Fréttablaðið - 14.04.2007, Page 88
Eins og fram kom í
Fréttablaðinu í gær hefur stjórn
knattspyrnudeildar FH ekki gert
það upp við sig hvort hún hlíti úr-
skurði samninga- og félagaskipta-
nefndar KSÍ í „Róbertsmálinu“
svokallaða. Róbert Magnússon
vann mál sitt gegn FH og er dóm-
urinn bindandi.
Samningur Róberts við FH árið
2003 er því í fullu gildi en á það
vildi FH ekki sættast og greiddi
leikmanninum ekki laun eftir að
hann meiddist fyrir sumarið. Það
ber því að gera samkvæmt dómn-
um.
FH-ingar hafa út árið til að
gera upp við Róbert. Geri Hafn-
firðingar það ekki kemur málið
til kasta leyfiskerfis KSÍ. Þar
stendur að félag skuli ekki vera í
vanskilum um áramót. Að öðrum
kosti fær það ekki þátttökuleyfi.
Það er skýrt samkvæmt dómi
nefndarinnar að samningurinn
er í gildi og því virðist FH ekki
geta annað en greitt fyrirliðanum
fyrrverandi fyrir næstu áramót.
FH fær ekki þátttökuleyfi sumar-
ið 2008 nema það greiði Róberti
Jens verður ekki með Fylki í sumar
Arnar Darri Pétursson
heitir efnilegur 15 ára markvörð-
ur sem spilar með Stjörnunni.
Hann er farinn utan til Reading
á Englandi og í dag mun hann
spila æfingaleik með U-16 ára liði
Reading gegn Chelsea.
Að sögn Ólafs Garðarsson-
ar, umboðsmanns Arnars, verður
Arnar Darri í kjölfarið við æfing-
ar hjá félaginu út næstu viku.
Farinn til
Reading
Njarðvík tekur á móti
KR í þriðja leik lokaúrslita Ice-
land Express-deildar karla í
Ljónagryfjunni í Njarðvík í dag.
Njarðvík vann fyrsta leikinn með
21 stigi á heimavelli en KR jafnaði
einvígið með 6 stiga sigri í öðrum
leiknum í DHL-Höllinni.
Það má búast troðfullu húsi og
ótrúlegu andrúmslofti alveg eins
og í fyrstu tveimur leikjunum. Þá
er einnig ljóst að menn þurfa að
mæta snemma því það komast að
færri en vilja í húsið sem tekur
mun færri áhorfendur en DHL-
Höllin, sem var full í síðasta leik.
Fannar Ólafsson, fyrirliði KR,
talaði um það eftir sigur KR í
öðrum leiknum á fimmtudags-
kvöldið að leikurinn í dag myndi
skera úr um hvort liðið verður Ís-
landsmeistari og ef sagan er skoð-
uð þá styður hún það. Það lið sem
hefur unnið þriðja leik úrslitaein-
vígisins hefur verið Íslandsmeist-
ari fimm síðustu ár og níu sinnum
á síðustu tíu árum. Það er aðeins
árið 2001 sem sker sig úr en Njarð-
vík komst þá í 2-0 gegn Tindastól
en mistókst að tryggja sér titil-
inn á heimavelli í þriðja leiknum.
Njarðvík vann hins vegar fjórða
leikinn á Króknum og vann titil-
inn.
Síðasta liðið til þess að lenda
2-1 undir og vinna titilinn var lið
Njarðvíkur árið 1994 en Grinda-
vík komst þá í 2-1 í úrslitaeinvíg-
inu. Njarðvík vann titilinn eftir
eins stigs útisigur í oddaleik.
Ætli KR-ingar að vinna þriðja
leikinn þurfa þeir að finna leiðir
til þess að binda enda á 29 leikja og
sextán mánaða sigurgöngu Njarð-
víkinga í Ljónagryjfunni. Njarð-
víkingar hafa unnið alla heima-
leiki sína síðan 4. desember 2005
en þá vann Grindavík þar sigur í
framlengingu. Þetta er jafnframt
eina tap Njarðvíkurliðsisn síðan
að ÍR-ingar „stálu“ fyrsta leikn-
um gegn þeim í átta liða úrslit-
unum úrslitakeppninnar í mars
2005. Það er því ekki nóg með að
Njarðvíkurliðið geti unnið sinn 30.
leik í röð í dag heldur státar liðið
af 97% sigurhlutfalli í húsinu und-
anfarin tvö tímabil.
