Fréttablaðið - 13.07.2007, Page 36
BLS. 12 | sirkus | 13. JÚLÍ 2007
1999
B ritney Jean Spears kom fyrst fram á sjónarsviðið aðeins 17 ára gömul og gerði allt vitlaust
með laginu sínu ...Baby, one more
time. Á þessum tíma voru þúsundir
söngkvenna að stíga sín fyrstu skref í
tónlistinni. Þar má nefna Christinu
Aguilera, Mandy Moore og Jessicu
Simpson, en Britney sló þær allar því
út því þrátt fyrir ungan aldur, skildi
Britney hvað seldi: kynþokki.
Það var hennar hugmynd að koma
fram í myndbandinu við lagið í
kaþólskum skólabúningi, með beran
magann og tíkarspena í hárinu.
Britney er alvöru poppstjarna og
hefur á þessum níu árum ratað oftar
í slúðurblöðin heldur en Madonna
sjálf. Stelpan er svo sannarlega popp-
prinsessa. Hún hefur undanfarin ár
verið með flottasta líkamann í popp-
bransanum og gefið út skemmtileg-
ustu myndböndin. Britney á heiður-
inn að stysta hjónabandi í Hollywood
er hún giftist æskuvini sínum Jason
Alexander í Vegas árið 2004. Hún var
æskuást poppprinsins Justins Tim-
berlake. Stúlkan hefur greinilega
haft mikil áhrif á kappann því þó
nokkrir söngtextar hans eru um
hana. Hún hefur verið gift og skilin
tvisvar og á tvo drengi með Kevin
Federline; Sean Preston og Jayden
James. Britney hefur gefið út fjórar
plötur. Allar hafa ratað beint í fyrsta
sæti í Bandaríkjunum. Hún er átt-
unda frægasta söngkona í sögu
bandarískrar tónlistar og ungfrú
Britney Jean Spears er án efa í dag,
rétt á eftir Paris Hilton, ein mest ljós-
myndaðasta manneskjan í Holly-
wood. Sirkus tók saman myndir frá
stuttum ferli konunnar og nóg er
úrvalið. Við bíðum spennt eftir að
Britney taki sig saman í andlitinu og
komi með mega kommbakk. Plís,
Britney, gerðu það fyrir okkur.
MÖRG ANDLIT
BRITNEY SPEARS
2000
2001
nærmynd
sirkus
2002
Þegar þarna var
komið við sögu var
Britney tilbúin að
ganga lengra en
nokkru sinni áður.
20062004
Árið sem Britney
giftist æskuvini
sínum. Hjónabandið
var ógilt skömmu
síðar. Fljótlega kom
Kevin Federline,
seinni eiginmaður
hennar, til sögunnar.
20072005
Britney var kynnt til sögunnar sem
ung og saklaus stúlka þegar
ferillinn hófst. Hún var sannkölluð
draumaprinsessa fyrir karlmenn en
jafnframt fyrirmynd ungra stúlkna.
Ári síðar var farið að
gera meira út á
kynþokka hinnar
ungu Spears. Hún
átti þó enn nokkuð í
að ná toppnum.
Britney gerðist sífellt kræfari í
klæðaburði sínum. Hún hélt þó í
ímynd saklausu stúlkunnar.
2003 Sögusagnir um ástarsam-bönd söngkonunnar voru á allra vörum og hátterni
hennar varð æ furðulegra.
Til að lappa upp á ímyndina
lét Britney mynda sig þegar
hún var ólétt í annað sinn.
Yngri sonur hennar fæddist í
september þetta ár. Í
nóvember sótti Britney
um skilnað frá Kevin
Federline.
Reykingar og ofdrykkja voru á
allra vörum. Seint á árinu
eignaðist Britney svo fyrri son
sinn með Kevin Federline.
Ár hinna miklu öfga. Britney hefur
verið mikið í fréttunum fyrir
djammlíferni sitt og fór í kjölfarið
í meðferð. Skömmu áður hafði
hún rakað af sér allt hárið.