Fréttablaðið - 13.07.2007, Síða 58
Það er stór dagur í sögu
bandarískrar knattspyrnu í dag
þegar David Beckham verður
formlega kynntur sem leikmaður
Los Angeles Galaxy. Bandarískir
fjölmiðlar hafa ekkert gefið þeim
evrópsku eftir í umfjöllun um
Beckham-hjónin síðustu vikur og
verða þau mjög áberandi í öllum
helstu fjölmiðlum Bandaríkjanna
á næstunni þegar þau reyna að
leggja Bandaríkin að fótum sér.
Beckham-hjónin kunna betur en
flestir aðrir að markaðssetja sig
og er mikið lagt í að markaðssetn-
ingin fyrstu vikurnar eftir komu
þeirra til Bandaríkjanna sé rétt og
sem mest áberandi. Til að mynda
er mjög djörf myndasíða af þeim
hjónum í ágústhefti tímaritsins W
sem mun án efa vekja mikið umtal.
Þar eru myndir af hjónunum í
hinum ýmsu stellingum að kyssa
hvort annað og láta vel að hvort
öðru upp í rúmi.
Á mánudag mun NBC-sjón-
varpsstöðin síðan sýna þátt um
Victoriu þar sem hún undirbýr
komu fjölskyldunnar til Banda-
ríkjanna.
Það er til marks um að nýtt
Beckham-æði sé að hefjast í
Bandaríkjunum að nú þegar er
búið að selja 250 þúsund LA
Galaxy-treyjur með nafni Beck-
hams. Um er að ræða pantanir frá
aðdáendum sem höfðu ekki einu
sinni hugmynd um útlit treyjunn-
ar. Fólkið vill bara fá sína Galaxy-
treyju með Beckham-nafninu.
Þess má geta að Real Madrid seldi
yfir eina milljón af Beckham-
treyjum á fyrstu sex mánuðum
leikmannsins hjá félaginu.
Beckham sjálfur óttast að fólk
muni gera of miklar væntingar til
hans en hann er að ganga í raðir
eins af lakari liðum deildarinnar.
„Ég óttast væntingar fólks til mín.
Eflaust halda sumir að við munum
vinna leiki 10-0 með mig
innanborðs. Ég er ekki leikmaður
sem mun hlaupa framhjá tíu
leikmönnum og skora,“ sagði
Beckham.
Koma Beckhams til Bandaríkj-
anna hefur vakið álíka mikla
athygli og þegar sjálfur Pelé ákvað
að fara til Bandaríkjanna á sínum
tíma. Pelé hefur þegar ráðlagt
Englendingnum.
„Ég ráðlegg David að vera á
tánum því þetta verður erfitt fyrir
hann því liðin í Bandaríkjunum
eru mjög góð og dekka vel. Beck-
ham verður að mæta tilbúinn til
leiks og í góðu formi því það er
ekki auðvelt að spila í
Bandaríkjunum. Fótboltinn í
Bandaríkjunum í dag er orðinn
mjög góður,“ sagði Pelé, sem lék
með New York Cosmos upp úr
1970.
Þess má geta að fyrsti leikur
Beckhams með Galaxy verður
æfingaleikur gegn Chelsea 21.
júlí.
Bandarískir fjölmiðlar bíða í ofvæni eftir að Beckham-hjónin lendi í
Bandaríkjunum í dag. Þau verða áberandi í fjölmiðlum næsta daga. Beckham-
æði er nú þegar skollið á í Bandaríkjunum og búið að selja 250 þúsund treyjur.
Margir áhorfendur á leik
Þróttar og Keflavíkur á miðviku-
dag biðu spenntir eftir einvígi
Þróttarans Hjartar Hjartarsonar
og Keflvíkingsins Guðmundar
Mete. Þeir höfðu ekki mæst á
knattspyrnuvellinum í eitt ár en
allt varð vitlaust fyrir ári síðan er
þeir mættust í leik ÍA og Keflavík-
ur. Sá leikur dró dilk á eftir sér og
báðir leikmenn fengu bann fyrir
hegðun sína.
Þeir sem ætluðu að fylgjast með
einvígi þeirra félaga urðu fyrir
vonbrigðum því ekkert varð af því
þar sem Guðmundur er meiddur
og var því ekki í leikmannahópi
bikarmeistaranna. Þorsteinn
Georgsson lék í vörninni í stað
Guðmundar.
„Hann er meiddur. Það er sama
vesen og áður. Hann er slæmur í
baki og það leiðir niður í lærið,“
sagði Kristján Guðmundsson,
þjálfari Keflavíkur, og þvertók
fyrir að hafa ekki valið Guðmund
til að koma í veg fyrir einhverja
hugsanlega uppákomu.
Það skipti Hjört engu máli þó
Guðmundur spilaði ekki. „Mér er
alveg sama. Ég var ekki að koma
hingað til að spila við hann heldur
við Keflavík,“ sagði Hjörtur.
