Fréttablaðið


Fréttablaðið - 13.07.2007, Qupperneq 2

Fréttablaðið - 13.07.2007, Qupperneq 2
Vegaframkvæmdir við Reykjanesbraut milli Kópavogs og Hafnarfjarðar þykja illa merktar og stórhættulegar, að mati Umferðarstofu og Vegagerðar. „Umferðarstofu hafa aldrei borist jafn margar kvartanir vegna vegaframkvæmda,“ segir Einar Magnús Magnússon, upplýsinga- fulltrúi Umferðarstofu. Hann segir nauðsynlegt að lögreglu verði veitt verkfæri, til dæmis í formi reglugerðar, til að taka fastar á þessum málum en unnt er í dag. Guðbrandur Sigurðsson hjá umferðardeild lögreglu höfuðborg- arsvæðisins, segir lögreglu nýlega hafa gert úttekt á öllum framkvæmdum við Reykjanes- braut. Fjölmargar athugasemdir hafi verið gerð- ar og þeim komið til Vega- gerðarinnar, sem sér um eft- irlit með verk- inu, og fleiri sem koma að því. Lög kveði á um að framkvæmdir séu merktar en hins vegar skorti reglur með laga- legt gildi um hvernig skuli staðið að þeim. „Til er leiðbeinandi reglu- gerð frá árinu 1997, en hún hefur ekki regluígildi,“ segir Guðbrand- ur. Hann segir lögreglu í vanda þar sem laga- eða reglugerðarákvæði skorti. Banaslys varð í nóvember á síðasta ári á vegkaflanum. Ökumaður var drukkinn en rannsóknarnefnd umferðarslysa segir í skýrslu um slysið að ljóst sé að aðgerðir sem áttu að stuðla að bættum merkingum hafi brugðist, þrátt fyrir ítrekaðar kvartanir vegfarenda og ábendingar lögreglu. Í skýrslunni kemur einnig fram að nauðsynlegt sé að útbúa reglugerð um merkingar á vinnusvæðum, auk þess sem lögregla verði að geta beitt viðurlögum ef verktaki brjóti ítrekað af sér. Vegagerðin hefur eftirlitsskyldu með verktakanum sem þarna vinnur. Gunnar Gunnarsson aðstoðarvegamálastjóri segir kvartanir vegfarenda og ábend- ingar lögreglu hafa borist til Vegagerðarinnar. Hann hafi sent framkvæmdaeftirlitinu póst 5. júlí vegna þessa en þar segi: „Þarna þarf greinilega að bæta úr. Eftirlitið verður að taka á þessu með fullri hörku áður en fleiri slys verða.“ Halldór Ingólfsson, eigandi verktakafyrirtækisins Glaums, sem annast framkvæmdirnar, segir að leyst hafi verið úr flestum ábendingum lögreglu. Helsti vandinn sé að hámarkshraði um svæðið sé of mikill. Merkingar séu meira en nægar. Lögregluna skortir úrræði vegna verktaka Lögreglu skortir úrræði til að taka á verktökum sem ítrekað verða uppvísir að því að merkja vegaframkvæmdir ekki með viðunandi hætti. Umferðarstofa og Vegagerð telja vinnu á Reykjanesbraut mjög hættulega. Þörf sé á aðgerðum. Yfirvöld í Bretlandi íhuga aðgerðir gegn rússnesku ríkis- stjórninni eftir að saksóknarar í Rússlandi neituðu á mánudag að framselja fyrrum KGB-manninn Andrei Lugovoi, sem er grunaður um að hafa drepið Alexander Lit- vinenko í London í fyrra. Breska blaðið The Guardian greindi frá þessu í gær. Meðal þeirra aðgerða sem utan- ríkisráðherra Bretlands, David Miliband, veltir fyrir sér er að reka rússneska diplómata úr landi og að hætta samvinnu við Rússa á ýmsum sviðum eins og viðskipt- um, mennta- og félagsmálum og í baráttunni gegn hryðjuverkum. Talið er að Miliband greini ekki frá ákvörðun sinni fyrr en í næstu viku. Yfirvöld í Bretlandi búa sig undir að stjórnvöld í Rússlandi svari í sömu mynt og reki breska diplómata úr landi. Sendiherra Breta í Moskvu, Tony Brenton, hefur nú þegar verið áreittur á götum Moskvu, og segir The Guardian að stjórnvöld í Rússlandi hafi staðið á bak við það. Auk þess hafa rússneskir embættismenn lokað skrifstofum breska menningarráðsins í