Fréttablaðið - 14.04.2007, Síða 18
Samkvæmt nýrri könnun
er vímuefnaneysla tíundu
bekkinga í sögulegu lág-
marki, sé litið til síðustu
tíu ára. Sameiginleg við-
vera foreldra og barna
hefur höfuðáhrif á neyslu-
venjur, ásamt hollu tóm-
stundastarfi, segir dr. Inga
Dóra Sigfúsdóttir. Hún
er í forsvari fyrir þessar
rannsóknir, sem unnar eru
af rannsóknamiðstöðinni
Rannsóknum og greiningu í
samstarfi við sveitarfélögin
í landinu.
Helmingi færri drekka áfengi nú
í tíunda bekk en fyrir áratug.
Sama á við um tóbaks- og hass-
reykingar. Vímuefnaneysla í
heild sinni sýnist á nokkuð
stöðugri niðurleið ár frá ári, þótt
örlítil aukning hafi mælst í fyrra.
Sú aukning er nú að fullu gengin
til baka.
Um áttatíu prósent nemenda í
elstu bekkjum grunnskóla á öllu
landinu tóku þátt í könnuninni,
sem var gerð í febrúar. Sambæri-
leg könnun hefur verið gerð árlega
síðan 1997 og því auðvelt að bera
saman niðurstöður milli ára.
Umrætt rannsóknastarf er unnið
út frá „íslenska módelinu“, sem
snýst um náið samstarf rann-
sóknaraðila, þeirra sem koma að
stefnumótun í málefnum ungs
fólks og þeirra sem starfa með
börnum og ungmennum. Nú er
verið að vinna með þetta líkan í
einum fimmtán Evrópuborgum
næstu tvö árin. Niðurstöður rann-
sóknarinnar verða kynntar í
Ístanbúl í maí.
„Við vitum auðvitað ekki hvort
þetta gengur þarna úti, því hér
heima eru aðrar aðstæður,“ segir
Inga Dóra Sigfúsdóttir og nefnir
smæð samfélagsins og
menntunarstig þjóðarinnar sem
dæmi.
Inga Dóra er deildarforseti
nýrrar Kennslufræða- og lýð-
heilsudeildar Háskólans í
Reykjavík, en Rannsókn og
greining er rannsóknarmiðstöð
innan deildarinnar.
„Við höfum við lagt ríka áherslu
á samstarf foreldra og skóla,“
segir Inga. „Við höfum séð að
lengd þess tíma sem foreldrar
eru með börnum sínum hefur
mælanleg áhrif á líkurnar á því
að börnin neyti vímuefna.“ Inga
Dóra telur því auðsýnt að eitt
grundvallaratriði forvarnar-
starfs sé samvera barna og for-
eldra, ásamt tómstundastarfi
sem leggi áherslur á hefðbundin
grunngildi. Fræðsla um skað-
semi fíkniefna nægi ekki ein og
sér til að hafa áhrif á lífsstíl.
„Unglingar sem neyta vímu-
efna gera sér oft grein fyrir
skaðlegum áhrifum hegðunar
sinnar. Það skiptir þá bara ekki
höfuðmáli. Því þarf að reyna að
hafa áhrif á hegðun þeirra.
Byggja upp aðstæður til heil-
brigðs lífernis.“
Aðspurð hvaða álit hún hafi á
frægum forvarnarherferðum, til
dæmis um Fíkniefnadjöfulinn,
þar sem vímuefni voru sýnd sem
djöfulleg og boðskapurinn á
næsta trúarlegum nótum, segir
Inga Dóra að slík bein skilaboð
og áróður skili ekki árangri einn
og sér í forvarnarstarfi. „Það er
mun árangursríkara að skapa
aðstæður til að hafa áhrif á
breytni unglinganna og í anda
þess hefur sífellt minni áhersla
verið lögð á beina fræðslu og
meiri þungi lagður í starf úti á
vettvangi, með grasrótinni.“
„Við vinnum þessar rannsóknir í
nánu samstarfi við fólkið sem
mest umgengst krakkana. For-
eldrar, kennarar, íþróttaþjálfar-
ar og fleiri eru lykilfólk í lífi
barna. Það er þetta fólk sem
börnin leita til ef eitthvað bjátar
á og þau vilja svör sem fyrst.
Unglingar vilja ekki panta tíma í
næstu viku til að ræða það sem
þeim liggur á hjarta. Því er
mikilvægt að þeir sem standa
þeim næst hafi svör á reiðum
höndum.“
Tónlistarkennarar og íþrótta-
þjálfarar eru dæmi um starfs-
stéttir sem skipta máli í lífi
barna. Mikilvægt er að þeir miðli
gildum sem stuðla að heilbrigðu
lífi, segir Inga Dóra. „Það skiptir
höfuðmáli að þjálfarar kenni
börnum að þátttaka í íþróttum
snúist ekki bara um sigur í leik
heldur ekki síður hin hefðbundnu
gildi. Til dæmis að leikurinn sé
heiðarlega eða drengilega leik-
inn. Bestu þjálfararnir eru þeir
sem geta miðlað þessum gildum
og það eru þeir sem við viljum
að hjálpi til við að ala upp börnin
okkar,“ segir Inga Dóra. Hún
bætir við að þessi afstaða bygg-
ist á þeirri reynslu sem rann-
sóknamiðstöðin hafi viðað að sér
úti á vettvangi síðustu tíu árin.
Vímuefnaneysla unglinga ekki minni í tíu ár
Við höfum séð að lengd
þess tíma sem foreldrar
eru með börnum sínum hefur
mælanleg áhrif á líkurnar á því
að börnin neyti vímuefna.