Fréttablaðið - 16.06.2007, Síða 12
[Hlutabréf]
Yfirtökunefnd hyggst ekkert aðhaf-
ast vegna viðskipta Baugs Group á
hlutabréfum í 365 hf., útgáfufélagi
Fréttablaðsins. „Ég á ekki von á því
að við teljum að það þurfi að athuga
þetta sérstaklega miðað við þær
upplýsingar sem við fengum fyrir
og um það leyti sem kaupin voru
gerð,“ segir Viðar Már Matthías-
son, formaður nefndarinnar.
Baugur, sem átti 31,8 prósenta
hlut í 365, keypti 6,6 prósent til
viðbótar fyrir 980 milljónir króna
og átti þá alls 38,4 prósent í félag-
inu, sem er nálægt fjörutíu pró-
senta yfirtökumörkum. Jafnframt á
Baugur fimmtungshlut í FL Group
sem er meðal stærstu hluthafa í
365. Baugur seldi umrædd bréf til
Landsbankans en gerði jafnframt
afleiðusamning við bankann þar
sem að Baugur græðir eða tapar til
samræmis við gengisþróun bréfa í
365.
Viðar telur forsenduna að Lands-
bankinn sé eins og hver annar hlut-
hafi sem geti selt þessi bréf öðrum
og farið með atkvæðisrétt á bréfun-
um. „Það finnst mörgum þetta eitt-
hvað óeðlilegt en svona gerast kaup-
in á eyrinni. Þetta brýtur ekki í bága
við neinar reglur, til dæmis í verð-
bréfaviðskiptalögunum.“
Nefndin aðhefst ekkert í 365
Allir hluthafar Intersport A/S í
Danmörku hafa samþykkt yfir-
tökutilboð fjárfestingafélagsins
Arevs og Straums-Burðaráss í
keðjuna. Þá hafa 96 prósent hlut-
hafa verslana Intersport sam-
þykkt tilboðið. Áreiðanleikakönn-
un fer nú fram en allt bendir til
þess að af kaupunum verði.
Fjárfestingafélagið Arev er
í aðaleigu fjárfestisins Jóns
Scheving Thorsteinssonar.
Straumur-Burðarás Fjárfestingar-
banki veitti Arev ráðgjöf og fjár-
magnaði kaupin að hluta. Ekki
hefur komið fram hversu hátt til-
boðsverðið er. Í frétt á vef danska
viðskiptablaðsins Børsen er talið
að tilboðið liggi í kringum einn
milljarð danskra króna.
Kaupa Intersport
Eignarhaldsfélagið Samvinnutrygg-
ingar hefur verið hljóðlátur en um-
svifamikill fjárfestir á íslenskum
hlutabréfamarkaði. Fjárhagslegur
styrkur félagsins hefur vaxið mikið
á undanförnum árum samfara mikl-
um gengishækkunum í fjármála-
fyrirtækjum.
Ætla má að helstu eignarhlut-
ir Samvinnutrygginga nemi hátt
á fimmta tug milljarða króna. Fé-
lagið hagnaðist um 312 milljónir
króna árið 2003 en tveimur árum
síðar nam afkoma þess rúmum 2,8
milljörðum króna og eigið fé um 7,2
milljörðum.
Þegar Exista yfirtók VÍS á síð-
asta ári lauk beinni þátttöku Ehf.
Samvinnutrygginga í vátrygginga-
rekstri sem hafði staðið frá stofn-
un Samvinnutrygginga árið 1946.
Eignarhaldsfélagið sjálft varð til
við stofnun VÍS árið 1989 þegar
Samvinnutryggingar sameinuð-
ust Brunabótafélagi Íslands undir
merkjum VÍS. Sem gagngjald
gengu Samvinnutryggingar helm-
ingshlut í VÍS.
Tilgangur Ehf. Samvinnutrygg-
inga var að ávaxta sem best eigið fé
þess með þátt-
töku í vátrygg-
ingastarfsemi og
skyldum rekstri
og annars konar
fjárfestingar- og
lánastarfsemi.
Félagið er
þriðji stærsti
hluthafinn í Ex-
istu með hlut
sem er metinn
á 20,7 milljarða
króna. Frá því að
Exista var skráð
á markað hefur
markaðsvirði bréfanna aukist um
7,4 milljarða króna.