KR-ingar þekkja það orðið eins
og önnur lið að koma tómhentir
heim úr Ljónagryfjunni en þeir
hafa tapað níu leikjum í röð í hús-
inu og unnu þar síðast 13. desem-
ber 2002.
Njarðvíkingar hafa ekki tapað á heimavelli í sextán mánuði og hafa nú unnið
29 leiki í röð í Ljónagryfjunni. Sagan segir að KR-ingar verða að vinna þar í dag
því síðustu þrettán ár hefur ekkert lið komið til baka úr stöðunni 1-2.
Guðmundur Stephen-
sen varð í vikunni sænskur meist-
ari í borðtennis með liði sínu
Eslövs AI sem vann alla þrjá úr-
slitaleikina gegn BTK Rekord.
Guðmundur stóð sig frábærlega
í úrslitaeinvíginu, vann alla sína
sex leiki og enn fremur 18 af 19
hrinum. Þetta gerir 100 prósenta
sigurhlutfall í leikjum og 95 pró-
senta sigurhlutfall í hrinum.
Guðmundur var líka með bestan
árangur af öllum spilurum meist-
araliðsins. Reynsluboltinn Matti-
as Andersson vann alla fjóra leiki
sína og 12 af 14 hrinum, Zhao Peng
vann 4 af 6 leikjum sínum og 14 af
22 hrinum.
Guðmundur vann 8 af 9 leikjum
sínum í úrslitakeppninni og hækk-
aði sigurhlutfall sitt um 16 prósent
frá því í deildarkeppninni þar sem
hann vann 16 af 22 leikjum. Það
má því með sanni segja að strák-
urinn hafi toppað á réttum tíma.
Vann alla
leiki sína
Dalvíkingurinn Björgvin
Björgvinsson og Akureyringur-
inn Dagný Linda Kristjánsdótt-
ir urðu í gær Íslandsmeistarara
í stórsvigi á Skíðamóti Íslands í
Hlíðarfjalli.
Björgvin kom einni og hálfri
sekúndu á undan gestakeppend-
anum Andre Björk frá Svíþjóð
og rúmum fjórum sekúndum á
undan Þorsteini Ingasyni sem
varð annar.
Dagný Lind kom rétt tæpum
fjórum sekúndum á undan Sal-
ome Tómasdóttur í mark.
Þá urðu þau Elsa Guðrún Jóns-
dóttir frá Ólafsfirði og Sigurgeir
Svavarsson frá Akureyri Íslands-
meistarar í göngu með frjálsri að-
ferð.
Björgvin og
Dagný unnu Jose Mourinho, stjóri
Chelsea og markvörður liðsins,
Tékkinn Peter Cech, fengu verð-
laun ensku úrvalsdeildarinnar
fyrir marsmánuð.
Þetta er í fyrsta sinn síðan í
janúar 2005 sem Mourinho er
kosinn stjóri mánaðarins þrátt
fyrir að hafa í millitíðinni gert
Chelsea tvisvar að enskum meist-
urum.
Peter Cech hefur ekki áður
verið valinn besti leikmaður mán-
aðarins og hann er fyrsti mark-
vörðurinn sem er kosinn síðan
að Tim Flowers vann verðlaunin
fyrir september 2000.
Chelsea vann alla fjóra leiki
sína í mars og Cech fékk ekki á
sig eitt einasta mark.
Chelsea vann
tvöfalt í mars
Íslands og bikarmeistar-
ar Vals hafa unnið stórsigra á KR
(4-1) og Breiðabliki (5-0) í síðustu
tveimur leikjum sínum í Lengju-
bikar kvenna í fótbolta. Valslið-
ið hefur unnið alla fjóra leiki sína
með markatölunni 21-3.
Rakel Logadóttir skoraði tvö
mörk gegn Blikum og þær Mar-
grét Lára Viðarsdóttir og Nína
Ósk Kristinsdóttir skoruðu eitt.
Margrét Lára skoraði þrennu
gegn KR og er búin að skora 9
mörk í þessum 4 leikjum.
Stórir sigrar hjá
Valsstúlkum