndi fara, væri að kjósa
Samfylkinguna.
Hún lagði áherslu á það að tími væri kominn til
þess að Samfylkingin kæmist til valda til þess að
efla jafnaðarsamfélagið, Íslendingum til heilla.
„Afl Samfylkingarinnar mun því ráða úrslitum í
kosningunum 12. maí. Þá verður kosið um framtíð-
ina. Nú sem aldrei fyrr þarf hver einasti maður og
hver einasta kona að ígrunda atkvæði sitt vandlega.
[...] Við höfum þrjátíu daga til þess. Nýtum þá,“
sagði Ingibjörg Sólrún í blálokin á ræðu sinni, aftur,
við dynjandi lófatak landsfundargesta.
Ísland verði tekið af
lista vígfúsra þjóða
Ingibjörg Sólrún Gísladóttir lagði ríka áherslu á að velferðarsamfélagið þyrfti
að endurreisa, eftir vanrækslu ríkisstjórnarinnar á undanförnum árum. Hún
sagði afl Samfylkingarinnar ráða úrslitum í alþingiskosningunum í vor.
Hefur þú fengið hraðasekt?
Vilt þú flugvöll á Hólmsheiði?
Sameiginlegt framboð Höfuðborgarsam-
takanna og Baráttusamtaka eldri borgara og öryrkja
hefur verið blásið af.
Að sögn Arndísar Björnsdóttur, talsmanns
Baráttusamtakanna, var samstarfi við Höfuðborgar-
samtökin sjálfhætt þar sem kröfu þeirra um að
Reykjavíkurflugvöllur hyrfi úr Vatnsmýrinni fyrir
árslok 2011 hefði ekki verið haggað. „Samkvæmt
samningi á völlurinn að vera til ársloka 2016. Í stað
þess að berjast fyrir betri kjörum aldraðra og
öryrkja áttum við því að berjast fyrir máli sem er
ekki til umræðu,“ segir Arndís.
Stjórnir Baráttusamtaka eldri borgara og öryrkja
og Höfuðborgarsamtakanna tilkynntu um stofnun
nýrra stjórnmálasamtaka, Baráttusamtakanna, fyrir
réttum tveimur vikum.
Þrátt fyrir samstarfsslitin er engan bilbug að finna
á Arndísi Björnsdóttur, sem segir Baráttusamtökin
halda sínu striki. Er hún á leið til Ísafjarðar til að
vinna framboðinu fylgi.
Örn Sigurðsson í Höfuðborgarsamtökunum vildi
ekki tjá sig um samstarfsslitin þegar eftir því var
leitað, sagði málið viðkvæmt en yfirlýsing um hlið
samtakanna á því væri í smíðum.