Fréttablaðið - 13.07.2007, Side 45

Fréttablaðið - 13.07.2007, Side 45
Ekki er um það deilt að núverandi stjórn fiskveiða hefur alls ekki gengið eins og til var ætlast. Þegar kvótakerfinu var hleypt af stokkun- um var ætlunin að byggja upp þorsk- stofninn á örfáum árum til þess að fá 400 til 500 þúsund tonna jafnstöðuafla en á næsta fiskveiðiári er boðað að aflinn verði 130 þúsund tonn eins og kunnugt er. Ágreiningurinn snýst fyrst og fremst um það hvers vegna ekki hefur gengið sem skyldi þrátt fyrir að þjóðin hafi fært miklar fórnir í formi minni afla, minni verðmæta og mikillar byggðaröskunar. Sjávarútvegsráðherra Sjálf- stæðisflokksins og þeir sérfræðingar sem ráða för halda því fram að ástæðan fyrir árangurs- leysinu sé að fyrirrennarar Einars Kristins Guðfinnssonar og samflokks- menn hafi ekki farið að ráðgjöf Hafró. Þessar fullyrðingar eru endurteknar í sífellu þótt enginn hafi mótmælt þeirri staðreynd að stjórnvöld hafa á síðustu 10 árum farið 94,5% að ráðgjöfinni, sem er innan skekkjumarka. Það sem er átakanlegt við stöðu mála er að veigamikil líffræðileg rök styðja að grundvöllur núverandi stýr- ingar sé veikur og standist ekki gagnrýna skoð- un. Helsta haldreipi og rökstuðningur stjórn- málamanna, s.s. líffræðingsins Össurar Skarphéðinssonar, fyrir því að fylgja eigi ráð- gjöf Hafró er ný skýrsla Hagfræðistofnunar um aflareglu fyrir þorskinn. Hvað yrði sagt ef helstu líffræðileg rök fyrir nýtingu annarra villtra dýrastofna, s.s. rjúp- unnar og gæsarinnar, væru skýrslur Hagfræði- stofnunar? Íslensk stjórnvöld hafa ekki lagt eina krónu í að ganga úr skugga um hvort gagn- rýnin á núverandi stjórnun sé rétt og hvort þær kenningar og aðferðir sem unnið hefur verið með í tvo áratugi án árangurs séu ekki vænlegar til árangurs. Ef allt væri með felldu myndu bæði sjávar- útvegsráðherra Einar Kristinn Guðfinnsson og ráðherra byggðamála Össur Skarphéðinsson reyna eftir öllum leiðum að komast hjá því að ganga svo hart gegn sjómönnum og sjávar- byggðum landsins. Þau rök sem heyrst hafa að þjóðin sé núna í færum til að standa af sér erfið- leikatímabil eru haldlaus gagnvart þeim einstaklingum sem hafa lagt mikið undir til að hafa lífsviðurværi sitt af sjósókn. Það er engu líkara en að kerfið og stjórnvöld séu í ákveðinni sjálfheldu og vilji alls ekki leit- ast við að komast út úr þeim ógöngum sem stjórn fiskveiða er komin í en með því væru sérfræðingar og stjórnmálamenn að einhverju marki að viðurkenna að fórnir liðinna ára hefðu verið færðar til einskis. Sérfræðingar og stjórnmálamenn þyrftu að kyngja því að hafa haft rangt fyrir sér en gætu þá vonandi huggað sig við að hafa unnið eftir bestu samvisku. Ég geri þá siðferðilegu kröfu til sjávar- útvegs- og byggðamálaráðherra að ganga úr skugga um að mögulegt sé að fara vægari leið- ir en að beita þeim harkalega niðurskurði sem ríkisstjórn Sjálfstæðisflokks og Samfylkingar hafa boðað gegn sjávarbyggðum landsins. Hingað til hefur veigamiklum rökum verið svarað með þögn og þumbarahætti, og ekki einni krónu hefur verið varið til rannsókna sem gætu leitt í ljós að þær kenningar sem unnið hefur verið með væru byggðar á sandi. Höfundur er líffræðingur og fyrrverandi alþingismaður. Réttlæting á mistökum Ögurhvarfi 2, Kópavogi Sími 587 4430. Opið virka daga 8-18, laugardaga 10-15 Höfum opnað áttundu verslun Flügger lita á Íslandi. Sérhæfðar verslanir með málningu og málningarvörur fyrir fagmenn og neytendur. www.flugger.is 108092 Opnunartilboð 1.990,- 3 lítra dós Flügger 97 – rétta viðarvörnin Opnunartilboð 1.990,- 3 lítra dós Flügger tréolía – á sólpallinn Við opnum nýja búð

x

Fréttablaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.