Fréttablaðið - 14.04.2007, Page 94
1
6 7 8
10
13
119
12
15
16
18
21
20
17
14
19
2 3 4 5
Guðmundur Erlingsson
Landsfundur Sjálfstæðisflokks-
ins stendur yfir í Laugardalshöll
þessa helgina. Og eins og lesend-
ur Fréttablaðsins hafa séð er ekk-
ert til sparað við umgjörð hans
enda um að ræða einn stærsta
fund ársins. Geir H. Haarde flutti
á fimmtudaginn ræðu sína til
flokkssystkina sinna og var eftir
því tekið hversu glæsileg innkom-
an var hjá frambjóðendum flokks-
ins fyrir alþingiskosningarnar í
maí. Og þá ekki síður hversu allt
virtist vera vel skipulagt, ein-
hvern veginn allt á sínum stað.
Þetta er engin tilviljun því
skipuleggjendur landsfundar-
ins fengu félaga sinn, leikstjór-
ann Þorleif Arnarsson, sem er
við nám í Berlín, til liðs við sig og
báðu hann um góð ráð fyrir setn-
ingaratriðið. Þorleifur tekur skýrt
fram að hann hafi ekkert með eig-
inlega skipulagningu fundarins að
gera.
„Enda eru það mér eldri og
reyndari menn sem hafa séð um
þá hlið málsins,“ útskýrir hann.
Hann viðurkenndi þó að hann
hefði komið að uppsetningu sviðs-
ins. „Því það skiptir máli hvar
hlutirnir og ræðumenn eru stað-
settir. Þetta er alls ekki svo ólíkt
leikhúsinu þar sem sviðsmunir
og leikarar þurfa að vera á rétt-
um stað,“ útskýrir hann og bætir
að mesta framlagið hafi verið sön-
gatriðin sem hljómuðu við upphaf
fundarins. „Leikhús gengur á hug-
hrifum. Það var til að mynda góð
stemning fyrir því að láta fram-
bjóðendur koma saman uppi á
sviði og láta það marka upphaf
kosningabaráttunnar og ná um
leið fram einhverjum hughrifum.
Við leikgerðum í raun þessa inn-
komu með góðum og gildum leik-
húsaðferðum,“ útskýrir Þorleifur.
Þorleifur segist aðeins hafa
kynnt sér landsfundi bandarísku
flokkanna tveggja, repúblík-
ana og demókrata, fyrir fundinn.
Þeir eru frægir fyrir hvers kyns
sýndarmennsku enda segir leik-
stjórinn þá fundi meira í ætt við
afþreyingu heldur en pólítík þar
sem hugmyndin sé að selja ein-
hverja pakka-ímynd. Og slíkt á
ekki upp á pallborðið hjá Þor-
leifi. „Íslendingar krefjast þess
sem betur fer enn að það sé inni-
hald og tenging á þessum fundum.
Og vilja ekki sjá hvítar dúfur og
sprengingar. Okkur langar ekkert
í slíkt og getum í raun ekki leyft
okkur slíka hluti,“ segir Þorleifur.
Hann segist hafa það á tilfinning-
unni að stjórnmálaflokkar séu í sí-
fellt meira mæli farnir að nýta sér
hæfni og krafta fagfólks í hinum
listræna geira. „Þú færð ljósa-
meistara til að stjórna ljósunum,
skáld til að skrifa ræðu. Af hverju
ekki leikstjóra til aðstoða við svið-
setningu?“
„Þetta var ein skemmtilegasta áheyrnarprufa
sem ég hef verið með,“ segir Alexía Björg Jó-
hannesdóttir hjá Reykjavík Casting en hún sá
um að prófa leikkonur fyrir finnsk/íslensku
hryllingsmyndina Dark Floors: Lordi Mot-
ion Picture. Eins og fram kom í
Fréttablaðinu fyrir skömmu
verður íslensk leikkona í að-
alhlutverkinu en meðfram-
leiðendur myndarinnar eru
þeir Júlíus Kemp og Ingv-
ar Þórðarson hjá Kvik-
myndafélagi Íslands.
