Fréttablaðið - 26.07.2007, Blaðsíða 2
„Við teljum hættu á
því að kirkjan og aðalorgel hennar
geti orðið fyrir skemmdum vegna
byggingar fyrirhugaðs bílakjall-
ara,“ segir Örn Steinar Sigurðs-
son, hjá Verkfræðistofu Sigurðar
Thoroddsen.
Eins og fram hefur komið í
Fréttablaðinu á að stækka Iðnskól-
ann í Reykjavík. Samfara hefur
Reykjavíkurborg kynnt áform um
byggingu bílakjallara milli skól-
ans og Hallgrímskirkju. Sóknar-
nefndin fól af því tilefni Verk-
fræðistofu Sigurðar Thoroddsen
(VST) að meta áhrif framkvæmd-
anna á kirkjuna.
Helsta niðurstaða VST er að til
þess að stækka megi Iðnskólann
þurfi fleiri bílastæði og þau þurfi
óhjákvæmilega að vera í bílakjall-
ara. Það gangi hins vegar alls ekki
upp.
Í áliti VST, sem ritað er af fyrr-
nefndum Erni Steinari og sóknar-
nefndin gerir að hluta athuga-
semda sinna, segir að
Hallgrímskirkja sé reist á klöpp-
inni á Skólavörðuhæð. Stefnt sé að
því að hefja viðgerðir á sprungum
í turni kirkjunnar í haust. Bygging
fyrirhugaðs bílakjallara sé hins
vegar verulegt áhyggjuefni því
uppgröft fyrir kjallarann verði að
langmestu leyti að gera með fleyg-
un og sprengingum.
„Titringur vegna þessa mun
óhjákvæmilega berast yfir í kirkj-
una og geta valdið sprungum í
mannvirkinu,“ segir í verkfræðiá-
litinu. „Verði um skemmdir að
ræða er augljóst að viðgerðar-
kostnaður verður mjög hár og
eðlilegt að kirkjan krefji fram-
kvæmdaaðilann
um þann kostn-
að sem af við-
gerðunum
hlýst.“
Einnig er
nefnt að í Hall-
grímskirkju sé
viðkvæmur
búnaður, eink-
um aðalorgelið
sem þoli illa
titring og geti hæglega orðið fyrir
skemmdum.
Í mótmælabréfi sóknarnefndar-
formannsins Jóhannesar Pálma-
sonar til borgaryfirvalda segir
auk þess að stækkun Iðnskólans
muni þrengja um of að kirkjunni.
„Hvatt er til þess að leitað verði
annarra leiða til þess að leysa
framtíðarvanda Iðnskólans í
Reykjavík, svo sem með því að
vinna að flutningi hans úr miðborg
Reykjavíkur,“ segir Jóhannes.
Júlíana Gottskálksdóttir, for-
stöðumaður Listasafns Einars
Jónssonar, hefur einnig lýst
áhyggjum við Fréttablaðið vegna
áhrifa sem sprengingar á Skóla-
vörðuholti kunni að valda á safn-
bygginguna og listaverkin þar.
Meðal annarra sem mótmæla er
stjórn Austurbæjarskóla og for-
eldrar í hverfinu sem telja að
aðkeyrsla að bílakjallaranum með-
fram vesturhlið skólans muni
stefna öryggi barna þar í mikla
hættu.
Munu heimta bætur
vegna sprengjuskaða
Verkfræðingar segja sprengingar við bílastæðahús milli Hallgrímskirkju og Iðn-
skólans munu valda skemmdum á kirkjunni og orgeli þess. Sóknarnefndin vill
að Iðnskólinn flytji burt og áskilur sér bætur verði kirkjan fyrir skemmdum.
„Manni finnst maður vera sá
eini sem hefur komist þetta og er
ofboðslega stoltur,“ segir Ólafur
Áki Ragnarsson, bæjarstjóri í Ölf-
usi, sem kleif Mont Blanc í síðustu
viku.
„Skrifstofumaður sem situr á
rassinum allt árið en er búinn að
æfa sig vel og uppker eins og hann
sáir verður ofsalega montinn af
sjálfum sér,“ bætir Ólafur við.
Með Ólafi Áka í för var Örn Orri
Einarsson. Að sögn Ólafs kom
honum á óvart hversu krefjandi
gangan var á þetta hæsta fjall Vest-
ur-Evrópu: „Neðst er snjóbráð og
þungt færi. Ofar er farið eftir
sprungusvæði og eftir hryggjum
þar sem er þverhnípi á báða bóga.
Það er farið um jökulsvæði þar
sem ísexin og broddarnir eru not-
aðir eingöngu. Á niðurleiðinni var
maður að sökkva í snjó upp á mið
læri og fara yfir mjög sprunginn
skriðjökul sem mér fannst um tíma
að enginn kæmist yfir nema fugl-
inn fljúgandi – en við fórum þó yfir
hann.“
Ólafur gekk á Kilimanjaro í
Kenýa í hittifyrra og hefur gengið
á fjölmörg fjöll hér innanlands.
