Fréttablaðið - 16.06.2007, Síða 1

Fréttablaðið - 16.06.2007, Síða 1
20-50% AFSLÁTTUR AF NÝJUM VÖRUM Opið 10-18 í dag LOKADAGUR! Það þarf ekki að fljúga til Kosta Ríka eða Indlands til að eiga framandi sumarfrí. Litla landið okkar leynir á sér og víða leynast og leynast ekki framandlegir veitingastaðir, gistihús og afþreyingarmöguleikar. Fjörutíu konum hefur undanfarin sjö ár verið boðið að ljúka meðgöngu þegar skimun á ellefu til þrettán vikna gömlu fóstri hefur leitt í ljós að það er með Downs-heilkenni. Ein- ungis tvær þeirra völdu að halda meðgöngunni áfram; hinar 38 völdu fóstureyðingu. „Þetta finnst mér svolítið hættu- leg þróun,“ segir Unnur Helga Óttarsdóttir, formaður Félags áhugafólks um Downs-heilkenni. Um sjötíu prósent ófrískra kvenna á landinu fara í skimun á elleftu til þrettándu viku með- göngu. Síðan um aldamótin hefur konum verið boðið upp á skimun, sem getur leitt í ljós hvort fóstrið hafi fæðingargalla. Komi alvarlegur galli í ljós er gengið úr skugga um það með frekari rannsóknum og konunni loks boðið að ljúka meðgöngu með fóstureyðingu. Langflestar velja þann kost. Um þriðjungur tilfell- anna er vegna Downs-heilkennis. Tæpur þriðjungur kvenna sleppir skimun, en skimunin getur einnig gefið ónákvæma niður- stöðu. Því fæðast um tvö til þrjú Downs-börn á ári, en áður en skimun hófst voru þau um sjö að meðaltali. „Ef fólkið ákveður að þiggja skimun hefur það í flestum tilvik- um ákveðið fyrir fram að ef eitt- hvað finnist verði farið í fóstur- eyðingu,“ segir Reynir Tómas Geirsson, prófessor og yfirlæknir á kvennadeild LSH. Skimun með þessum hætti er ekki leyfileg í Noregi, en tíðkast á hinum Norðurlöndunum. „Það eru mismunandi skoðanir á því hversu alvarleg fötlun Downs-heilkenni er. Sumum finnst það ekki mikið mál, en öðrum meira mál. Um þetta hefur fólk sjálfdæmi,“ bætir Reynir við. „Þessi börn eru bara venjuleg börn og verða venjulegir fullorðnir einstaklingar,“ segir Unnur. „Þau eru bara aðeins öðruvísi.“ Downs-heilkenni er litninga- frávik sem veldur þroskahömlun. Um eitt af hverjum átta hundruð börnum sem fæðist hefur heil- kennið. „Allir vilja eiga fullkomið barn, en ákveðin viðhorfsbreyting þarf að eiga sér stað í þjóðfélaginu,“ segir Unnur. „Það er svo mikil full- komnunarárátta. Fólk treystir sér ekki til að eiga svona fatlað barn, en Downs er líklega ein skásta fötl- unin. Þetta er auðvitað erfitt, en líka mjög gefandi.“ Langflestum fóstrum með Downs-heilkenni er eytt Um 300 stúlkur á 11. og 12. aldursári eru saman komnar í Vestmannaeyjum á hinu árvissa Pæjumóti. Mótinu lýkur í dag. „Það er rífandi stemning í hópnum og stelpurnar hafa staðið sig vel,“ segir Smári Jökull Jónsson, sem situr í mótsnefnd. Hann segir mótið setja svip á bæinn því auk stúlknanna dvelji fjölmargir foreldrar og fylgdar- menn í Eyjum. „Þótt fótboltinn sé í fyrsta sæti er ýmislegt annað við að vera fyrir stelpurnar,“ segir Smári en þegar Fréttablaðið ræddi við hann var verið að undirbúa Idol-keppni sem sjálfur Jógvan ætlaði að dæma. Fjör á pæjumóti Benedikt Erlingsson var sigursæll þegar Gríman, íslensku leiklistarverðlaunin, var afhent í Íslensku óperunni í gærkvöldi. Benedikt hlaut þrenn verðlaun, fyrir leikstjórn í sýningunni Ófagra veröld og sem besti leikarinn og leikskáldið í sýningunni Mr. Skalla- grímssyni. Dagur vonar, í sviðsetn- ingu Leikfélags Reykjavíkur, var kjörin besta leiksýning ársins. Benedikt þakkaði Agli Skalla- grímssyni þegar hann tók við verðlaunum fyrir leik í aðalhlut- verki. „Hann gerði margt slæmt og margt gott, og það er kannski hægt að bæta þessari styttu sem skrautfjöður í hattinn hans.“ Herdís Þorvaldsdóttir og Róbert Arnfinnsson hlutu heið- ursverðlaun Leiklistarsambands Íslands á hátíðinni yfir ævistarf í þágu leiklistar. Hlutu þau dynj- andi lófaklapp er þau tóku við viðurkenningu úr hendi Ólafs Ragnars Grímssonar, forseta Íslands. Benedikt var sigurvegari kvöldsins Aðeins tvisvar á síðustu sjö árum hefur fóstureyðingu verið sleppt ef skimun hefur leitt í ljós Downs-heilkenni hjá fóstrinu. Fæðingum Downs-barna hefur fækkað mikið. „Fólk hefur sjálfdæmi,“ segir yfirlæknir kvennadeildar.
Síða 1
Síða 2
Síða 3
Síða 4
Síða 5
Síða 6
Síða 7
Síða 8
Síða 9
Síða 10
Síða 11
Síða 12
Síða 13
Síða 14
Síða 15
Síða 16
Síða 17
Síða 18
Síða 19
Síða 20
Síða 21
Síða 22
Síða 23
Síða 24
Síða 25
Síða 26
Síða 27
Síða 28
Síða 29
Síða 30
Síða 31
Síða 32
Síða 33
Síða 34
Síða 35
Síða 36
Síða 37
Síða 38
Síða 39
Síða 40
Síða 41
Síða 42
Síða 43
Síða 44
Síða 45
Síða 46
Síða 47
Síða 48
Síða 49
Síða 50
Síða 51
Síða 52
Síða 53
Síða 54
Síða 55
Síða 56
Síða 57
Síða 58
Síða 59
Síða 60
Síða 61
Síða 62
Síða 63
Síða 64
Síða 65
Síða 66
Síða 67
Síða 68
Síða 69
Síða 70
Síða 71
Síða 72
Síða 73
Síða 74
Síða 75
Síða 76
Síða 77
Síða 78
Síða 79
Síða 80
Síða 81
Síða 82
Síða 83
Síða 84
Síða 85
Síða 86
Síða 87
Síða 88

x

Fréttablaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.