„Þær komu hingað og
öskruðu úr sér lung-
un og samstarfsfólk
mitt hélt að ég væri
hreinlega að reyna
að drepa þær,“
bætir hún við. Alexía vildi ekki gefa upp hversu
margar leikkonur kæmu til greina fyrir hlut-
verkið en samkvæmt heimildum Fréttablaðsins
hlutu níu leikkonur
náð fyrir augum Al-
exíu en sex þeirra
koma hvað sterk-
ast til greina.
Meðal þeirra eru
þær Laufey Elías-
dóttir sem sló
í gegn í Blóðböndum, Ingibjörg Stefánsdóttir,
Birna Hafstein og Haldóra Malin auk Caroline
Dalton. Samkvæmt upplýsingum Fréttablaðsins
er þó helst veðjað á að Brynhildur Guðjónsdótt-
ir hreppi hnossið en hún þótti fara á kostum í
prufunum. Þá er myndin leikin á ensku en Bryn-
hildur lærði sín fræði í Bretlandi og þykir mikil
tungumálamanneskja.
Dark Floors verður mikil auglýsing fyrir þá
leikkonu sem verður valin en hún verður fyrst
kynnt á Cannes-kvikmyndahátíðinni í maí. Þá
verður hún markaðssett eins og háttur hefur
verið á með Hollywood-kvikmyndir en sam-
kvæmt kvikmyndavefnum imdb.com er ráðgert
að hún verði jólamyndin í Finnlandi. Tökur fara
fram í heimabæ finnsku skrímslasveitarinnar,
Oulu. Íbúar bæjarins bíða spenntir eftir að fá
þessa bestu syni bæjarins í heimsókn til sín og
ætla að stjana við aðkomumennina.
Brynhildur líklega í Lordi-myndinni
Bók Völundar Snæs Völundarsonar, Delicious
Iceland, hlaut nýverið hinn virtu The Gourmet
Cookbook Awards sem veitt eru í Kína. Verð-
launin þykja með þeim stærstu í matarbókar-
heiminum. Hlaut hinn virti kokkur Jamie Oli-
ver þau fyrir nokkrum árum auk þess
sem einkakokkur sjónvarpsdrottn-
ingarinnar Opruh Winfrey var
sæmdur sömu nafn-
bót. Verið er að þýða
verðlaunabókina
yfir á íslensku og
kemur hún því Ís-
lendingum fyrir sjónir í fyrsta sinn innan tíðar.
Völli, eins og kokkurinn er jafnan kallaður,
er auk þess að opna glænýjan veitinga-
stað á Bahamaeyjum en hann hefur
notið dyggrar aðstoðar konu sinn-
ar, leikkonunnar góðkunnu Þóru
Sigurðardóttur, við að hanna hann
að innan. Og Völli hefur í hyggju
að koma tveimur veitingastöðum
til viðbótar á legg. Þau hjónin eru
stórhuga og ekki verður séð að þau
séu væntanleg til Íslands í nán-
ustu framtíð. Enda eru æv-
intýrin rétt handan við
hornið hjá þeim skötu-
hjúum.
„O.J. Simpson er góð-
kunningi minn en hann
dvelst mikið á eyjunni.
Hann er orðinn nokkuð
gamall og lúinn verður að segjast, en hann er
fínn kall,“ segir Völli í forvitnilegu viðtali við
Fréttablaðið á morgun. Í viðtalinu kemur auk
þess fram að Völli hefur eldað fyrir Orlando
Bloom, sem er hvað kunnastur fyrir leik sinn
úr Pirates of the Caribbean og Hringadrótt-
inssögu, og þáverandi unnustu hans Kate Bos-
worth. Leikarar úr sjóræningjamyndinni voru
reglu- lega í mat á veitingastað Völla meðan á
tökunum stóð. Þá eru stórstjörnur á
borð við Geoffrey Rush og Gene
Hackmann reglulegir gestir hjá
veitingastað Völla í Karíbahaf-
inu.
Eldar fyrir O.J. Simpson og Orlando Bloom