Fréttablaðið - 16.06.2007, Page 22
Í dag fór Andri í vikudvöl hjá
skátum að Úlfljótsvatni. Hann
og Kári vinur hans fóru líka í
fyrra og líkaði svo vel að þeir
vildu ólmir fara aftur.
Andri fór með heilmikinn far-
angur og verður örugglega feg-
inn því að fara í hrein föt á hverj-
um morgni þegar hann er búinn
að fara í morgunsturtu og bursta
tennurnar vandlega.
Mér sjálfum finnst hins vegar
óþarfi að gera unga menn út með
mikinn farangur í svona ævin-
týraferðir. Ég frétti af einum
strák sem var í vikudvöl á Úlfljót-
svatni í fyrra og kom heim glað-
ur og ánægður í nákvæmlega
sömu fötum og hann var í þegar
hann fór. Aðspurður kvaðst hann
líka hafa sofið í þeim enda spar-
ar það bæði tíma og fyrirhöfn að
vera ekki sífellt að rífa sig í eða
úr fötunum.
Frá Háteigsskóla kemur at-
hyglisverð áætlun en þar hefur
starfsfólkið verið að skoða þá
óskilamuni sem blessuð börn-
in hafa skilið eftir sig í skólan-
um og enginn hefur gert tilkall
til eða viljað við kannast.
Samkvæmt þessari athug-
un skilur hvert barn að meðal-
tali eftir sig verðmæti fyrir um
2.500 krónur á vetrinum og er þá
miðað við áætlað verð á hverja
úlpu 5.000 krónur, 400 krón-
ur á vettlinga og 3.000 krónur á
peysu svo dæmi séu tekin.
Tíu þúsund skólabörn týna
samkvæmt þessu andvirði 25
milljón króna á hverjum vetri og
er þá ótalinn sá varningur sem
tapast annars staðar en í skól-
um landsins. Þetta eru umtals-
verð verðmæti og mundu nema
rúmum árslaunum
seðlabankastjóra ef
öll hrúgan væri á
einum
stað.
Í dag var Valgerður
Sverrisdóttir kjörinn
varaformaður Framsókn-
arflokksins. Á þeim bæ
er mikið og erfitt starf
fyrir höndum.
Í framtíðinni munu
stjórnmálafræðingar
leita skýringa á
því hvers vegna
Framsóknarflokkur-
inn uppskar allar
skammirnar og
Sjálfstæðisflokk-
urinn allt hrósið fyrir
þau verk sem þessir
flokkar unnu í samein-
ingu í 12 ára stjórnar-
samstarfi.
Skýringarnar verða
sennilega jafn margar og
ólíkar og þeir sem eiga eftir
að setja þær fram. Í mínum
huga er hlutskipti Fram-
sóknar soldið eins og sak-
lausrar sveitapíu sem borg-
arljósin heilla til sín og lendir
í óheppilegum félagsskap og
gleymir uppruna sínum og
þeim dyggðum sem hún var
nestuð með að heiman.
Með sjö ára hreinlífi mun vera
hægt að endurheimta meydóm
sinn svo að Framsókn hefur tím-
ann fyrir sér. Glöggur maður
sem ég hitti á förnum vegi, og
var einusinni alþingismaður,
kvaðst ekki treysta sér til að
segja fyrir um það með öruggri
vissu hvort stjórn Sjálfstæðis-
flokks og Samfylkingar muni
endast í tólf ár eða sextán.
Þegar íslenskir
stjórnmálamenn
þora ekki sjálf-
ir að segja ein-
hverja vitl- eysu eða
framkvæma
eitthvert glap-
ræðið er þrauta-
lending þeirra að
hóa í „erlenda sér-
fræðinga“ og hafa
ruglið eftir þeim til
að gefa því gáfulegt
yfirbragð.
Nú langar marga að
drepa Íbúðalánasjóð. Það
er skelfilegt að ríkið skuli
reka þennan sjóð sem varn-
ar því að bankarnir geti
selt sér algjört sjálfdæmi
í fasteignaviðskiptum og
ráðið því hverjir fái að
eignast þak yfir höfuðið
og hverjir ekki.
Meðan verið er að
brugga Íbúðalánasjóði
banaráðin stendur heil-
ræðabunan upp úr „er-
lendum sérfræðingum“ sem
fullyrða eins og sannir heims-
endaspámenn að nú þurfi að
takmarka „án tafar hámarks-
lán og lánshlutföll hans“. Þetta
orðalag er svo auðskil-
ið jafnvel sauðsvört-
um almúga að hinir
„erlendu sérfræð-
ingar“ láta fylgja
þessu djúpvitra at-
hugasemd á vís-
indasproki sem
hljóðar svo: „Í
framhaldinu þarf ríkis-
stjórnin að eyða fyrir fullt
og allt þeirri bjögun á innlendum
fjármálamarkaði sem stafar af
tilvist Íbúðalánasjóðs í eigu hins
opinbera.“
„Bjögun á innlendum fjármála-
markaði“ er væntanlega sú stað-
reynd að meðan Íbúðalánasjóð-
ur er við lýði eiga bankarnir ekki
allskostar við almenning.
