Fréttablaðið - 14.04.2007, Side 30
„Því dekkri sem persóna er,
þeim mun áhugaverðari er
hún.“
Þrúgur reiðinnar fyrst gefin út
Alúðarþakkir færum við öllum þeim
fjölmörgu sem vottuðu föður okkar,
Grími Gíslasyni,
virðingu við andlát hans og útför.
Sérstakar þakkir til bæjarstjórnar Blönduóss.
Þökkum hlýju og stuðning í okkar garð.
Sigrún, Katrín, Sæunn, Gísli og fjölskyldur.
Okkar elskulega
Guðrún Steinunn
Gunnarsdóttir,
Sléttuvegi 17, Reykjavík,
andaðist á Landspítalanum Hringbraut þriðjudaginn
10. apríl. Útförin fer fram frá Bústaðakirkju mánudag-
inn 16. apríl kl. 11.00.
Gunnar Örn Pétursson Karen Níelsdóttir
Birgir Pétursson Anna Lísa Guðmundsdóttir
Steinunn Pétursdóttir Sveinn Skúlason
Guðrún Pétursdóttir Sigurgeir Benediktsson
og fjölskyldur.
Okkar kæra vinkona,
Elín Kristjánsdóttir
Miðtúni 78, Reykjavík,
er látin. Jarðarförin hefur farið fram í kyrrþey.
Fyrir hönd vina hennar,
Guðbjörg Benediktsdóttir.
Elskuleg móðir okkar, tengdamóðir, amma
og langamma,
Brynhildur Skeggjadóttir
Safamýri 48,
lést að morgni fimmtudagsins 12. apríl á
Landspítalanum í Fossvogi. Útförin fer fram frá
Grensáskirkju, miðvikudaginn 18. apríl, kl. 15.00.
Sigrún Benediktsdóttir Gísli Einarsson
Lilja Benediktsdóttir Sigurður Vilbergsson
Benedikt Benediktsson Þórný A. Kristjánsdóttir
barnabörn og barnabarnabörn.
Systir mín,
Guðný Sigríður
Þorsteinsdóttir
frá Köldukinn í Holtum, Lindargötu 57,
lést á líknardeild Landakotsspítala miðvikudaginn
11. apríl.
Fyrir hönd fjölskyldunnar,
Guðrún Svava Þorsteinsdóttir.
Ástkær móðir mín, tengdamóðir, amma og
langamma,
Hólmfríður Jóna
Ágústsdóttir,
andaðist á hjúkrunarheimilinu Eir þriðjudaginn
11. apríl. Jarðarförin fer fram frá Lágafellskirkju föstu-
daginn 20. apríl kl. 13.00.
Fyrir hönd aðstandenda,
Kittý M. Jónsdóttir Elías Skúlason
börn og barnabörn.
Ástkær móðir okkar, tengdamóðir, amma
og langamma,
Soffía Jóhannsdóttir
frá Skálum á Langanesi,
lést á Landspítalanum í Fossvogi mánudaginn 9. apríl.
Útförin fer fram í Hafnarfjarðarkirkju mánudaginn
16. apríl kl. 15.00.
Guðbjörg Nielsen Kári Nielsen
Fróði Indriðason Leena Janus
Kristján Indriðason
Kristín María Indriðadóttir Kristinn Óskarsson
Guðmundur Hólm Indriðason
Ragnar Indriðason Aðalheiður Daníelsdóttir
Birgir Indriðason
Rut Indriðadóttir Pétur Bolli Jóhannesson.
„Ég er rosalega ánægð og þetta kom
mér verulega á óvart,“ segir Fan-
ney Lára Guðmundsdóttir, nýkrýnd
fegurðardrottning Reykjavíkur.
Fanney er 19 ára Kópavogsmær og er
að klára Verzlunarskóla Íslands. Eftir
stúdentinn ætlar hún að taka eins árs
pásu frá námi til að ferðast en hún
stefnir á viðskiptafræði í framtíð-
inni í bland við ferðamálafræði. Að-
spurð segir Fanney að kvöldið hafi
verið afar skemmtilegt en auk þess að
hreppa fyrsta sætið var Fanney valin
Aquolina-stelpan.
„Þetta var svo skemmtilegt að ég
vildi að kvöldið myndi aldrei enda.
Þegar búið var að tilkynna annað og
þriðja sætið bjóst ég við að heyra eitt-
hvert annað nafn því ég trúði ekki að
ég myndi sigra,“ segir Fanney Lára en
bætir við að núna stefni hún að sjálf-
sögðu á fyrsta sætið í stóru keppninni
sem verður haldin 25. maí.
Fanney Lára segist ekki hafa þurft
að breyta mikið um lífsstíl í undir-
búningi sínum fyrir keppnina. „Að
vísu þurfti ég að byrja að hreyfa mig
meira en ég hafði lítið gert af því áður.
Núna veit ég hvað það er gott og ætla
hiklaust að halda því áfram.“
Fanney Lára er á föstu með Daníel
Frey Daníelssyni sem er námsmaður
í Japan. Kærastinn var ekki á landinu
þegar keppnin var haldin en hringdi
strax í hana eftir krýninguna. „Hann
sá úrslitin á netinu og hringdi strax
og sagðist óska þess að hafa komið.
Ég var í svo miklu spennufalli að ég
gat varla talað en hringdi í hann aftur
um kvöldið þegar ég var komin heim,“
segir hún hlæjandi.