Fréttablaðið - 13.07.2007, Blaðsíða 8
Í hvaða landi er Rauða
moskan sem hefur verið mikið í
fréttum síðustu vikuna?
Í hvaða götu í miðbæ
Reykjavíkur er fyrirhugað að
koma á fót heimili fyrir heimilis-
lausa menn?
Hvað heitir ástralska námu-
fyrirtækið sem líklega mun
kaupa kanadíska álfyrirtækið
Alcan, móðurfélag Alcan á
Íslandi, sem rekur álverið í
Straumsvík?
Sól og sumarylur virðist hafa ýtt undir veltu
verslana í júnímánuði, og sýna mælingar rannsóknar-
seturs verslunarinnar að velta á smávörumarkaði var
10,9 prósentum hærri í júní en sama mánuði í fyrra.
Þetta stangast á við þjóðhagsspá fjármálaráðuneyt-
isins og Seðlabankans, og verður sannarlega ekki til
þess að hvetja Seðlabankann til að lækka stýrivexti.
„Ný og endurnýjuð þjóðhagsspá fjármálaráðuneyt-
isins, og reyndar fleiri spár, gera ráð fyrir því að
einkaneyslan minnki eða standi í stað. Það virðist ekki
vera samkvæmt þessu. Undanfarna mánuði hefur
verið mikil aukning á veltu í smásölu, greiðslukorta-
viðskipti eru alltaf að aukast og bílainnflutningur
virðist aukast mikið,“ segir Emil B. Karlsson,
forstöðumaður rannsóknarseturs verslunarinnar.
Vöruverð hefur lækkað um 2 prósent á tímabilinu
samkvæmt Hagstofu Íslands, svo aukin velta tengist
ekki hærra vöruverði. Helstu skýringuna á þessari
aukningu í smásölunni má að líkindum finna á
dagatalinu.
„Það voru fimm laugardagar í júnímánuði en ekki
fjórir. Það var örugglega talsvert mikil sala um
síðustu helgina enda lögðust margir í ferðalög, og
gerðu þá vel við sig í mat og drykk,“ segir Emil.
„Veðrið skiptir auðvitað líka einhverju máli.“
Þá verður metfjöldi ferðamanna á ferð um landið
þetta sumarið, sem Emil segir eflaust eiga sinn þátt í
aukningunni. Þó megi gera ráð fyrir því að áhrif
ferðamanna verði meiri í júlí og ágúst.
Sala á áfengi í júní var 13 prósentum meiri en árið
áður. Sé áfengissala í janúar síðastliðnum borin saman
við nýliðinn júní er aukningin 66 prósent. Áfengissala
í júní var þannig óvenju mikil, og jafnaðist á við
söluaukningu fyrir verslunarmannahelgi á undanförn-
um árum.
Þá hafði velta á kreditkortum landsmanna aukist
17,8 prósent milli ára í júní en á sama tíma dró úr
veltu á debetkortum um 3,5 prósent.
„Þetta er ein af þeim vísbendingum sem við höfum
um að það séu meiri umsvif í samfélaginu en við
höfðum ætlað,“ segir Sigurður Guðmundsson,
sérfræðingur á efnahagsskrifstofu fjármála-
ráðuneytisins. Í endurskoðaðri þjóðhagsspá
ráðuneytisins frá miðjum júní var því spáð að draga
myndi úr einkaneyslu um 1,3 prósent á árinu 2007.
Von er á nýrri þjóðhagsspá samhliða útgáfu
fjárlagafrumvarps í byrjun október, og segir Sigurður
þessar tölur verða meðal þess sem tekið verður tillit
til í þeirri spá. Ljóst sé að frá því síðasta spá var
unnin hafi verið meiri vöxtur á ýmsu sviði, til dæmis í
smásölu og bílainnflutningi, en komið hafi verið fram
á þeim tíma.
Veltan í verslunum
eykst þvert á spár
Velta í smávöruverslun jókst um tæp 11 prósent milli ára og virðist sem ferðalög
um landið og sumarylur auki á neyslu landans. Aukningin er þvert á spá fjár-
málaráðuneytisins, sem reiknaði með 1,3 prósenta samdrætti á einkaneyslu.
Sumartilboð Vildarþjónustunnar
25%
afsláttur hjá öllum
Fosshótelum
www.spar.is
Ehud Olmert, forsætisráðherra Ísraels,
heimsótti í gær byggðirnar nyrst í Ísrael, sem verst
urðu úti í hinu mánaðarlanga stríði Ísraels við
Hezbollah-skæruliða í Líbanon, en rétt ár var í gær
frá því það hófst. Fullyrti Olmert við þetta tækifæri
að stríðið, sem sætt hefur mikilli gagnrýni innan
Ísraels, hefði gert landamæri landsins öruggari.
Olmert endurnýjaði jafnframt tilboð um að hefja
friðarviðræður við Sýrlendinga og tók fram að
Ísraelar hefðu „engan áhuga“ á að lenda í stríði við
Sýrland. Meðan á ferð Olmerts um landamæra-
byggðirnar stóð sagði hann að hið 34 daga langa stríð
síðasta sumar hefði opinberað veikleika í
hernaðargetu Ísraels og sagði að ríkisstjórn sín væri
að vinna að því að bæta úr þeim.
