Fréttablaðið - 13.07.2007, Blaðsíða 56
Kom ekki til greina að spila í KA-búningnum
Forráðamenn 1. deildar-
félagsins Fjarðabyggðar undrast
vinnubrögð KSÍ í sumar. Félagið
er ekki sátt við hversu oft það þarf
að spila seint á kvöldin á útivöllum
en mikill ferðakostnaður bætist
þar með ofan á kostnað við gist-
ingu og síðast en ekki síst vinnu-
tap hjá um 20 manna hópi leik-
manna og annarra starfsmanna.
Ferðakostnaður Fjarðabyggðar
í útileiki er um 300 þúsund krónur
til Reykjavíkur en ferðir til Sand-
gerðis, Ólafsvíkur og Vestmanna-
eyja eru enn dýrari. „Gisting fyrir
hópinn kostar um 50 þúsund en
svo er það vinnutapið sem klúbb-
urinn og leikmenn taka bara á sig.
Án skilnings leikmanna og þrot-
lausrar sjálfboðavinnu væri þetta
ekki hægt,“ segir Elvar Jónsson,
aðstoðarþjálfari og stjórnarmaður
hjá Fjarðabyggð.
Austfirðingar samþykktu að
færa heimaleik sinn gegn Njarðvík
til klukkan 18 til að Suðurnesjaliðið
kæmist heim með flugi um kvöld-
ið. „Við sögðum já við því strax
með því munnlega skilyrði frá KSÍ
að komið yrði til móts við okkur í
kringum mótið á sama hátt en það
hefur ekki gerst enn þá,“ segir
Elvar. Ferðakostnaður félagsins er
um fimm milljónir króna á ári.
Fjarðabyggð leitaðist eftir því
að færa leiki sína til að ná flugi
heim en komu að tómum kofunum
hjá KSÍ. „Við fengum þau svör frá
KSÍ að það væri einfaldlega ekki
hægt,“ sagði Elvar sem var sér-
staklega ósáttur með vinnubrögð
KSÍ í einum leik, útileiknum gegn
Víkingum í Ólafsvík.
„Víkingar samþykktu fegins
hendi að færa leikinn en KSÍ neit-
aði á grundvelli dómaramála. Við
hefðum aldrei náð flugi heim en
við vorum komnir til Reykjavíkur
um miðja nótt og flugum heim
snemma um morguninn. Við erum
mjög ósáttir með það. Við sóttum
líka um fleiri leiki en það gekk ekk-
ert,“ segir Elvar en sex útileikir
félagsins af ellefu eru klukkan 20.
Birkir Sveinsson mótastjóri
sagði við Fréttablaðið í gær að
dómararnir hefðu einfaldlega ekki
komist fyrr til Ólafsvíkur, en ann-
ars hefði verið auðvelt að færa
leikinn. Beiðnin um að færa hann
hefði einfaldlega komið eftir að
búið var að raða niður leikjunum.
Geir Þorsteinsson, formaður
KSÍ, var á Austurlandi nýverið
þar sem Fjarðabúar vöktu athygli
á málinu. „Hann sýndi þessu mik-
inn skilning og var að mér skilst
ósáttur með sína menn,“ sagði
Elvar. Hann benti einnig á að KSÍ
hafi fært leik af helgi og inn í
miðja viku vegna U19 ára móts
landsliða.
„Við hefðum viljað fá upplýsing-
ar um mótið fyrr til að sækja um
breytingar eftir því. Það lá fyrir að
fresta þurfti leikjum vegna móts-
ins,“ segir Elvar. Ferðakostnaður-
inn er mikill og KSÍ getur enn sem
komið er ekki komið til móts við
félög af landsbyggðinni með ferða-
kostnað.
„Það er pólitísk ákvörðun hjá
þeim að hafa engan ferðasjóð. KSÍ
hefur aftur á móti þrýst vel á rík-
isstjórnina og nú er kominn á
ferðajöfnunarsjóður fyrir öll félög
í öllum íþróttagreinum á landinu.
Mér skilst að um 30 milljónum sé
úthlutað á árinu en ég held að
kostnaður íþróttahreyfingarinnar
sé um 700 milljónir á ári,“ sagði
Elvar sem er áhyggjufullur hvað
framtíðina varðar.
„Ég veit hreinlega ekki hversu
lengi við getum staðið undir þessu.
Ég vil gjarnan sjá KSÍ koma til
móts við félög utan af landi með
meiri sveigjanleika varðandi
ferðalög, til dæmis gætum við
spilað alla útileikina okkar á laug-
ardögum, en einhverjum verður
alltaf mismunað, þannig er það
bara.“
Fjarðabyggð er ekki sátt við hversu lítinn skilning félagið fær frá KSÍ. Ekkert er komið til móts við félagið
vegna gríðarlegs ferðakostnaðar sem kemur niður á starfsemi félagsins.
