Fréttablaðið - 16.06.2007, Síða 79
Rúmlega ein milljón eintaka af
Playstation 3-leikjatölvunni hefur
selst í Evr-
ópu og Ástr-
alíu. Millj-
ónasta ein-
takið seldist
eftir níu og
hálfa viku,
sem er betri
árangur en
Sony náði
með fyrstu
tveimur
Playstation-
tölvunun.
Þrátt fyrir
að Playstat-
ion 3 hafi
komið út í Japan í nóvember á síð-
asta ári hefur leikjatölvan næstum
því selst í milljónum eintaka á því
svæði. Í Norður-Ameríku hefur
tölvan selst í yfir 1,3 milljónum
eintaka. Leikurinn Resistance:
Fall of Man hefur selst í 600 þús-
und eintökum í Evrópu og Motor-
storm í yfir hálfri milljón.
Helga Dýrfinna Magnúsdóttir, 23
ára gömul Kópavogsmær, tekur
þátt í Miss Tourism í ár. Keppnin
fer fram í Kína og leggur Helga
uppí langferðina í byrjun júlí. „Ég
tók þátt í Hawaiian Tropic-keppn-
inni og lenti þar í öðru sæti. Upp-
haflega stóð síðan til að ég færi til
Las Vegas en þegar það datt upp-
fyrir stakk Ásdís Rán Gunnars-
dóttir uppá því að ég tæki þátt í
þessari keppni,“ útskýrir Helga
sem var að vonum spennt fyrir
ferðinni. „Mér líst alveg rosalega
vel á þetta enda hef ég aldrei áður
komið til Kína,“ bætir hún við.
Helga ætti að vera sjóuð í keppn-
um því hún hefur verið nokkuð
iðin við kolann við að koma sér
á framfæri. Hún hefur tvívegis
tekið þátt í Ungfrú Reykjavík og
svo prófaði hún að syngja fyrir
hina harðskeyttu dómnefnd í Idol-
leit Stöðvar 2. Keyrði alla leið til
Akureyrar eftir að hafa misst af
inntökuprófunum í höfuðborg-
inni. „Ég hef verið að læra söng
en tókst ekki að yfirbuga stress-
ið sem fylgir því að syngja fyrir
framan myndavélarnar,“ útskýr-
ir Helga sem hefur þó ekki lagt
sönginn á hilluna því hún hyggst
þenja raddböndin fyrir dómefnd-
ina í Kína en þátttakendur reyna
með sér í hæfileikakeppni. „Ég
hef verið að bræða það með mér
að syngja Somewhere Over the
Rainbow,“ segir Helga.
Syngur fyrir Kínverja
Hljómsveitirnar Benni Hemm
Hemm og Stórsveit Nix Noltes
fá fjórar stjörnur af fimm mögu-
legum á heimasíðunni music-
omh.com fyrir frammistöðu sína
á tónleikum á staðnum Catch í
London.
„Það er svona tónlist sem vex
inni í þér eins og sú hlýja tilfinn-
ing sem þú færð þegar einhver
sem þú hefur áhuga á brosir til
þín í lestinni á leiðinni heim,“
segir í umsögninni um Benna
Hemm Hemm. Tónlist Stórsveit-
ar Nix Noltes er lýst sem blöndu
af sígaunapönki með íslenskum
þjóðlagaáhrifum sem ná aftur
fyrir þann tíma sem Emilíana
Torrini kom fram á sjónarsviðið.
„London þarf á fleiri hljóm-
sveitum eins og Benna Hemm
Hemm og Stórsveit Nix Noltes á
að halda til að matreiða fyrir sig
svona fína rétti og kenna okkur
Bretum hvernig á að njóta oftar
svona góðrar tónlistar.“
Fá fjórar stjörnur
Kínversk yfirvöld hafa klippt í
burtu helming atriðanna með kín-
verska leikaranum Chow Yun-Fat
úr framhaldsmyndinni Pirates of
the Caribbean. Ástæðan er sú að
þau eru talin móðga kínverskan
almenning.
Chow Yun-Fat kemur aðeins
fram í tíu mínútur í kínversku út-
gáfunni í stað þeirra tuttugu mín-
útna sem eru í upprunalegu útgáf-
unni. Yfirvöldin vildu ekki gefa
frekari ástæður fyrir aðgerðum
sínum en kínverska tímaritið Pop-
ular Cinema hefur skýringuna á
reiðum höndum: „Sjóræninginn
sem Chow leikur er sköllóttur, ör-
óttur með langt skegg og langar
neglur. Þessi ímynd er í takt við
hugmyndir Hollywood um að gera
Kínverja að illmennum.“
Klipptur út
út í Kína
Ein milljón
eintaka seld