Fréttablaðið - 14.04.2007, Page 30

Fréttablaðið - 14.04.2007, Page 30
„Því dekkri sem persóna er, þeim mun áhugaverðari er hún.“ Þrúgur reiðinnar fyrst gefin út Alúðarþakkir færum við öllum þeim fjölmörgu sem vottuðu föður okkar, Grími Gíslasyni, virðingu við andlát hans og útför. Sérstakar þakkir til bæjarstjórnar Blönduóss. Þökkum hlýju og stuðning í okkar garð. Sigrún, Katrín, Sæunn, Gísli og fjölskyldur. Okkar elskulega Guðrún Steinunn Gunnarsdóttir, Sléttuvegi 17, Reykjavík, andaðist á Landspítalanum Hringbraut þriðjudaginn 10. apríl. Útförin fer fram frá Bústaðakirkju mánudag- inn 16. apríl kl. 11.00. Gunnar Örn Pétursson Karen Níelsdóttir Birgir Pétursson Anna Lísa Guðmundsdóttir Steinunn Pétursdóttir Sveinn Skúlason Guðrún Pétursdóttir Sigurgeir Benediktsson og fjölskyldur. Okkar kæra vinkona, Elín Kristjánsdóttir Miðtúni 78, Reykjavík, er látin. Jarðarförin hefur farið fram í kyrrþey. Fyrir hönd vina hennar, Guðbjörg Benediktsdóttir. Elskuleg móðir okkar, tengdamóðir, amma og langamma, Brynhildur Skeggjadóttir Safamýri 48, lést að morgni fimmtudagsins 12. apríl á Landspítalanum í Fossvogi. Útförin fer fram frá Grensáskirkju, miðvikudaginn 18. apríl, kl. 15.00. Sigrún Benediktsdóttir Gísli Einarsson Lilja Benediktsdóttir Sigurður Vilbergsson Benedikt Benediktsson Þórný A. Kristjánsdóttir barnabörn og barnabarnabörn. Systir mín, Guðný Sigríður Þorsteinsdóttir frá Köldukinn í Holtum, Lindargötu 57, lést á líknardeild Landakotsspítala miðvikudaginn 11. apríl. Fyrir hönd fjölskyldunnar, Guðrún Svava Þorsteinsdóttir. Ástkær móðir mín, tengdamóðir, amma og langamma, Hólmfríður Jóna Ágústsdóttir, andaðist á hjúkrunarheimilinu Eir þriðjudaginn 11. apríl. Jarðarförin fer fram frá Lágafellskirkju föstu- daginn 20. apríl kl. 13.00. Fyrir hönd aðstandenda, Kittý M. Jónsdóttir Elías Skúlason börn og barnabörn. Ástkær móðir okkar, tengdamóðir, amma og langamma, Soffía Jóhannsdóttir frá Skálum á Langanesi, lést á Landspítalanum í Fossvogi mánudaginn 9. apríl. Útförin fer fram í Hafnarfjarðarkirkju mánudaginn 16. apríl kl. 15.00. Guðbjörg Nielsen Kári Nielsen Fróði Indriðason Leena Janus Kristján Indriðason Kristín María Indriðadóttir Kristinn Óskarsson Guðmundur Hólm Indriðason Ragnar Indriðason Aðalheiður Daníelsdóttir Birgir Indriðason Rut Indriðadóttir Pétur Bolli Jóhannesson. „Ég er rosalega ánægð og þetta kom mér verulega á óvart,“ segir Fan- ney Lára Guðmundsdóttir, nýkrýnd fegurðardrottning Reykjavíkur. Fanney er 19 ára Kópavogsmær og er að klára Verzlunarskóla Íslands. Eftir stúdentinn ætlar hún að taka eins árs pásu frá námi til að ferðast en hún stefnir á viðskiptafræði í framtíð- inni í bland við ferðamálafræði. Að- spurð segir Fanney að kvöldið hafi verið afar skemmtilegt en auk þess að hreppa fyrsta sætið var Fanney valin Aquolina-stelpan. „Þetta var svo skemmtilegt að ég vildi að kvöldið myndi aldrei enda. Þegar búið var að tilkynna annað og þriðja sætið bjóst ég við að heyra eitt- hvert annað nafn því ég trúði ekki að ég myndi sigra,“ segir Fanney Lára en bætir við að núna stefni hún að sjálf- sögðu á fyrsta sætið í stóru keppninni sem verður haldin 25. maí. Fanney Lára segist ekki hafa þurft að breyta mikið um lífsstíl í undir- búningi sínum fyrir keppnina. „Að vísu þurfti ég að byrja að hreyfa mig meira en ég hafði lítið gert af því áður. Núna veit ég hvað það er gott og ætla hiklaust að halda því áfram.“ Fanney Lára er á föstu með Daníel Frey Daníelssyni sem er námsmaður í Japan. Kærastinn var ekki á landinu þegar keppnin var haldin en hringdi strax í hana eftir krýninguna. „Hann sá úrslitin á netinu og hringdi strax og sagðist óska þess að hafa komið. Ég var í svo miklu spennufalli að ég gat varla talað en hringdi í hann aftur um kvöldið þegar ég var komin heim,“ segir hún hlæjandi.

x

Fréttablaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.