Fréttablaðið - 26.07.2007, Blaðsíða 40
26. JÚLÍ 2007 FIMMTUDAGUR8 fréttablaðið ísmót
Berglind Ómarsdótt-ir, klæðskeri, er í for-
svari fyrir teymi 1 í keppni
tískuteyma á ÍSMÓT 2007
og starfar þar meðal ann-
ars með Helgu Rún Páls-
dóttur hattadömu. Þær ætla
að hafa brúðarþema í sinni
hönnun fyrir keppnina.
„Eftir allt brúðkaups-
brjálæðið 07.07.07 ákváðum
við að fara út í brúðarþema
í okkar teymi. Útfærslan
verður „runaway bride“ af
því það voru svo margir sem
hættu við að gifta sig þenn-
an dag þrátt fyrir að vera
löngu búnir að plana brúð-
kaupið,“ segir Berglind og
bætir því við að þær stöll-
ur ætli að spinna eitthvað
út frá því. „Kjóllinn verð-
ur dálítið brjálaður og villt-
ur en ég veit ekki alveg í
hvaða stíl hann verður að
öðru leyti. Þetta er náttúr-
lega bara grunnhugmynd
en svo eigum við eftir að út-
færa hana betur. Síðan ætlar
Helga Rún að gera eitthvað
brjálað höfuðskraut í stíl við
kjólinn.“
Berglind og Helga Rún
hafa rekið stofu saman
síðan í maí og eru í gjörólík-
um verkefnum alla jafna.
„Helga Rún er hattadama,
klæðskeri, búninga- og fata-
hönnuður og þess vegna aðal-
lega í þessu grófa fyrir leik-
hús og sjónvarp á meðan ég
er meira í fíngerðari hönnun
eins og brúðarkjólum,“ segir
Berglind, sem hefur tekið
þátt í tískuteymum þrisvar
áður. „Það er mjög gaman
að vinna í svona teymi.
Maður lærir heilmikið á því
og græðir helling á að vinna
með öðru fagfólki. Það er
líka gaman að sjá hvað það
skiptir miklu máli að þetta
passi allt saman, skartgrip-
ir, föt, hár og förðun.“ - sig
Brjálað
brúðar-
þema
Berglind Ómarsdóttir klæðskeri
ætlar að hanna brúðarkjól fyrir
tískuteymið sitt og Helga Rún
hattadama mun gera brjálað
höfuðskraut í stíl við kjólinn.
Edda Hrönn Atladóttir í Leður-iðjunni Atson er í forsvari
fyrir tískuteymi á ÍSMÓT og er í
óða önn við að fullmanna teymið.
„Við erum búin að ná í gullsmið,
kjólameistara og módel til að vinna
með okkur,“ segir Edda Hrönn og
bætir við: „Svo erum við að semja
við ljósmyndara og að vinna í því
að fá einhverja í förðunina og hár-
greiðsluna.“
Módelið segir Edda vera unga
stúlku sem er sjúkraliði og á leið
í nám við Snyrtiskóla Íslands í
haust. „Hún verður flott módel,“
segir Edda.
Edda hefur þegar ákveðið hvað
hún leggur til frá Leðuriðjunni
og eins er nokkurn veginn búið
að ákveða hvaða skart verður
notað frá Helgu í Gullkúnst. „Það
er ekki alveg búið að negla niður
hina þættina en ég ætla að nota
fríið mitt í að fullmóta hugmynd-
irnar í samvinnu við módelið. Það
verður unnið út frá leðrinu.“
Edda Hrönn segir að þrátt fyrir
að hún sé í þessu teymi sé hún til-
búin að leggja til fylgihluti fyrir
önnur teymi líka. „Ef einhver leit-
ar til mín sem vantar belti, tösku
eða eitthvað slíkt er ég alveg tilbú-
in að aðstoða fólk með það,“ segir
Edda. - sig
Allt út frá leðrinu
Edda Hrönn Atladóttir í Leðuriðjunni Atson mun leggja til leðurhluti í teyminu sínu
og segir aðra þætti unna út frá því. FRÉTTABLAÐIÐ/GVA
Íteymi 4 er María Gunnarsdóttir í forsvari en hún er klæðskeri
í MG-Saum og hefur verið með í
tískuteymum Samtaka iðnaðarins
frá upphafi.
