Fréttablaðið - 26.07.2007, Side 1

Fréttablaðið - 26.07.2007, Side 1
...opið alltaf, allsstaðar. Náttúran.is ernáttúrumarkaðurmeð lífrænar ogumhverfisvottaðar vörur... 07 -2 00 7 N át tú ra n .is www.natturan.is Meirihluti tollkvóta á inn- flutning 550 tonna af kjötafurðum, sem boðinn var út í apríl í kjölfar samnings við Evrópusambandið, var aldrei sóttur af fyrirtækinu sem fékk honum úthlutað. Líklegt er að hann verði boðinn út aftur. Í samningnum við ESB var meðal annars kveðið á um að toll- ur af þessu tiltekna magni af kjöti myndi lækka um fjörutíu prósent, og lýstu stjórnvöld því yfir að það ætti að hafa talsverð áhrif á lækk- un matvælaverðs í landinu. Eitt fyrirtæki, Sláturhús Hellu hf. (SH), fékk meirihluta kvótans úthlutað, eða um 320 tonnum í allt. Sækja hefði þurft svokallað leyfis- bréf í byrjun júní til að greiða fyrir kvótann, en það gerði SH aldrei. Leifur Þórsson, framkvæmda- stjóri Ferskra kjötvara, sem buðu í gegnum millilið í kvóta en fengu engan, er ósáttur við að hafa ekki fengið svör frá ráðuneytinu um það hvenær eða hvort kvótinn verði boð- inn út að nýju. Hann segist hafa haft efasemdir um það frá upphafi útboðsins að SH myndi nokkurn tíma flytja kjötið inn og að óneitan- lega sé undarlegt að beðið hafi verið út allan frestinn, rúman mánuð, með að hætta við að sækja kvótann. Guðmar Jón Tómasson, slátur- hússtjóri hjá SH, segir fyrirtækið hafa hætt við að sækja kvótann þar sem eina nautakjötið sem stóð til að flytja inn voru lundir, en ekki hakk, og þær nýttust þeim ekki. Kvótinn var fyrst boðinn út í byrjun mars, en þá var útboðið eyðilagt með svo háu boði að ódýr- ara hefði verið að flytja inn kjötið án fjörutíu prósenta lækkunarinn- ar. „Ég veit ekki hver eyðilagði útboðið í fyrstu atrennu,“ segir Leifur. „En það má gera því skóna að einhver sem er nálægt þessum landbúnaðargeira hafi boðið allt of hátt til þess eins að fresta málinu.“ „Ég er þess fullviss að þetta magn mun koma aftur til úthlutunar,“ segir Guðmundur B. Helgason, ráðuneytisstjóri í landbúnaðarráðu- neytinu. Hann segist ekki vita hversu mikið magn kvóta er ósótt. „En ég veit að það var eitthvað um það.“ Ráðgjafarnefnd mun fara yfir málið þegar hún kemur saman í ágúst og býst Guðmundur við því að nefndin muni fara yfir reglur sem gilda um útboð sem þessi. „Við kysum að sjá ábyrgari hegðun í þessu fyrir okkar leyti.“ Ódýr tollkvóti sem lækka átti matvælaverð mikið til ónýttur Meirihluti tollkvóta á innflutning kjöts frá Evrópu er ónýttur þar sem fyrirtækið sem fékk honum úthlutað sótti hann aldrei. Tollurinn var liður í samningi við ESB og átti að stuðla að lækkun matvælaverðs. Pulp Fiction og Jackie Brown 2 DVD saman 999 KR. Losar sig ekki við neinar flíkur Íslandsmeistaramót hársnyrta, snyrtifræðinga, gullsmiða, klæðskera og ljósmyndara í Samtökum iðnaðarins ÍSMÓT 2007FIMMTUDAGUR 26. JÚLÍ 2007 Íslandsmeistaramót hinna ýmsu stétta Guðni Ragnar Eyjólfsson leigubílstjóri lenti í því óhappi að bíllinn hans varð alelda á Hafnarfjarðarveginum til móts við Fífuna í Kópavogi um þrjúleytið í gær. Slökkviliðið var fljótt að koma á staðinn og slökkti eldinn um tíu mínútum eftir að útkall barst. Guðni náði að koma sér út ásamt farþega í bílnum áður en hætta skapaðist. „Ég tók eftir að það fór að leka úr honum olía þegar ég var rétt við Kópavogslækinn, og síðan steig hvítur reykur upp úr vélinni,“ segir Guðni. „Ég stoppaði og kom mér út. Svo bara brann hann, bíllinn minn. Þessi fíni Benz.“ Hann segir bílinn hafa verið sendan í skoðun en skemmdirnar séu töluverðar eftir brunann. „Þar sem þetta var vinnutækið mitt verð ég nú að drífa mig í að útvega mér nýtt. Það er það eina sem ég get gert.“ Benzinn brann í miðjum akstri Kvikmyndagerðarmaður- inn Valdimar Leifsson fær ábend- ingar og leiðsögn að handan frá Jónasi Hallgrímssyni, en hann er við það að ljúka tökum á sjón- varpsmynd í fullri lengd um skáld- ið. Myndin er samansett af leikn- um atriðum og viðtölum og er að sögn leikstjórans eins konar ljóð til Jónasar í kabarettstíl. „Ég vil meina að Jónas sé að tala í gegnum mig,“ segir hann. „Það hafa margir undarlegir hlutir gerst í tökunum og þetta er búið að vera mikið ævintýri.“ Meðal annars hefur Valdimar ítrekað fengið köllun frá Jónasi í miðjum tökum um að breyta atrið- um og breytingarnar hafa alltaf verið til hins betra. Veðrið hefur einnig leikið við tökufólkið, sem skýrir kannski veðurblíðuna sem hefur verið hér í sumar.

x

Fréttablaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.