Fréttablaðið - 14.04.2007, Page 54
hús&heimili
Ísraelski hönnuðurinn Ayala S. Serfaty (f. 1962)
hefur öðlast heimsfrægð á síðastliðnum áratug
með óviðjafnanlegri húsgagna- og listmunahönn-
un, sem minnir oft á lífríki sjávar í öllum sínum
margbreytileika.
Serfaty hefur frá upphafi einsett sér að skapa
þægilegt og afslappað umhverfi með hönnun sinni
og oftar en ekki haft sjávarlífið að fyrirmynd til
að ná settu marki. Tilgangurinn er að vekja með
mönnum öryggiskennd í því áreiti sem einkennir
líf nútímamannsins.
Ímyndunarafl Serfaty virðast engin takmörk
sett og sem dæmi má nefna skelja-, kuðungs- og
krossfisklaga stóla og kolla, sem eru oftar en ekki
hannaðir með fullkomin þægindi í fyrirrúmi.
Þá eru óupptalin ljós og lampar Serfaty, sem frá
stafar litrík birta og
minna helst á sæfífla,
kórala og marglyttur
og aðrar litskrúðugar
sjávarlífverur, sem er
stundum engu líkara
en svífi í lausu lofti.
Meðfylgjandi mynd-
ir sýna sjálfsagt best
þau kynngimögnuðu
áhrif sem hönnuður-
inn framkallar með
ljósum sínum, lömp-
um og listaverkum.
Þeir sem vilja
kynna sér betur verk
Serfaty er bent á að
fara inn á heimasíð-
una www.aquagall-
ery.com.
- rve
Töfraveröld undirdjúpanna
Hönnuðurinn Ayala S. Serfaty leitar fanga í lífríki sjávar í húsgagnahönnun sinni.
Loftljós í Valencia.
Horn, listaverk í New York. MYND/ALBI SERFATY
Morning Glory, eða Morgundýrð.
Morning Glory, eða Morgun-
dýrð. MYND/ALBI SERFATY
Ayala S. Serfaty finnst fátt
eins skemmtilegt og að kafa
og því kemur varla á óvart að
hönnun hennar skuli endur-
spegla lífríki sjávar.
Einkaheimili í Tel Aviv.
Heitir pottar
Úrval aukahluta
14. APRÍL 2007 LAUGARDAGUR14