Hann kveðst vera í ágætu formi
þótt hann sé orðinn 52 ára.
„ Ég er dálítið að horfa til Elbrus
á Kákasusfjöllunum og eins til
Nepal. Og ég er líka alveg ákveð-
inn að fara til Perú. Þetta er allt á
áætlun til ársins 2013.“
Stoltur bæjarstjóri á toppnum
Rússar minntust
þess í gær að 70 ár voru liðin frá
því að „hreinsanirnar miklu“
hófust árið 1937, þegar milljónir
manna voru, samkvæmt skipun-
um frá Jósef Stalín, sagðar
„óvinir ríkisins“ og ýmist teknar
af lífi án dóms og laga eða sendar
í fangabúðir.
Nokkur hundruð manns komu
saman á Rauða torginu í Moskvu,
allt börn fórnarlambanna, lögðu
blóm á stéttina og kveiktu á
kertum til að minnast fórnar-
lamba þessa myrkasta tímabils í
sögu Sovétríkjanna.
Vladimír Pútín Rússlandsfor-
seti sagði í síðasta mánuði að
Rússar ættu ekki að skammast
sín fyrir þetta tímabil, því „verri
hlutir hafa gerst í öðrum lönd-
um“.
Sjötíu ár frá
hreinsununum
Búið er að ráða í fimm
af ellefu stöðugildum sem
Greiningar- og ráðgjafarstöð
ríkisins auglýsti í byrjun mánað-
arins. Félagsmálaráðherra efndi
til sérstaks átaks vegna fjölda
barna sem beið eftir þjónustunni.
Einnig er unnið að því að fá
húsnæði gömlu heilsugæslunnar í
Kópavogi undir átakið, að sögn
Stefáns J. Hreiðarssonar forstöðu-
manns. „Þarna eru bara tíu metrar
milli húsa, þetta mundi nýtast
okkur gífurlega vel.“
Stefán segist eiga von á að ráða
í hinar stöðurnar á næstu mánuð-
um. „Þetta er stórt verkefni, en
við setjum heiður okkar að veði að
standa vel að verki,“ segir Stefán.
Ráða fólk og
leita húsnæðis
Héraðsdómur Suður-
lands hefur dæmt Vestmanna-
eyjabæ til að greiða fyrrum
eiganda matvælaverksmiðjunnar
Öndvegisrétta rúmlega tvær
milljónir króna vegna útlagðs
kostnaðar.
Þróunarfélag Vestmannaeyja
gerði samning við eiganda
Öndvegisrétta árið 2001 um kaup
á fyrirtækinu og flutning þess til
Vestmannaeyja, en ekkert varð úr
því að fyrirtækið hæfi starfsemi.
Kostnaðurinn varð til vegna
fyrirhugaðrar uppsetningar í
Eyjum. Bærinn var sýknaður af
kröfu um launagreiðslur og
skaðabætur.
Vestmannaeyjar
greiða kostnað
Mikill mannfjöldi var við
kveðju- og minningarathöfn um
Einar Odd Kristjánsson alþingis-
mann í Hallgrímskirkju í gær.
Einar Oddur varð bráðkvaddur í
fjallgöngu nærri heimabyggð
sinni á Flateyri laugardaginn 14.
júlí. Útför hans verður gerð frá
Flateyrarkirkju næsta laugardag.
Einar Oddur var þingmaður
Sjálfstæðisflokksins í Norðvest-
urkjördæmi. Hann var 64 ára að
aldri og lætur eftir sig eiginkonu,
Sigrúnu Gerðu Gísladóttur og
þrjú uppkomin börn.
Þeir Geir H. Haarde forsætis-
ráðherra, Davíð Oddsson seðla-
bankastjóri, Þorsteinn Pálsson,
ritstjóri Fréttablaðsins, Vilhjálm-
ur Egilsson, framkvæmdastjóri
Samtaka atvinnulífsins, Víglund-
ur Þorsteinsson, stjórnarformað-
ur BM Vallár, Styrmir Gunnars-
son, ritstjóri Morgunblaðsins,
Gunnar J. Birgisson, bæjarstjóri í
Kópavogi, og Ásmundur Stefáns-
son ríkissáttasemjari báru kist-
una út úr kirkjunni.
Farið var út fyrir
ákvæði í starfsleyfi fiskimjöls-
verksmiðju HB Granda á
Akranesi fyrr á þessu ári. Í
umsögn til bæjaryfirvalda á
Akranesi segir Umhverfisstofnun
að fyrirtækið hafi skýrt mál sitt
að hluta en eigi enn eftir að skýra
verklag við rotvörn og þrif og
atriði varðandi mengunarvarnar-
búnað.
Umhverfisstofnun segir að
þegar starfsemin hefjist á ný verði
vel fylgst með því að verksmiðjan
haldi sig innan marka starfsleyfis-
ins. Kvartað var undan gríðar-
miklum óþef af vinnslunni.
Mun fylgjast vel
með á Akranesi
Árni, verðurðu ekki bara að
grafa þetta sjálfur?