Þá er félagið eigandi að helm-
ingshlut í Eignarhaldsfélaginu And-
vöku sem á hlutabréf í Existu, og á
þriðjungshlut í eignarhaldsfélag-
inu Hesteyri. Það félag á 3,64 pró-
sent í Existu og einnig hlutabréf í
útgerðarfélaginu Skinney-Þinga-
nesi á Höfn.
Nýverið leiddu Samvinnutrygg-
ingar hóp fjárfesta sem eignuð-
ust Icelandair Group af FL Group.
Samvinnutryggingar fara með 75
prósent hlut í Langflugi, stærsta
hluthafanum í Icelandair, á móti
fjórðungshlut Finns Ingólfssonar,
stjórnarformanns Icelandair. Mark-
aðsvirði hlutabréfanna í Icelandair
nema 6,6 milljörðum króna. Félagið
á einnig umtalsverða eignarhluti í
Straumi-Burðarási og Landsbank-
anum auk hlutabréfa í óskráðum fé-
lögum.
Auk Samvinnutrygginga eiga
Skinney-Þinganess og FISK Sea-
food Hesteyri að jöfnu. Á síðasta
ári var samþykkt að slíta Hesteyri
og skipta upp eignum og skuldum
þess til hluthafa.
Þátttöku Eignarhaldsfélagsins Samvinnutrygginga í tryggingarekstri lauk með
kaupum Existu á VÍS. Hlutabréf félagsins í Existu eru metin á yfir 20 milljarða.
Íslenska orkufyrirtækið Iceland Energy
Group og Serbneska lýðveldið hafa gert
með sér samstarfssamning um upp-
byggingu þriggja vatnsaflsvirkjana á
svæðinu. Serbneska lýðveldið er önnur
tveggja stjórnunareininga Bosníu-
Hersegóvínu. Forsætisráðherra Serb-
neska lýðveldisins var staddur hér á
landi í gær af þessu tilefni.
Samningurinn snýr að uppbyggingu
og viðhaldi þriggja vatnsaflsvirkjana.
Uppsett afl virkjananna í heild verður
um sex hundruð megavött af rafafli. Til
samanburðar er uppsett afl Kárahnjúka-
virkjunar tæp 700 megavött. Virkjan-
irnar eru í rekstri í dag. Þær þarf hins
vegar að uppfæra og endurbæta. Iceland
Energy Group mun gera það, auk þess að
sjá um sölu og dreifingu raforkunnar.
Eigendahópur Iceland Energy Group
samanstendur af íslenskum fagfjárfest-
um og einstaklingum. Hópurinn hefur
frá því árið 2004 undirbúið jarðveginn
fyrir fjárfestingar í orkugeira Austur-
Evrópu.
Árni Jensen, framkvæmdastjóri Ice-
land Energy Group, segir útrás félagsins
rétt að hefjast. „Við sjáum fyrir okkur
að á næstu fimm til tíu árum muni 25 til
30 þúsund megavött skipta um hendur.
Þetta er tíu til fimmtán sinnum meira en
er til skiptana á Íslandi. Okkur langar í
einhvern hluta af þeirri köku.“ Þá segir
hann þekkingu og reynslu Íslendinga af
orkumálum geta nýst vel. „Íslending-
ar hafa gert fleiri vatnsaflsvirkjanir á
síðustu tuttugu árum en öll Vestur-Evr-
ópa. Ef við hættum að nýta þessa þekk-
ingu hverfur hún. Það má ekki gerast því
í henni felast mikil verðmæti.“
Virkja í Bosníu-Hersegóvínu
Sumartilboð Vildarþjónustunnar
25%
afsláttur hjá öllum
Fosshótelum
www.spar.is
H
V
ÍT
A
H
Ú
S
IÐ
/
S
ÍA
8
1
3
1
VILDAR
KLÚBBUR
GLITNIS
SKRÁÐU ÞIG
FYRIR 17. JÚNÍ!
Þú færð 10.000 ókeypis
Glitnispunkta með því að
skrá þig fyrir 17. júní
í Vildarklúbb Glitnis!