Yfir 1.000 Líbanar og 158 Ísraelar, þar af 119
hermenn, féllu í átökunum sem hófust í kjölfar
þess að Hezbollah-liðar réðust á ísraelska hermenn
sem voru við landamæragæzlu, felldu þrjá og tóku
tvo til fanga.
Núverandi ólympíumeist-
ari í maraþonhlaupi karla, Stefano
Baldini, verður meðal þátttakenda
í Reykjavíkurmaraþoni Glitnis
sem fram fer 18. ágúst næstkom-
andi.
Norska hlaupadrottningin Grete
Waitz tilkynnti um þátttökuna á
blaðamannafundi í Höfða í gær.
Ásamt Baldini hafa sjö aðrir
erlendir maraþonhlauparar
staðfest þáttöku sína.
Erlendu hlaupararnir, sem hafa
allir unnið alþjóðleg maraþon-
hlaup, koma meðal annars frá
Kenía, Tékklandi og Skotlandi. Að
sögn forsvarsmanna hlaupsins er
búist við að fleiri erlendir hlaupar-
ar bætist í hópinn.
Grete Waitz er einn mesti afreks-
íþróttamaður Noregs fyrr og síðar.
Hún hefur átt fjölda heimsmeta í
langhlaupi, víðavangs- og maraþ-
onhlaupi og vann gull á heims-
meistaramótinu árið 1983 og silfur
á Ólympíuleikunum árið 1984. Auk
þess hefur hún unnið Lundúnamar-
aþonið tvisvar og New York-mar-
aþonið níu sinnum.
Í dag skipuleggur Grete Osló-
armaraþonið og segir hún ákvörð-
un Glitnis um að gerast aðalstyrkt-
araðili hlaupsins mikinn létti. „Við
höfðum lengi átt í erfiðleikum með
fjármögnun og ósk Glitnis um sam-
starf var eins og jólapakki um mitt
sumar,“ segir Grete.
Glitnir óskaði eftir aðstoð Grete
við skipulagningu Reykjavík-
urmaraþonsins og hún tók vel í þá
bón. „Ég hef ákveðna þekkingu og
reynslu eftir öll þessi ár sem
íþróttakona. Ég kem að Reykjavík-
urmaraþoninu sem eins konar ráð-
gjafi og finnst það mjög ánægju-
legt,“ segir Grete.
Ólympíumeistari tekur þátt
Ástralska námufyrir-
tækið Rio Tinto hefur gert tilboð
upp á 38 milljarða dollara, eða
tæpa 2.300 milljarða króna, í
kanadíska álfyrirtækið Alcan,
móðurfélag Alcan á Íslandi sem
rekur álverið í Straumsvík.
Boð Rio Tinto er hærra en
tæplega 1.700 milljarða króna boð
bandaríska álfyrirtækisins Alcoa,
sem stjórn Alcan hafnaði í maí.
Stjórn Alcan ætlar að mæla með
því að hluthafar í Alcan taki boði
Rio Tinto, en 66,7 prósent þeirra
þurfa að samþykkja það.
Ef salan gengur eftir mun nýja
fyrirtækið heita Rio Tinto Alcan og
hafa aðsetur í Montreal í Kanada.
Alcan verður
líklega selt
Bæjarráð
Hornafjarðar vill að ríkisstjórn-
in flýti stofnun Vatnajökulsþjóð-
garðar sem lið í mótvægisað-
gerðum vegna kvótaskerðingar.
Á fundi sínum í gær sagðist
bæjarráðið hafa þungar áhyggjur
vegna afleiðinga af kvótaskerðing-
unni. „Skerðing aflaheimilda
hefur víðtækar afleiðingar á
atvinnulíf Hornfirðinga, það er
sjómenn, fiskverkafólk, fyrirtæki
og sveitarfélag,“ segir bæjar-
ráðið, sem auk þess að hvetja
ríkið til þess að flýta allri
uppbyggingu í tengslum við
Vatnajökulsþjóðgarð leggur til að
störf á náttúruverndar- og
matvælasviði Umhverfis-
stofnunar verði framvegis
staðsett í sveitarfélaginu.
Flýti þjóðgarði
við Vatnajökul
Rúmlega tvítug kona
hefur í Héraðsdómi Austurlands
verið dæmd í fimm mánaða
fangelsi, þar af tvo mánuði
skilorðsbundna, fyrir tvær
líkamsárásir á Frönskum dögum á
Fáskrúðsfirði í júlí í fyrra.
Hún sló konu á þrítugsaldri með
flösku inni í bíl þegar konan neitaði
að gefa henni amfetamín sem hún
bað um. Þá tók hún hana hálstaki,
reif í hár hennar og lagði annað
lærið yfir andlit hennar þannig að
djúpt bitsár hlaust af. Seinna sama
kvöld lamdi hún mann um tvítugt í
höfuðið aftan frá með vínflösku, en
hún hafði átt í átökum við hann
fyrr um daginn.
Barði tvennt
með flöskum