Fréttablaðið - 14.04.2007, Blaðsíða 82
„ÞAÐ ELSKA ALLAR KONUR HEIMSFRÆGA MENN“
GRETTIR
Miðasala 568 8000
www.borgarleikhús.is
grettir.blog. is
Draumalandið
eftir Andra Snæ Magnason
Strandgata 50, Hafnarfirði. Miðasala
í síma 555 2222 og á www.midi.is
Frumsýning
16.mars föstudagur kl. 20:00
22.mars fimmtud. 2.sýn kl. 20:00
23.mars föstud. 3.sýn kl. 20:00
24.mars laugard. 4.sýn kl. 20:00
Rithöfundarnir Margaret Atwood,
Ian McEwan og Philip Roth eru
meðal þeirra sem hlutu náð fyrir
valnefnd Alþjóðlegu Booker-bók-
menntaverðlaunanna og komust á
lista yfir þá fimmtán höfunda sem
tilnefndir eru í ár.
Verðlaunum þessum var komið
á fót árið 2005 en ólíkt hinum eig-
inlegu Booker-verðlaunum, sem
ætluð eru breskum skáldsagna-
höfundum og kollegum þeirra á
Írlandi, Suður-Afríku eða í ríkj-
um sem tilheyrðu breska heims-
veldinu, eru alþjóðlegu verðlaun-
in ekki veitt fyrir stök höfundar-
verk heldur fyrir feril og framlag
höfunda til bókmenntanna í heild.
Man Booker-verðlaunin voru
fyrst afhent árið 1969 og teljast
með virtari bókmenntaverðlaun-
um og nú er til að mynda einnig
farið að veita rússnesk Booker-
verðlaun. Þessi alþjóðlegu verð-
laun voru fyrst afhent árið 2005 en
þau hlaut þá albanski rithöfundur-
inn Ismail Kadaré.
Verðlaunaféð er nemur um 7,8
milljónum króna en verðlaunin
eru afhent annað hvert ár.
Dómnefnd verðlaunanna er ein-
ráð og tekur því ekki við ábend-
ingum frá bókaútgefendum. Dóm-
nefndina skipa fræðikonan Elaine
Showalter og rithöfundarnir Nad-
ine Gordimer og Colm Tóbín en
þátttökurétt eiga höfundar sem
skrifa á ensku eða hvers verk eru
aðgengileg í enskum þýðingum.
Fleiri kunnugleg nöfn má finna á
listanum, þar á meðal nöfn Alice
Munro, Salmans Rushdie, Doris
Lessing, Carlos Fuentes og Amos
Oz en tilkynnt verður um verð-
launahafann í júníbyrjun.
Aukinheldur eru veitt verð-
laun fyrir þýðingar og ef svo á
við getur verðlaunahafinn valið
þýðanda að verkum sínum sem
þá hlýtur einnig dágóða summu
fyrir sitt starf.
Framlag verðlaunað
11 12 13 14 15 16 17