Fréttablaðið - 13.07.2007, Blaðsíða 52

Fréttablaðið - 13.07.2007, Blaðsíða 52
Eitt af því skemmtilegasta sem hjónakornin David og Victoria Beckham gera er að læsa hurðunum á heimili sínu á kvöldin til að geta valsað um í friði án fata. Þetta kemur fram í viðtali við fótbolta- manninn og kryddpíuna við tísku- tímaritið W í Bandaríkjunum sem ritstjórar tímaritsins segja að sé „hið opinskáasta sem hjónin hafa veitt til þessa“. Ensku hjónin, sem eru óðum að koma sér fyrir á sínu nýja heimili í Los Angeles, eru sögð mjög opinská í viðtalinu og lofa ritstjórarnir að margt nýtt muni koma þar fram. Að auki sátu hjónin fyrir í blaðinu í stellingum sem sagðar eru „erótísk- ar“ og munu myndir birtast af þeim skötuhjúm hálfnöktum í faðmlög- um. „Ég held að í fyrsta sinn muni fólk virkilega sjá hvernig manneskju ég hef að geyma,“ segir Victoria sjálf, en greinilegt er að hún er að leggja sig alla fram við að fá athygli í Bandaríkjunum, til að eiga meiri möguleika á að skapa sér feril þar í landi. „Ég held að margir telji mig vera óánægða kú sem brosi aldrei. En sannleikurinn gæti ekki verið fjær þeirri ímynd. Ég er alltaf bros- andi heima og ég ætla að reyna að brosa sem mest fyrir Ameríku,“ sagði Victoria enn fremur. Á djörfustu myndinni sem sjá má í blaðinu situr David klofvega á dýnu í dimmu hótelherbergi og fjar- lægir belti af Victoriu, sem ku vera allra síðasta flíkin sem hún ber. Stephen Klein, einn þekktasti ljós- myndari Bandaríkjanna, sá um myndatökuna, en hann vakti á sínum tíma mikla athygli fyrir erótískar myndir af Madonnu. Í viðtalinu kemur einnig fram að David hefur látið sérsmíða fyrir sig fullkomið heimabíó í villu þeirra hjóna í Beverly Hills sem meðal annars skartar stærsta flatsjónvarpi sem framleitt hefur verið. Flatskjárinn er 260 sentímetrar á lengd, að sjálfsögðu sérsmíðaður og kostaði rúmar sex milljónir króna. Beckham-hjónin nakin Afþreyingarrisinn Disney í Bandaríkjunum er áhugasamur um Nylon- flokkinn. Á teikniborðinu er sjónvarpsþáttur um íslenska stelpnabandið. „Þetta er náttúrlega ótrúlega spennandi,“ segir Alma Guðmunds- dóttir, söngkona úr Nylon, en stúlknaflokkurinn, ásamt útgáfu- fyrirtækinu Believer, heldur til Bandaríkjanna á næstunni þar sem afþreyingarrisinn Walt Disney hefur óskað eftir fundahöldum við þau. Á teikniborðinu er sjónvarps- þáttur um íslenskt stúlknaband sem kemur til Bandaríkjanna og hyggst slá þar í gegn. Ef þetta verður að veruleika kemur út plata til að fylgja þáttunum eftir. „Þetta er allt á frumstigi þannig að báðir fæturnir verða að vera kirfilega festir við jörðina en við erum að sjálfsögðu í skýjunum yfir þessum áhuga,“ bætir Alma við. „Það yrði auðvitað toppurinn á tilverunni ef þetta yrði að raunveruleika enda er unglingasjónvarp Disneys alveg gríðarlega vinsælt.“ Óhætt er að segja að lífið leiki við Nylon-stelpurnar því við þessar fréttir bætast að Nylon-stúlkan Emilía Björk Óskarsdóttir gengur í það heilaga á morgun og vinkonur hennar ætla að sjálfsögðu að taka lagið við athöfnina. Alma vildi ekki gefa upp hvaða lag hefði orðið fyrir valinu en að lagavalið ætti eftir að koma skemmtilega á óvart. Einar Bárðarson, umboðsmaður sveitarinnar, sagði að þetta væri í raun einstakt tækifæri fyrir stúlkurnar. Verkefnið myndi þó útheimta mikla vinnu, blóð, svita og tár. Disney-fyrirtækið væri einn allra stærsti framleiðandi afþreyingarefnis í heiminum og meðal þeirra tónlistarmanna sem hefðu verið á mála hjá fyrirtækinu væru Britney Spears, Christina Aguilera og Justin Timberlake. „Við höfum verið að vinna að næstu skrefum hjá Nylon erlendis og einbeitt okkur að breska markaðnum. Fyrir nokkrum vikum fengum við símtal frá samstarfsaðila okkar í Los Angeles þar sem okkur var tjáð að áhugi væri hjá Disney að fá stelpurnar til sín. Um væri þá að ræða sjónvarpsþátt sem yrði fylgt eftir með plötu,“ segir Einar en tekur skýrt fram að viðræðurnar séu á byrjunarstigi og því geti vel brugðið til beggja vona. Hann bætir því þó við að í Bretlandi hafi mönnum ekki þótt stúlkurnar nógu frakkar enda væri hefð fyrir því að tónlistarmenn í þessum geira sýndu mikið hold og næðu heimsfrægð fyrir. „En núna lítur allt út fyrir að það sem stóð í Bretanum gangi á Bandaríkjamarkað.“ Heimildir Fréttablaðsins herma að Magnús Scheving hafi aðstoðað Einar og Nylon á bak við tjöldin við að koma þessu á koppinn. En Einar vildi lítið tjá sig um það mál. Sagði að Magnús byggi vissulega úti á Nesi og því væri stutt yfir. „En ef svo færi að hann gengi til liðs við okkur yrði það mikill styrkur.“ Britney Spears er komin með nýjan mann upp á arminn. Reyndar felst það í starfi mannsins, sem heitir Damon, að vera viðloðandi arma Britneyar, þar sem hann er lífvörð- ur söngkonunnar. Samkvæmt heimildum vefsíðu bandaríska tímaritsins US Weekly deildi parið hverri rómantísku kvöldstundinni á fætur annarri í síðustu viku og hélt svo heim í hús söngkonunnar þar sem það varði nóttinni. Til parsins hefur einnig sést á hótelinu Chateau Marmont, þar sem jafnan er krökkt af frægu fólki. Parið notaði tækifærið til að kyssast og kela fyrir framan áhorfendur. Síðastliðinn sunnudag skiptu þau hins vegar um gír og settu stefnuna í messu með barnungum sonum Britneyar og Kevins Federline. Á sama tíma deila Britney og Kevin hatrammlega um forræði yfir sonum sínum, og fréttir herma að þau hafi bæði ráðið einkaspæjara til að njósna um makann. Það skiptast því á skin og skúrir í lífi söngkonunnar um þessar mundir. Með nýjan mann
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.