Þórir Hákonarson, fram-
kvæmdastjóri KSÍ, hafði lítið fram
að færa þegar Fréttablaðið ræddi
við hann í gær. Þórir vildi ekkert
tjá sig um mál ÍA og Keflavíkur
sem hann situr yfir og skoðar um
þessar mundir. Hann staðfesti þó
að greinargerðir sem hann óskaði
eftir frá félögunum vegna atvika
sem áttu sér stað eftir leik félag-
anna í Landsbankadeildinni í síð-
ustu viku væru komnar í hús.
„Ég er enn ekki búinn að taka
neina ákvörðun í þessu. Hún verð-
ur tekin á næstu dögum,“ sagði
Þórir. Framkvæmdastjórinn getur
skotið einstaka tilvikum til aga-
nefndar sem hittist á fundum á
þriðjudögum. Þórir sagðist ætla
að vera búinn að ákveða sig fyrir
næsta fund.
Þórir var frekar þurr á manninn
og vildi ekki einu sinni tjá sig um
hvort greinargerðirnar væru lang-
ar eða stuttar. Það var engin svör
að hafa..
Þórir vildi heldur ekki tjá sig
um ummæli Magnúsar Gylfason-
ar, þjálfara Víkings, í vikunni.
Magnús sagði eftir leikinn gegn
ÍA að Guðjón Þórðarson, og fleiri
þjálfarar í deildinni, fengju betri
meðferð þar sem þeir kvörtuðu
frekar í dómurum en aðrir.
„Mér fannst dómgæslan skelfi-
leg og vil að það komi fram.
Maður á kannski að taka sömu
taktík og Gaui og fleiri og hrauna
yfir dómara til að fá betri dóm-
gæslu,“ sagði Magnús.
Þórir sagðist hafa séð ummælin
en neitaði að tjá sig um einstaka
atvik. „Ég tjái mig ekki um þetta
mál að svo stöddu.“
Ummæli Magnúsar minna um
margt á ummæli Leifs Garðars-
sonar, þjálfara Fylkis, og Kristj-
áns Guðmundssonar, þjálfara
Keflavíkur í fyrra. Þar sakaði
Kristján þáverandi þjálfara ÍA,
Ólaf Þórðarson, um að stjórna
dómgæslunni og Leifur sagðist
ekki fá réttláta meðferð þar sem
hann væri nýr þjálfari í deildinni.
Fyrir ummælin fékk Kristján ávít-
un og sekt frá KSÍ en Leifur var
áminntur.
Engin ákvörðun enn hjá Þóri
Guðjón Árni Antoníus-
son, varnarmaður Keflvíkinga, er
ekki fótbrotinn og stefnir
ótrauður á að spila leikinn gegn
KR á sunnudaginn. Guðjón var
fluttur með sjúkrabíl eftir
samstuð í leiknum gegn Þrótti á
miðvikudag og var í fyrstu óttast
að hann væri fótbrotinn.
„Ég slapp vel en þegar ég
heyrði að þetta gæti verið fótbrot
var mér nú ekki alveg sama.
Þetta var mjög vont og ég gat
ekkert stigið í fótinn en ég held
að legghlífin hafi tekið mesta
höggið og bjargað mér eitthvað.
Ég má ekkert æfa strax en ég sé
til hvernig ég er á laugardaginn,“
sagði Guðjón Árni í gær en hann
var kominn aftur inn í klefa
Keflavíkur að leik loknum.
Mun betur fór
en á horfðist
Norðmaðurinn André
Schei Lindbæk sem lék með FH í
fyrrasumar gengur ekkert að
komast á samning.
Lindbæk gekk til liðs við
Íslandsmeistara FH seinni hluta
síðasta sumars, spilaði fjóra leiki
en datt síðan út úr byrjunarliðinu
og fór burt frá liðinu. Hann
spilaði sem áhugamaður með
danska 1. deildarliðinu Köge í
vetur en hefur ekki enn tekst að
komast á atvinnumannasamning.
Lindbæk á að baki litríkan feril
en hann hefur spilað með liðum
eins og Lyn, Skeid, Las Palmas,
Numancia og Viking.
Nú leitar hann sér að nýju
félagi og er að reyna að komast
aftur í norsku úrvalsdeildina.
Hann æfir nú með Start í von um
að komast á samning.
André Lindbæk
er enn án liðs
Sigurbjörn Hafþórsson
skoraði sigurmark Keflvíkinga í
1-0 bikarsigrinum á Þrótti á
miðvikudaginn. Leikmenn Þróttar
mótmæltu markinu ákaft og töldu
að Sigurbjörn hefði skorað með
hendinni.
„Ég setti hann inn með
mjöðminni eða lærinu,“ sagði
Sigurbjörn við Fréttablaðið en
hann potaði sendingu frá Símun
Samuelsen yfir línuna. „Varnar-
maðurinn næst mér sá þetta
alveg. Þetta var aldrei hendi og
það var sætt að skora,“ sagði
markaskorarinn sem var að skora
sitt fyrsta mark fyrir Keflavík.
Skoraði ekki
með hendinni