Guðmundur meiddur og gat ekki spilað Boðið verður upp á
sannkallaðan draumaúrslitaleik í
Copa America-keppninni á
sunnudagskvöldið þegar Brasilía
og Argentína mætast. Þessir
fornu fjendur hafa sýnt frábær
tilþrif í keppninni til þessa og má
búast við rífandi stemningu í
Venesúela.
Argentínumenn geta unnið
titilinn í fimmtánda skipti, sem
yrði met, en þeim svíður enn
tapið í úrslitaleiknum fyrir
Brasilíu árið 2004. „Ég hef ekki
gleymt hvernig þeir neru því
framan í mig fram og aftur. Í dag
hefur fótboltinn gefið mér
tækifæri til að hefna mín. Þetta
verður þó mjög erfiður leikur,“
sagði Argentínumaðurinn Carlos
Tevez eftir 3-0 sigur á Mexíkó í
undanúrslitunum.
Argentínumenn
hyggja á hefndir
Ekki verður keppt á
Indianapolis-brautinni í
Bandaríkjunum á næsta tímabili í
Formúlu eitt og þar með er ljóst
að engin Formúla fer fram í
Bandaríkjunum.
Það slitnaði upp úr samninga-
viðræðum um framtíð
Indianapolis-brautarinnar á
formúludagatalinu og þar með
mun ein best sótta keppni
tímabilsins heyra sögunni til.
Um það bil 125 þúsund manns
að meðaltali hafa komið á
keppnina undanfarin sex ár en
brautin mun halda áfram að hýsa
aðrar stórar keppnir, þar á meðal
hinn heimsfræga Indianapolis 500
kappakstur.
Engin keppni í
Indianapolis
Bacary Sagna, 24 ára
varnarmaður Auxerre, hefur
samið við enska úrvalsdeildarlið-
ið Arsenal. Hann hefur ekki
spilað landsleik en var í franska
landsliðshópnum á dögunum.
„Sagna er mjög góður varnar-
maður sem spilar aðallega sem
bakvörður en getur einnig spilað í
miðri vörninni sem og aftarlega á
miðjunni. Hann er sterkur og
fljótur,” sagði Arsene Wenger,
stjóri Arsenal, á heimasíðu
félagsins.
Sagna semur
við Arsenal
Jerzy Dudek er búinn að
yfirgefa varamannabekkinn hjá
Liverpool fyrir þann hjá Real
Madrid.
Pólski markvörðurinn gerði
eins árs samning við spænsku
meistarana og verður vara-
markvörður Iker Casillas á næsta
tímabili.
Real ætlaði að reyna að fá
Francesco Toldo frá Inter en það
tókst ekki. Dudek var hetja
Liverpool þegar liðið vann
Meistaradeildina 2005 en missti
síðan sæti sitt til Spánverjans
José Reina.
Á bekknum hjá
Real Madrid
Robbie Fowler er nú
staddur í Ástralíu þar sem hann
er í viðræðum við forráðamenn
Sydney FC.
Fowler, sem er 32 ára gamall,
er inni í myndinni hjá mörgum
liðum í Englandi eftir að Liver-
pool lét hann fara í vor. Það
kemur hins vegar alveg eins til
greina að klára ferilinn í Ástralíu
og mun hann eyða helginni hinum
megin á hnettinum og skoða
aðstæður.
Sydney FC vann ástralska
titilinn 2006 en þá var Dwight
Yorke í fremstu víglínu liðsins.
Heimsækir lið
í Ástralíu
Breiðablik vann bikar-
meistara Vals 2-1 og sló þá út úr 8
liða úrslitum VISA-bikars kvenna í
gær. Þetta var fyrsta tap Valsstelpna
í sumar. KR, Fjölnir og Keflavík
komust einnig í undanúrslit.
Skipulagður varnarleikur og
stórhættulegar skyndisóknir voru
lykilinn að sigri Blika auk þess
sem Petra Lind Sigurðardóttir átti
stórleik í markinu. Greta Mjöll
Samúelsdóttir kom Blikum yfir
með stórglæsilegu marki rétt eftir
miðjan fyrri hálfleikinn þegar hún
afgreiddi boltann upp í fjærhornið
frá vítateigshorninu eftir hraða
sókn. Sandra Sif Magnúsdóttir
kom Blikum í 2-0 eftir aðra
skyndisókn og sendingu frá Gretu
Mjöll tólf mínútum síðar og þannig
stóð í hálfleik. Valskonur voru
meira með boltann og fengu mörg
góð færi en það var ekki fyrr en
Valsliðið fékk víti á 85. mínútu að
Margrét Lára Viðarsdóttir náði
loksins að skora en markið kom of
seint og Blikar fögnuðu óvæntum
sigri.
Breiðablik sló Val út