Fréttablaðið - 26.07.2007, Blaðsíða 78

Fréttablaðið - 26.07.2007, Blaðsíða 78
1 6 7 8 10 13 119 12 15 16 18 21 20 17 14 19 2 3 4 5 „Ég er afskaplega kresin í morg- unmatsmálum. Ég borða mína eigin múslíblöndu sem ég bý til úr spelt-, hafra-, og byggflögum, alls konar fræjum, apríkósu- bitum og fleiru. Mér finnst svona tilbúið búðarmúslí allt of sætt. Ég var að flytja heim frá Edinborg og þar setti ég múslíið út í jógúrt en ætli ég færi mig ekki yfir í súrmjólkina fyrst ég er komin heim.“ Guðjón Már Guðmundsson, gjarn- an kenndur við Oz, hefur keypt hið sögufræga hús Næpuna af hjón- unum Baltasar Kormáki og Lilju Pálmadóttur sem auglýstu húsið til sölu í júnímánuði. Þau Baltasar og Lilja áttu jarðhæð og kjall- ara hússins sem stendur við Skálholtsstíg 7 en það var einmitt fyrrnefnd- ur Guðjón sem átti hæðirnar tvær fyrir ofan þau. Hann ætti að hafa nægt pláss eftir kaupin því viðbótin er litlir 226 fermetrar. „Það var mikill áhugi fyrir hús- inu og salan var því ósköp lítið mál,“ segir Baltasar sem var á hestbaki þegar Fréttablaðið náði af honum tali. Hann segir að húsið hafi nánast ekkert verið auglýst. „Það er yfirleitt mikill áhugi fyrir fallegum byggingum.“ Baltasar segist ekki muna hvert kaupverðið var en ásett verð var 79 milljón- ir króna. Ekki náðist í Guðjón í gær þar eð hann var staddur í Japan. Næpan var byggð árið 1903 af Magnúsi Stephensen en Baltasar og Lilja keyptu hæðina og kjallar- ann fyrir um það bil fimm árum síðan. Hann segist ekki sjá eftir húsinu þótt bygg- ingin sé vissulega glæsileg. „Húsið er alveg jafnfallegt þótt ég búi ekki í því sjálfur,“ segir hann. „Ég bý þarna í næsta húsi og get því virt það fyrir mér á hverj- um degi.“ Guðjón í Oz kaupir Næpuna af Baltasar „Þetta hefur gengið betur en ég bjóst við,“ segir Einar Magnús Einarsson sem nýverið hóf störf sem veðurfréttamaður í Ríkis- sjónvarpinu. Einar birtist fyrst á skjánum á miðvikudaginn í síð- ustu viku og hefur sýnt fína takta þrátt fyrir reynsluleysið. „Það var auðvitað eitthvert stress þegar maður byrjaði en það hefur eiginlega komið mér á óvart hversu vel þetta hefur gengið,“ segir Einar sem er tæplega 28 ára gamall, kvæntur og á barn. Með- fram starfinu í sjónvarpi starfar hann á reiknistofu í veðurfræði sem heldur meðal annars úti vefn- um Belgingur.is. Aðspurður segist Einar kunna nýja starfinu ágætlega, launin séu þokkaleg og hann sjái alveg fyrir sér að halda þessu áfram meðan hann nenni og fólk vilji hafa hann áfram. Hann á þó nokk- uð erfitt með að meta eigin frammistöðu í sjónvarpinu, sér í lagi þar sem hann á ekki sjón- varp. „Já, sjónvarpið mitt eyði- lagðist rétt áður en ég byrjaði í sjónvarpinu. Ég hef eiginlega bara séð sjálfan mig í litlum glugga á tölvuskjá,“ segir hann og hlær. Einar er um þessar mundir að leggja lokahönd á meistaraverk- efni sitt í jarðeðlisfræði, en veð- urfræðin er grein innan hennar. Í lokaverkefninu fjallar Einar um óvissu í veðurspám, hann skoðaði þrjú óveður og markmiðið er að greina af hverju langtíma tölvu- spá er stundum töluvert frá- brugðin skammtímaspám. Ekki eru margir sem leggja stund á nám í veðurfræði við Háskóla Íslands. Spurður hvað fái ungan mann út á þessa braut segir Einar: „Ja, það var nú eigin- lega Halla, Haraldi Ólafssyni, að kenna. Ég tók eitt námskeið hjá honum og hann kynnti mig fyrir töfrum veðurfræðinnar.“ Hefur varla séð sig í sjónvarpinu „Ég vil meina að Jónas sé að tala í gegnum mig,“ segir kvikmynda- gerðarmaðurinn Valdimar Leifs- son sem er að ljúka tökum á sjón- varpsmynd í fullri lengd um Jónas Hallgrímsson, einn af Fjölnis- mönnum okkar á nítjándu öld. Myndin er samansett af leiknum atriðum og viðtölum og er að sögn leikstjórans eins konar ljóð til Jónasar í kabarettstíl. Valdimar skrifaði handritið í samvinnu við Þorstein Marelsson rithöfund sem lést áður en tökur hófust. „Það kom í raun ekkert á óvart að hann skyldi deyja, hann var veikur og bjóst allt eins við því. Við göntuðumst með það að hann myndi þá tala við Jónas. Hann hlýtur að hafa gert það því það hafa margir undarlegir hlutir gerst í tökunum.“ Valdimar hefur ítrekað fengið köllun frá Jónasi í miðjum tökum um að breyta atrið- um og breytingarnar hafa alltaf verið til hins betra. Eins virðist Jónas hafa átt orð við veðurguðina því þeir hafa verið einstaklega hliðhollir tökufólkinu. Kannski þetta sé skýringin á góða veðrinu sem hefur verið hér í sumar. „Þetta hefur verið mikið ævin- týri. Við tókum meðal annars upp senu í Kaupmannahöfn þar sem Skafti Tímóteus vinur Jónasar drukknar eftir fyllerí þeirra félaga. Við ákváðum að taka bara áhættuna og taka þetta upp án þess að biðja borgaryfirvöld um leyfi. Það fylltist allt af túristum og svo þegar við vorum búin að taka upp stungum við af í leigu- bíl.“ Valdimar er viss um að þarna hafi Jónas vakað yfir þeim og komið í veg fyrir handtöku. Í myndinni er einnig fjallað um beinamálið svokallaða. Bein Jónas- ar voru sem kunnugt er flutt heim frá Kaupmannahöfn og grafin fyrir norðan en voru að lokum flutt í þjóðargrafreitinn á Þing- völlum. „Það eru uppi efasemda- raddir um að þetta hafi í raun verið bein Jónasar sem voru flutt heldur jafnvel bara einhver dansk- ur bakari.“ Valdimar hefur talað við Íslenska erfðagreiningu sem er tilbúin til að greina beinin fái hún þau til að skera úr um hvort þau séu íslensk eða dönsk. „Ég skora hér með á Þingvallanefnd- ina að gefa mér leyfi til að grafa beinin upp og fá endanlega úr þessu skorið,“ segir Valdimar að lokum. Auglýsingasími – Mest lesið
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.