Jekaterinburg. Vladimír Pútín Rússlandsforseti er að sögn The Guardian reiður yfir því að bresk stjórnvöld hafi ekki viljað framselja auðkýfinginn Boris Berezovsky sem er í útlegð í Bretlandi. Berezovsky hefur verið ákærður fyrir peningaþvætti í Rússlandi og fyrir að hafa skipu- lagt valdarán gegn Pútín. Samskiptin við suðumark Öll barrtré innan þinghelgi Þingvalla, um eins ferkílómetra svæði, verða felld á næstu árum. Barrtré á svæðinu í kring verða einnig grisjuð verulega. Trén verða felld vegna þess að þau eru ekki hluti af upprunalegum trjágróðri á Þingvöllum. Um nokkur hundruð tré er að ræða. Sigurður K. Oddsson þjóðgarðsvörður segir að þegar sótt hafi verið um að Þingvellir verði á heimsminjaskrá hafi Sameinuðu þjóðirnar tilgreint að barrtrén skyldu fjarlægð. Í þjóð- görðum sé ekki venjan að gróðursetja fram- andi trjátegundir, og stefnan sé að varðveita upprunalegan gróður. Þinghelgin nær frá Þingvallavatni inn að Öxarárfossi til norðurs og frá efri brún Almannagjár að Flosagjá til austurs. „Ef landeigendurnir sjálfir vilja gera þetta þá er það bara þannig, en ég held að það séu ákaflega margir á móti þessu,“ segir Brynjólf- ur Jónsson, framkvæmdastjóri Skógræktarfé- lags Íslands. „Þetta er gróður sem hefur sett svip á staðinn og er merkar minjar um skóg- ræktarsögu svæðisins.“ Í könnun sem Gallup gerði fyrir Skógrækt ríkisins árið 2004 var meðal annars spurt um afstöðu fólks til barrtrjáa á Þingvöllum. Aðeins fjögur prósent töldu að útrýma ætti barrtrjám á Þingvöllum, en mikill meirihluti taldi að þeim ætti að þyrma. Fella öll barrtré innan þinghelgi „Fjöldi sjálfboðaliðanna svaraði til um fjörutíu prósenta af íbúum hreppsins,“ segir Jenný Jensdóttir, oddviti Kaldrananes- hrepps, um nýlegan starfsdag vegna Bryggjuhátíðar á Drangs- nesi. Bryggjuhátíðin verður laugar- daginn 21. júlí að þessu sinni. Meðal fjölmargra dagskrárliða eru dorgveiðikeppni, grill, söngvarakeppni og varðeldur. Að sögn Jennýjar hafa áðurnefndir sjálfboðaliðar unnið ötullega við margvíslegan undirbúning á borð við hreinsun bæjarins og öflun aðfanga. „Það eru allir velkomn- ir,“ segir oddvitinn. Hreppsfólk í sjálfboðastarfi Umdeildum sýknudómi yfir ungum pólskum manni sem ákærður var fyrir að nauðga stúlku á Hótel Sögu í mars hefur verið áfrýjað til Hæstaréttar. Þetta staðfestir Margrét Gunnlaugsdóttir, lögmaður og réttargæslumaður stúlkunnar. Meint nauðgun átti sér stað á salerni í kjallara hótelsins. Maðurinn ýtti konunni inn á salernisbás og niður á gólf og hafði við hana samræði án hennar samþykkis. Hann var sýknaður þar sem athæfið þótti ekki ofbeldi í skilningi laga og honum mátti ekki vera ljóst að stúlkan væri honum andhverf. Dómnum um- deilda áfrýjað Örn, voru þetta langir tónleik- ar? Félagarnir Hilmar Egill Sveinbjörnsson og Gunnar Júlíus Helgason hófu á föstudag í síðustu viku göngu þvert yfir Ísland frá Fonti á Langanesi út á Reykjanestá. Að því er segir á heimasíðu sveitarfélagsins Voga á Vatnsleysuströnd ganga félagarnir til styrktar Ungmenna- félaginu Þrótti í Vogum. Áheitum er safnað meðal einstaklinga og fyrirtækja. Gangan er 550 kílómetrar og er áætlað að hún taki þrjár vikur. Hreppurinn greiðir göngugörp- unum „69,5 krónu á hvern genginn kílómeter, auk 45 prósent torfæruálags, í samræmi við akstursgjald ríkisstarfsmanna,“ eins og segir í bókun bæjarráðs . Fá áheit með torfæruálagi
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64

x

Fréttablaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.