Fréttablaðið - 16.06.2007, Síða 74

Fréttablaðið - 16.06.2007, Síða 74
Ég er ein af þeim sem hrífast meira af tísku hausts og vetrar en sumarsins, þegar mér finnst tískuverslanir fyllast af ósamstæðum og glannalegum litum og efnum sem maður getur ekki beðið eftir að fari á útsölu á haustin. Það er einhvern veginn erfiðara að vera smart á sumrin, en margar konur halda að árstíðin hlýja þýði það að maður eigi að dressa sig frá toppi til táar í túrkisblátt, appels- ínugult eða pastelliti. Ég á erfitt með að losna úr viðjum klassískra lita eins og svörtu, hvítu, gráu og beige og held mig við þá sama hvað hitamælirinn segir. Nú fara margir að huga að sumarleyfum er- lendis, hvort sem það er í borgarferð (og þá oftast í 30 stiga mollu!) eða við strönd. Ég er einmitt að reyna að endurhugsa fataskápinn fyrir sumarfrí- ið og er að sirka út hina fullkomnu „garderóbu“ sem ætti að henta bæði í stórborg eða á svöl- um í evrópskum strandbæ. Sumarið í ár er fyrst og fremst algjört kjólasumar, og þá erum við að tala um þægilega, lausa kjóla með einskon- ar sixtís-sniði sem ættu að ganga við bókstaf- lega allt. (Ég var sérstaklega hrifin af útfærsl- um Chloé á litla sixtískjólnum eins og á með- fylgjandi mynd). Það er hægt að vera í kjólum á daginn við ballerínuskó, eða já, Converse-strigaskóm ef maður er rokkgella, eða yfir bikiníið á ströndinni við sandala. Talandi um skó þá ættu allar konur að fjárfesta í þægilegum flötum ballerínuskóm og einu stykki „ thong“ sandölum sem fást í skemmtilegum glimmerútgáf- um eða jafnvel með semelíusteinum í anda MiuMiu. Stuttbuxur og hné- buxur eru áfram vinsælar í sumar en þær eru fullkomnar í borgarferð- ina með ermalausum bol og sólgleraugum. Stjörnurnar fara svo ætíð með gríðarstór Pashmina-sjöl í flugvélarnar en það er einkar þægilegt að kúra undir þeim í kaldri loftræstingu. Fyrir ströndina eða exótískari staði þá eru svokallaðir „kaftan“-kjólar (lausir með indversku sniði og síðum ermum) fullkomnir í hitann. Svo er bara að muna að setja SPF 40 á nefið og jafnvel hatt eða slæðu á höfuðið svo að maður komi ekki eins og sveskja heim úr sumarfríinu. Svalt sumarfrí? Hönnunarparið Thea Bregazzi og Justin Thornton skapaði merkið Preen á síðasta áratugi. Í sumar náði Preen nýjum hæðum með lit- ríkri og þröngri „nineties“-línu og kjólarnir þeirra eru á óskalista allra helstu tískudrósa heims. Bregazzi og Thornton búa í Nott- ing Hill í London og hafa hingað til verið þekkt fyrir jarðarliti og svart og hvítt. Daður þeirra við neonliti kom þeim rækilega á tískukortið í ár og þau eru frumkvöðlar hinn- ar nýju „ Body-con“ tísku en það þýðir „líkamsmeðvitund“ – sumsé níðþröng föt! Bregazzi fékk inn- blástur frá hönnuðum eins og Azz- edine Alaia og Hervé Léger. „Ég var að hugsa um fyrirsætuna Yas- min Le Bon sirka 1989“ segir hún. Við kjólana, sem eru ýmist í neon- bleiku, grænu, gulu eða mjúkum kamellit, eru svo rokkuð ökkla- stígvél í svipuðum litaafbrigðum. Nú er Preen selt á yfir 120 stöð- um um allan heim og haust/vetrar- línan hefur líka fengið margróma lof. Þar gefur að líta kamelfrakka, þrönga kjóla í hindberjableiku og plómurauðu við þykkar sokkabux- ur og ökklastígvél. En fyrir þær sem ekki hafa efni á níutíu þús- und króna kjól þá hafa hjónakorn- in einnig hannað Preen línur fyrir TopShop í London undanfarin tvö ár.
Síða 1
Síða 2
Síða 3
Síða 4
Síða 5
Síða 6
Síða 7
Síða 8
Síða 9
Síða 10
Síða 11
Síða 12
Síða 13
Síða 14
Síða 15
Síða 16
Síða 17
Síða 18
Síða 19
Síða 20
Síða 21
Síða 22
Síða 23
Síða 24
Síða 25
Síða 26
Síða 27
Síða 28
Síða 29
Síða 30
Síða 31
Síða 32
Síða 33
Síða 34
Síða 35
Síða 36
Síða 37
Síða 38
Síða 39
Síða 40
Síða 41
Síða 42
Síða 43
Síða 44
Síða 45
Síða 46
Síða 47
Síða 48
Síða 49
Síða 50
Síða 51
Síða 52
Síða 53
Síða 54
Síða 55
Síða 56
Síða 57
Síða 58
Síða 59
Síða 60
Síða 61
Síða 62
Síða 63
Síða 64
Síða 65
Síða 66
Síða 67
Síða 68
Síða 69
Síða 70
Síða 71
Síða 72
Síða 73
Síða 74
Síða 75
Síða 76
Síða 77
Síða 78
Síða 79
Síða 80
Síða 81
Síða 82
Síða 83
Síða 84
Síða 85
Síða 86
Síða 87
Síða 88

x

Fréttablaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.