Fréttablaðið - 13.07.2007, Blaðsíða 26
BLS. 2 | sirkus | 13. JÚLÍ 2007
H öddi Magg heitir samloka sem nefnd er í höfuðið á íþróttafrétta-
manninum Herði Magnússyni og seld
er á veitingastaðnum Áttunni í Hafn-
arfirði. Áttan er athvarf Mafíunnar,
stuðningsmannafélags FH, en Hörður
lék knattspyrnu með liðinu um árabil.
Í samtali við Sirkus sagðist Hörður
ekki hafa heyrt af samlokunni góðu.
„Ég hef ekki einu sinni komið inn á
þennan stað,“ sagði íþrótta-
fréttamaðurinn knái.
Arnar Gísli Jensson,
rekstrarstjóri Áttunnar, segir
samlokunafnið verið runnið
undan rifjum Mafíunnar. „Ég
spurði Mafíuna um nafn og
mér skilst að Hörður hafi verið
kallaður þetta á sínum tíma,“
segir Arnar Gísli, sem býður
auk þess upp á pizzur sem
kallast Íslandsmeistarinn og
Mafíaspecial sem og ham-
borgara sem er nefndur Ris-
inn, eftir knattspyrnuhúsi
FH.
Það er ljóst að stuðnings-
menn FH hafa ekki gleymt
Herði Magnússyni enda skor-
aði hann 84 mörk í 174 leikj-
um fyrir Fimleikafélagið, sem
verður að teljast frábær
árangur. „Ætli maður verði ekki að
telja þetta einhvers konar heiður,“
sagði Hörður um samlokuna sem er
nefnd í höfuðið á honum.
En ætli Hörður fái samlokuna fría
ef hann mætir á Áttuna? „Að sjálf-
sögðu fær hann hana fría,“ segir Arnar
Gísli, rekstrarstjóri Áttunnar. „Og einn
kaldan með.“
Heyrst hefur
Þ orgrímur Þráinsson á tvö ár í fimmtugt. Samt hefur hann aldrei litið betur út. Stífar æfingar í Laugum hafa skilað Þorgrími stinnum og stælt-
um líkama sem eftir er tekið. Sannkallað musteri.
„Það er hluti af mínum lífsstíl að æfa daglega. Ég á
fastan tíma milli hálf tólf og eitt á hverjum degi,
nema kannski á sunnudögum,“ segir Þorgrímur sem
fór óhefðbundna leið í æfingum sínum. „Ég fann
flottasta gæjann í Laugum, sem heitir Halldór Daða-
son, og fékk að æfa með honum. Hann er fitness-gæi
sem ég fylgi og hann lemur mig áfram. Ég verð að við-
urkenna að ég datt í lukkupotinn með hann.“
Það eru engu upp á Þorgrím logið. Hann hefur æftt
stíft síðustu mánuði og uppskorið árangur erfiðisins.
Maginn orðinn eins og þvottabretti og það af bestu
gerð. „Ég geri um 400 magaæfingar á dag. Eftir tuttugu
ár í fótbolta eru hnén og aðrar stoðir ekki upp á marga
fiska svo ég læt hlaupin eiga sig,“ segir Þorgrímur sem
lyftir þess í stað lóðum. „Ég er bara grannur og spengi-
legur. Vil bara halda uppi góðum standard og vera góð
fyrirmynd ´59 kynslóðarinnar.“
Með magaæfingunum 400 slær Þorgrímur sjálfum
Simon Cowell við. Cowell, sem er hvað þekktastur fyrir
störf sín sem dómari í Idol-keppninni, þykir vera í ansi
góðu formi en hann gerir 300 magaæfingar á dag,
sama hvar hann er staddur. Þótt Cowell sé ári yngri en
Þorgrímur á hann ekki roð í íslenska víkinginn.
ÞORGRÍMUR ÞRÁINSSON HEFUR ALDREI LITIÐ BETUR ÚT
ÞOKKALEGUR Þorgrímur Þráinsson lítur betur út núna en hann gerði þegar hann var upp á sitt besta í fótboltan-
um hjá Val. Hann æfir líka daglega í einn og hálfan tíma í senn. MYND/RÓSA
400
MAGAÆFINGAR
Á DAG
„Hann er flott vaxinn og með góða maga-
vöðva. Það sést að hann er búinn að æfa vel
og heldur sér í góðu formi. Ef eitthvað er
hægt að setja út á hann mætti hann vinna í
brjóstvöðvunum aðeins betur … þá
yrði hann SÚPER kroppur;)“
Freyja Sigurðardóttir, fitnesskona
„Hann er mjög flottur, kallinn, líkist
helst módeli í Calvin Klein-auglýs-
ingu. Ég hugsa að ég gæti neglt fyrir
hann samning við erlenda
módelskrif-
stofu.“
Ásdís Rán
Gunnarsdótt-
ir, eigandi Ice
model
manage-
ment.
Hvað segja stelpurnar?
Skinkusamlokan Höddi Magg
HÖDDI MAGG Samloka með skinku, osti, grænmeti og sósu er
vinsæl meðal stuðningsmanna Mafíunnar. Arnar Gísli sýnir
hér samlokuna góðu.
HÖRÐUR
MAGNÚSSON
Fær eina
Hödda
Magg fría
ef hann
heimsækir
Áttuna.
Þórhallur á Spáni
Lítið hefur farið fyrir Þórhalli Gunnarssyni
í Kastljósinu að undanförnu. Það á sér
þó afar eðlilegar skýringar því Þórhallur
og kona hans Brynja Nordquist
eru stödd á Spáni
þessa dagana þar
sem þau spila golf frá
morgni til kvölds.
Megintilgangur
ferðarinnar er að slappa
af og safna kröftum
fyrir veturinn
enda eru ýmis
stór verkefni í
bígerð á innlendri deild Sjónvarpsins. Eitt
þeirra er spurningaþáttur sem er keppni
á milli sveitarfélaga og hefst þann 14.
september næstkomandi. Ekki hefur
verið gefið upp hver mun stjórna
þættinum en Þórhallur sagði í viðtali við
Fréttablaðið í vikunni að það yrði ekki
Ómar Ragnarsson, en sá stjórnaði
einmitt samskonar spurningaþætti fyrir
einhverjum árum síðan.
Sævar Karl græðir
Samkvæmt upplýsingum Sirkuss hafa
Sævar Karl Ólason og Erla
Þórarinsdóttir gengið frá
sölu á húsnæði og verslun
sinni í Bankastræti í
Reykjavík. Kaupandi
mun vera Jón
Scheving
Thorsteinsson,
sem kenndur er
við fjárfestinga-
félagið Arev.
Samkvæmt
sömu heimildum
er kaupverðið um 600 milljónir króna,
300 fyrir verslunina og annað eins fyrir
húseignina. Sævar Karl hefur rekið
tískuverslun í Bankastrætinu í rúm þrjátíu
ár. Fjölmargir munu hafa sýnt áhuga á
því að kaupa verslunina, meðal annarra
fótboltatvíburarnir Arnar og Bjarki
Gunnlaugssynir. Þeir bræður eru
kunnir fagurkerar
sem eru jafnan vel
með á nótunum í
tískuheiminum og
hafa því hugsað
sér gott til
glóðarinnar með
hugsanlegum
kaupum.
F
í
t
o
n
/
S
Í
A