Fréttablaðið - 26.07.2007, Blaðsíða 13
Um 430 manns
hafa látist úr hungri í Norður-
Kóreu á síðustu vikum. Þetta
fullyrða hjálparsamtökin Góðir
vinir, sem hafa bækistöðvar í
Suður-Kóreu.
Ástandið er verst í norðurhluta
landsins. Stjórnvöld í Norður-
Kóreu segja dauðsföllin stafa af
sjúkdómum, en hjálparsamtökin
fullyrða að ástæðan sé næringar-
skortur til langframa.
Stjórnvöld í Suður-Kóreu gátu
ekki staðfest þessar fullyrðingar,
en sumar fyrri fullyrðingar
hjálparsamtakanna um ástandið í
Norður-Kóreu hafa síðar fengist
staðfestar.
Hundruð dóu í
síðasta mánuði
Fjölmörg hagsmuna-
samtök og stofnanir loka skrif-
stofum sínum yfir afmarkað
tímabil í sumar.
Meðal þeirra eru Landssam-
band íslenskra útvegsmanna,
Samtök atvinnulífsins og Samtök
iðnaðarins, sem hafa öll lokað
skrifstofum sínum til 7. ágúst.
Bændasamtök Íslands opna
skrifstofur sínar á ný á morgun
eftir nokkurt hlé, en einungis
lágmarksþjónusta verður veitt á
skrifstofum VR til 13. ágúst.
Sumarlokanir
hjá stofnunum
Bæjarráð
Snæfellsbæjar samþykkti
ályktun á fundi sínum á þriðjudag
þar sem þungum áhyggjum var
lýst yfir þeirri ákvörðun sjávar-
útvegsráðherra að skera niður
aflaheimildir í þorski á næsta
fiskveiðiári. Ljóst væri að þessar
aðgerðir hefðu mjög neikvæð
áhrif á samfélagið í Snæfellsbæ
og tekjumissir samfélagsins yrði
rúmir tveir milljarðar.
Bæjarráð ályktar að því sé
treyst að ríkisstjórnin muni koma
með mótvægisaðgerðir til að
draga úr þeim gríðarlegu
neikvæðu áhrifum sem skerðing
þorskkvótans hafi í bæjarfélag-
inu. Bæjarráð lýsti því jafnframt
yfir að Snæfellsbær væri tilbúinn
til að vinna með ríkisstjórninni að
tillögum.
Tekjumissir
tveir milljarðar
Hafin hefur verið undir-
skriftasöfnun á netinu þar sem
samtökin Saving Iceland eru hvött
til að hætta ólöglegum mótmæla-
aðgerðum sínum.
Þrír ungir menn, Bjarki Vigfús-
son, Brynjar Guðnason og Hjalti
Björn Valþórsson, standa á bak
við söfnunina. „Okkur ofbjóða
þessar aðgerðir einfaldlega, þar
sem lög eru virt að vettugi vegna
einhvers æðri málstaðar,“ segir
Brynjar.
Í áskoruninni kemur fram að
það að vekja athygli á málstað
sínum sé grundvallarréttur allra.
Að gera það með ólöglegum hætti,
svo sem með skerðingu ferðafrels-
is hins almenna borgara, með
eignaspjöllum á byggingum í
einkaeigu og umferðartöfum, sé
hins vegar ólíðandi. Framkoma
sem slík sé dæmd til þess að koma
niður á málstaðnum en ekki vinna
honum brautargengi.
Á heimasíðunni, depilhogg.com,
eru allir hvattir til að setja nafn
sitt á listann - einu gildi um pólit-
ískar skoðanir þess. „Málstaður-
inn skiptir engu í þessu samhengi,
aðgerðirnar eru óeðlilegar sama
hver málstaðurinn er. Á meðal
okkar þriggja eru skiptar skoðan-
ir á þessu en við erum engir stór-
iðjusinnar sjálfir,“ segir Brynjar.
Framkoman komi niður á málstaðnum
Vitalie Varince, 38 ára
gamall moldóvskur yfirmaður í
verksmiðju, fékk lánaðar
tæplega 370 þúsund krónur frá
starfsmönnum sínum til að borga
fyrir jarðarför eiginkonu sinnar,
sem hann sagði hafa látist í
bílslysi þegar hún var ófrísk.
Konan var hins vegar enn
sprelllifandi.
Varinca var handtekinn og
ákærður fyrir fjársvik eftir að
vinir hans kíktu í heimsókn til að
athuga hvernig honum liði.
Vinum hans brá heldur betur í
brún þegar konan hans kom
fullfrísk til dyra. Þetta kom fram
á fréttavef Ananova.
Laug að konan
sín væri dáin