Fréttablaðið - 16.06.2007, Side 83

Fréttablaðið - 16.06.2007, Side 83
P IP A R • S ÍA • 7 11 31 Nánari upplýsingar á www.landsvirkjun.is og í síma 515 9000 „Hvað er með Ásum?“ Ævintýraferð í goðheima fyrir alla fjölskylduna. Goðastyttur Hallsteins Sigurðssonar við texta Árna Björnssonar, þjóðháttafræðings. Laxárstöðvar í Aðaldal Orka í iðrum jarðar! Heimsækið gestastofuna í Kröflu, sjáið myndir frá Kröflueldum. Kynnist jarðvarma og orkuvinnslu. Kröflustöð í Mývatnssveit Kraftverk Listaverk sem sjaldan hafa komið fyrir almenn- ingssjónir – mörg hver með áhugaverða sögu sem tengist Landsvirkjun og orkumálum. Kjarval, Ásgrímur, Gunnlaugur Blöndal og fleiri. Ljósafossstöð við Sog Kynnist Kárahnjúkavirkjun! Upplýsingar um Kárahnjúkaframkvæmdirnar ásamt ferðamennsku og útivist norðan Vatnajökuls. Góður viðkomustaður áður en haldið er upp á Fljótsdalsheiði. Végarður í Fljótsdal Líf í Þjórsárdal Ómissandi viðkomustaður á leiðinni inn á Sprengisand og í Veiðivötn. Sultartangastöð ofan Þjórsárdals Heimsókn í Húnaþing Kynnið ykkur orkumál og starfsemi Blöndustöðvar í starfsmannahúsi stöðvarinnar. Blöndustöð, Húnaþingi Kynnist okkur af eigin raun Heimsækið Landsvirkjun í sumar. Stöðvarnar eru opnar alla eftirmiðdaga í sumar. Komdu í heimsókn í sumar! Landsvirkjun býður landsmönnum að heimsækja sex stöðvar í sumar þar sem bæði er hægt að kynna sér staðreyndir um umhverfisvæna íslenska orku og skoða fjölbreyttar sýningar um menningu, list og sögu. Íslensk orkumál og virkjanir – alþjóðleg fyrirmynd í umhverfismálum Þjálfari kvennalands- liðsins beitir skemmtilegri að- ferð til að peppa stelpurnar upp. „Við gerum þetta fyrir alla leiki,“ sagði Sigurður um myndband sem hann sýnir daginn fyrir leik og rétt fyrir upphafsspyrnuna. „Þetta er orðið hluti af undir- búningi liðsins. Ég er með mynd- brot úr íslenskum fótbolta, nú síð- ast reyndar bara frá kvennalands- liðinu. Það er ætlunin með þessu að kveikja á þjóðarstoltinu, sem reyndar er mikið fyrir. Þetta hefur gefist vel,“ sagði Sigurður en há- dramatísk tónlist er undir mynd- unum sem kveikja neistann í leik- mönnum. Þjóðarstoltið rifið upp Kvennalandsliðið í knatt- spyrnu leikur klukkan 14 í dag mjög mikilvægan leik gegn Frökkum í undankeppni EM í knattspyrnu. KSÍ setur markið hátt, stefnan er að bæta aðstókn- armetið á Laugardalsvelli á kvennalandsleik. Aðsóknarmetið er 2.974 manns sem sáu leik Ís- lands og Englands árið 2005. „Við vonumst til að sem flestir mæti og styðji okkur, ég hvet alla til að mæta og sjá tvö góð lið mætast,“ sagði Sigurður Ragnar Eyjólfsson landsliðsþjálfari og það er ekki annað hægt en að taka undir þau orð. Aðeins 1.000 krónur kostar á leikinn en frítt er fyrir sextán ára og yngri. Allir á völlinn Rappstjarnan og sprelligos- inn 50 Cent þarf ekki að bera vitni vegna ákæru á hendur Allen Iverson síðar í mánuðinum. Dóm- ari kvað þennan úrskurð í gær en Iverson er gefið að sök að hafa lamið mann í andlitið með flösku. 50 Cent, eða Curtis Jackson III eins og hann heitir réttu nafni, var ekki viðriðinn slagsmálin en hann er náinn vinur öryggisvarða Iverson sem áttu þátt í slagsmál- unum. Vegna þessa hefði hann þurft að mæta í réttarsalinn en til þess kom þó ekki. Ber ekki vitni gegn Iverson Arnór Guðjohnsen, faðir og umboðsmaður Eiðs Smára, sagði við enska fjölmiðla í gær að Eiður yrði líklega áfram í herbúð- um Barcelona á næsta tímabili. Orðalagið var ekki það sterkt að hann útilokaði sölu frá Barcelona en sagði drenginn vera ánægðan hjá Katalóníufélaginu. Fjölmiðlar á Spáni og Englandi hafa verið duglegir við að orða Eið við félög á borð við Fenerbahce, Newcastle og nú síðast enn og aftur Manchester United. Eiður hefur aldrei farið leynt með dýrk- un sína á Spáni og Barcelona, sem á þó lokaorðið í framtíð hans. „Í sannleika sagt hef ég ekki heyrt neitt frá Manchester United. Þetta eru bara vangaveltur. Ég held að Barcelona vilji bíða með sín mál þar til eftir helgina. Þá er kannski hægt að fá skýrari mynd á það sem mun gerast. En á þessu stigi er ekkert að frétta,“ sagði Arnór við Sky-fréttastofuna í gær. Aðspurður hvort Eiður yrði áfram hjá Barcelona svaraði Arnór: „Líklega. Hann er mjög ánægður hérna. Hann hefur ekki spilað mikið eftir áramót en á meðan Samuel Eto´o var meiddur gerði hann nokkuð vel. Hann vill því fá annað tækifæri á næsta tímabili til að sanna sig enn frek- ar,“ sagði Arnór Guðjohnsen um málefni landsliðsfyrirliðans. Eiður Smári vill annað tímabil til að sanna sig

x

Fréttablaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.