Bjögun ætti kannski frekar að
vera bjöggun?
Annars eru vísindamenn ynd-
islegir, ekki bara hinir
„erlendu sérfræð-
ingar“ sem hing-
að koma. Nú hefur
hjörð vísinda-
manna við Lund-
únaháskóla afrek-
að það sem lengi hefur vaf-
ist fyrir mannkyninu. Sem
sé að meta hamingjuna til
fjár.
Vísindamennirnir hafa reikn-
að það út hvers virði heilsa, ham-
ingja, gott hjónaband og fleiri
slíkir óáþreifanlegir hlutir séu í
krónum og aurum. Ekki veit ég
hvort niðurstöður vísindamann-
anna eiga að gilda um fleiri þjóð-
ir en þær sem byggja Bret-
landseyjar en fyrir mína
parta finnst mér
góð heilsa
fremur lítils
metin þar um
slóðir, eða
á skitnar 37
milljónir króna
sem dygði varla
fyrir íbúðarholu
í Skuggahverf-
inu í Reykjavík.
Góður maki er
metinn á 25
millur.
Skyldi frú
Sólveig geta
fengið 25
milljónir
fyrir mig á
frjáls-
um markaði? Það
er svipuð upphæð
og frambærilegur
forstjórajeppi kostar.
Nú mun vera búið að eitra innan
þjóðgarðsins í Jökulsárgljúfr-
um. Ekki þó fyrir meindýrum
eða ferðamönnum heldur fyrir
plöntutegund sem heitir lúp-
ína. Íslenskum plöntu-rasist-
um virðist vera uppsigað við
þessa fallegu jurt sem vex á
svörtum söndum þar sem aðrar
jurtir hafa dáið út. Á eyðimörk-
um myndar lúpínan jarðveg og
vaxtarskilyrði fyrir önnur blóm
og jurtir og víkur síðan kurteis-
lega þegar hún hefur búið í hag-
inn fyrir þær.
Verandi kunnugur austur á
Rangárvöllum hef ég séð með
eigin augum hvílíkt kraftaverk
lúpínan er á eyðisöndum.
Hvað þarf annars ein jurt að
hafa búið lengi á Íslandi til að
fá hér ríkisborgararétt? Verst
að Jónína Bjartmarz skuli ekki
vera umhverfisráðherra lengur.
Svonefnd GÚRKA byrjar form-
lega í dag en gúrkutíð
hefst þegar
flest
mikil-
menni
innan-
lands
og utan eru
komin í sumar-
frí og blaða-
menn hafa lítið til að
skrifa um annað en vaxt-
arafrek garðávaxta.
Aðalfréttin á landinu í dag
hefur verið sá fáheyrði atburð-
ur að unglingar fóru á fyllerí í
sumarbústað um síðustu helgi
og nenntu ekki að taka til eftir
sig.
Á dögum al-
þjóðavæðingar,
hryðjuverka,
gróðurhúsa-
áhrifa,
styrjalda
og hung-
ursneyða
finnst mér
notalegt að
búa í landi
þar sem
sóðaleg
umgengni
í sumar-
bústað
telst
enn
vera
fréttaefni.
Andri og Kári eru komn-
ir frá Úlfljótsvatni him-
insælir með dvölina. Elí
vinur Andra sem hefur saknað
leikfélaga síns undanfarna daga
var að sjálfsögðu mættur til að
að taka á móti þeim.
Við fyrstu athugun lítur út
fyrir að Andri hafi haft fata-
skipti í vikunni enda er hann
hið mesta snyrtimenni og týndi
ekki nema einhverju smáræði af
fötum í ferðinni.
Í kvöld hjálpaði litla Sól mér að
hnoða flatbökur til að halda upp
á heimkomu útilegudrengsins og
Hávar og Eyrún Þorbjörnsbörn
sem búa í næsta húsi mættu í
samkvæmið. Það var líf og fjör
enda vona ég að barnabörnin
mín segi sínum barnabörnum að
forfaðir þeirra í Norska bakarí-
inu hafi bakað góðar pitsur því
að orðstír að sögn Hávamála
deyr aldrei.
Sumarið verður alltaf betra og
betra.
Bjögun eða bjöggun?
Í Dagbók Þráins Bertelssonar er sagt frá 25 milljónum króna á glámbekk, sveitastúlku í solli og heilræðum heimsendaspámanna
og spurt hversu lengi jurtir þurfi að búa á Íslandi til að fá íslenskan ríkisborgararétt...
ÍS
L
E
N
S
K
A
/S
IA
.I
S
/U
T
I
38
10
0
06
/0
7
TNF Tadpole
2 manna göngutjald
Þyngd: 2,13 kg
Tjaldalandi
- við Glæsibæ
Tjaldaúrvalið er í
Verð:
32.990 kr.