Fréttablaðið - 26.07.2007, Blaðsíða 8
Hversu margir verða kærðir í
stóra Lúkasarmálinu?
Hvaða fyrrum leikmaður
Vals skoraði fyrir Fylki gegn
sínu gamla liði í fyrrakvöld?
Lag eftir hvaða norsku
hljómsveit er að finna á nýrri
smáskífu Garðars Thórs Cortes?
Utanríkisráðherrar Egyptalands og
Jórdaníu gengu á fund stjórnvalda í Jerúsalem í gær
til að kynna formlega fyrir þeim friðaráætlun
Arababandalagsins. Ehud Olmert, forsætisráðherra
Ísraels, segist hins vegar ekki ætla að bíða eftir
Arababandalaginu, heldur semja beint við Mahmoud
Abbas um stofnun Palestínuríkis.
Olmert staðfesti þetta á blaðamannafundi með
Shimon Peres Ísraelsforseta í gær. Olmert lagði þó
áherslu á að engar tímasetningar lægju fyrir.
Hugmyndin er sú að Palestínuríki verði stofnað á
Gaza-svæðinu og stærstum hluta Vesturbakkans, en
byrjað verði á að semja um stjórnfyrirkomulag hins
nýja ríkis. Að því búnu verði hægt að ræða endanleg
landamæri.
Friðartillögur Arababandalagsins felast í því að 22
aðildarríki bandalagsins viðurkenni Ísraelsríki gegn
því að Ísraelar afhendi allt land sem þeir hertóku í
stríðinu 1967.
Ísraelsstjórn hafnaði þessari friðaráætlun þegar
Arababandalagið kom fyrst fram með hana árið
2002, þegar uppreisn Palestínumanna var í hámarki,
en dró nokkuð úr andstöðu sinni eftir að Araba-
bandalagið ítrekaði boð sitt í mars síðastliðnum.
Ísraelar tóku þá vel í boðið og sögðu það geta orðið
grundvöll að frekari viðræðum.
Mark Regev, talsmaður utanríkisráðuneytisins í
Ísrael, sagði þessa heimsókn tvímælalaust vera
sögulega: „Þetta er í fyrsta skipti sem Arababanda-
lagið sendir fulltrúa sína til Ísraels.“
Ahmed Aboul Gheit, utanríkisráðherra Egypta-
lands, hvatti Ísraelsmenn til að hugleiða þetta
friðartilboð af fullri alvöru.
„Við erum að rétta út til ykkar friðarhönd frá
öllum löndum þessa heimshluta,“ sagði hinn
jórdanski starfsbróðir hans, Abdul Ilah Khatib.
Þeir hittu að máli bæði Shimon Peres forseta,
Ehud Olmert forsætisráðherra, Tzipi Livni utanrík-
isráðherra og Ehud Barak varnarmálaráðherra.
Olmert segist ætla
að semja við Abbas
Utanríkisráðherra Egyptalands og Jórdaníu kynntu ísraelskum ráðamönnum
formlega friðartillögur Arababandalagsins. Heimsókn þeirra þykir söguleg.
Vátryggingafélag Íslands Ármúla 3 108 Reykjavík Sími 560 5000 vis.is
F
í
t
o
n
/
S
Í
A
Þar sem tryggingar
snúast um fólk
Nýtt líf þarf öryggi
VÍS og Öryggismiðstöð Íslands bjóða barnshafandi konum viðbótar-
búnað við öryggisbelti bifreiðar, BeSafe meðgöngubelti, sem eykur
þægindi og öryggi móður og barns. BeSafe meðgöngubeltið skorðar
mjaðmastreng bílbeltisins undir kvið móðurinnar og minnkar þannig
líkur á að ófætt barn hennar verði fyrir hnjaski ef til harkalegs átaks
kemur. Meðgöngubeltið hefur þegar sannað gildi sitt og varnað því að
börn í móðurkviði verði fyrir skaða vegna stöðu bílbeltisins.
Kynntu þér málið nánar á vis.is eða hafðu
samband við þjónustuver VÍS í síma 560 5000.
Auglýsingasími
– Mest lesið
Nokkrir Akureyringar
hafa kvartað til lögreglu undanfar-
ið vegna byssuhvella sem óma um
bæinn á öllum tímum sólarhrings-
ins og raska svefnró sumra.
Hvellirnir koma frá gasbyssu sem
sett var upp við Akureyrarhöfn í
vor til þess að fæla í burtu fugla.
„Við tökum það auðvitað til
skoðunar ef þetta veldur óþægind-
um en okkur hafa ekki borist
margar kvartanir,“ segir Hörður
Blöndal hafnarstjóri. Hann segir
að byssan hafi skilað góðum
árangri en áður fór mikill tími í
þrif á bryggjunni auk þess sem
mávarnir tóku óblíðlega á móti far-
þegum skemmtiferðaskipanna.
Byssuhvellir
raska ró íbúa
Framkvæmdastjóri Múlavirkjunar,
Eggert Kjartansson, mótmælir þeim ásökunum að
Múlavirkjun sé ekki í samræmi við skipulag.
Sigurður Ásbjörnsson hjá Skipulagsstofnun segir að
skýringar framkvæmdastjórans sýni að ekki hafi
verið staðið við fyrri yfirlýsingar sem voru forsenda
þess að virkjunin var leyfð.
Í viðtali við Skessuhorn, sem er birt á vef blaðsins,
segir Eggert að stíflan sé ekki hærri en ráð var fyrir
gert. Kaupandi rafmagnsins hafi hins vegar óskað
eftir því að meiri orka yrði afhent yfir daginn en á
nóttunni. „Því er framleitt meira rafmagn á daginn
en gert var ráð fyrir, en minna á nóttunni,“ sagði
Eggert. Meðaltalsframleiðslan sé 1,9 megavött sem
er eins og ráð var fyrir gert.
Sigurður Ásbjörnsson segir að Múlavirkjun hafi átt
að vera rennslisvirkjun, sem þýðir að jafnt rennsli sé
í virkjuninni. Nú sé hins vegar vatni safnað þegar
ekki er verið að framleiða rafmagn. Með þessu verða
meiri sveiflur á vatnsyfirborðinu. „Frumforsendurn-
ar eru því gjörbreyttar,“ sagði Sigurður. „Ef menn
hefðu ætlað að hlíta leikreglum hefðu þeir átt að
tilgreina þessar breytingar til Skipulagsstofnunar.
Það var aldrei gert.“