Fréttablaðið - 26.07.2007, Blaðsíða 23
Íslenskur hugbúnaður, úr smiðju
kennara og meistaranema í
Háskólanum í Reykjavík, bar
sigur úr býtum í gervigreindar-
keppni sem haldin var í Vancou-
ver í Kanada á þriðjudag. Átta
skólar víðs vegar úr heiminum
kepptu í úrslitakeppninni.
Keppnin snerist um að láta for-
rit keppa hvert við annað í borð-
leikjum án þess að hafa lært sér-
staklega hvernig á að spila hvern
leik vel. Forritin fengu aðeins að
vita hverjar reglur leikjanna eru,
en þau þurftu sjálf að læra hvern-
ig á að spila hvern leik til að
vinna.
Höfundarnir, dr. Yngvi Björns-
son, dósent við Háskólann í
Reykjavík, og Hilmar Finnsson,
meistaranemi í tölvunarfræði við
sama skóla, sigruðu einnig í und-
ankeppninni sem fór fram í síð-
asta mánuði.
Stanford-háskólinn í Bandaríkj-
unum stofnaði til keppninnar, sem
heitir AAAI General Game Play-
ing Competition, fyrir þremur
árum. Tilgangurinn var að hvetja
til rannsókna á sviði gervigreind-
ar, en þar hafa leikir spilað veiga-
mikið hlutverk í gegnum tíðina.
Kaliforníuháskóli sigraði í fyrstu
keppninni, Tækniháskólinn í Dres-
den vann í fyrra og Háskólinn í
Reykjavík sigraði í ár.
Heimsmeistarar í gervigreind
Kappræður átta bandarískra
stjórnmálamanna, sem allir
sækjast eftir að verða forsetaefni
Demókrataflokksins, fengu
gríðarmikið áhorf í bandarísku
sjónvarpi á mánudaginn var.
Aldrei hafa jafn margir á aldrin-
um 18 til 34 ára horft á kappræður
vegna forsetakosninga.
Ástæðan fyrir þessum miklu
vinsældum er fyrirkomulag
kappræðanna, en hver sem er gat
sent frambjóðendunum spurningu
í gegnum YouTube. Svör stjórn-
málamannanna við spurningunum,
sem voru margar hverjar ansi
óhefðbundnar og beinskeyttar,
voru einnig birt á YouTube.
Náðu athygli
unga fólksins
Nýr, fallegri og miklu betri Opel.
Glænýr Astra Turbo
2.290.000 KR. OPEL ASTRA TURBO – 17” ÁLFELGUR, 6 GÍRA, 180 HESTAR
35.387* KR. Á MÁNUÐI. ENGIN ÚTBORGUN
Nýi Opel Astra Turbo er fallegasti bíllinn á götunni. Astra eru alltaf léttir
og snöggir en með Turbo eykst krafturinn til muna. Stórglæsileg hönnun
helst í hendur við kraftmikla vél og magnaða aksturseiginleika. Stöðugleiki
á veginum er frábær og útvortis hönnun minnkar vindmótstöðu.
Niðurstaðan er kraftmikill og lifandi akstur.
Hlaðinn aukabúnaði
www.opel.is
GJAFABRÉF
Verð frá kr.: 23.500
Aðrir söluaðilar:
Fyrir
heilsuna
Safapressa