„Það hefur verið mjög skemmti-
legt að taka þátt í þessum verkefn-
um og þarna er annar póll tekinn í
hæðina en maður er vanur. Í teym-
inu vinnur maður ekki bara út frá
eigin hugmyndum heldur þarf
heildarútlitið allt að tóna saman,“
segir María sem er enn í starthol-
unum með verkefni sitt. „Ég er
búin að ákveða að gera galakjól
en á eftir að fá módel, svo þetta
kemur til með að ráðast eitthvað
út frá því hverja ég fæ í það hlut-
verk,“ bætir hún við en segist þó
vera búin að ákveða að kjóllinn
verði ekkert risastór og mikill en
heldur ekki alveg sléttur og felld-
ur, þannig að spennandi verður að
sjá hvað kemur út úr hugmynda-
vinnunni í teymi Maríu.
- sig
Skemmtilegt verkefni
María Gunnarsdóttir klæðskeri er í forsvari fyrir teymi 4 í keppninni og segir teyma-
vinnu vera mjög skemmtilega þar sem allt heildarútlitið þurfi að tóna saman.
FRÉTTABLAÐIÐ/ANTON
Lilly Aletta Jóhannsdóttir út-skrifaðist sem klæðskurðar-
sveinn á síðasta ári og er í forsvari
fyrir teymi 5 í keppni tískuteyma.
„Ég ætla að fara út í einhvers
konar rómantík og gera kokteil-
eða galakjól,“ segir Lilly sem er
að hefja hönnunina á kjólnum. „Ég
á eftir að finna rétta efnið ennþá
þannig að hugmyndin á eflaust
eftir að þróast eitthvað eftir því
hvaða efni ég vel í kjólinn.“
Lilly er hrifin af keppnisfyrir-
komulaginu og ánægð með þetta
tækifæri til að koma sér á mark-
aðinn. „Það er rosalega skemmti-
legt að fá að vera með í þessu og
sýna hvað maður getur gert. Ég
er að starfa heima enn sem komið
er og er loks komin með allar þær
vélar sem ég þarf. Nú vantar mig
bara að auglýsa mig almennilega
og þá er þetta frábært tækifæri,“
segir Lilly. - sig
Frábært tækifæri
Lilly Aletta Jóhannsdóttir er ný í fagi klæðskera og finnst keppni tískuteyma vera
frábært tækifæri til að koma verkum sínum á framfæri. FRÉTTABLAÐIÐ/ANTON
Laufey Jónsdóttir klæðskeri er í forsvari fyrir teymi 6
og segir hún alla vinnu vera á
byrjunarstigi. „Ég er komin með
módel og hugmynd að því sem ég
ætla að sauma. Það verður ein-
hvers konar vesti úr íslenskri
ull þar sem ég hef sjálf verið að
leika mér svolítið með að hanna
úr íslensku ullinni. Síðan verður
pils við vestið en þar sem þetta er
allt á hönnunarstigi ennþá er lítið
hægt að segja meira um fatnað-
inn,“ segir Laufey.
Hún hefur ekki verið sjálf með
í teymi áður en unnið á stofu sem
var með tvö módel í teymi. „Mér
finnst þetta mjög spennandi og
skemmtilegt að taka þátt í þessu.
Þetta er fínt tækifæri til að kynna
okkur fyrir þjóðinni og hvað við
erum að gera,“ segir Laufey.
- sig
Íslensk ull í forgrunni
Laufey Jónsdóttir klæðskeri er í forsvari fyrir teymi 6 og ætlar að hanna vesti úr
íslenskri ull á módelið sitt. FRÉTTABLAÐIÐ/GVA
Tískuteymi ársins - fagmennska í tísku
Eitt af því sem mun draga að sér athyglina á ÍSMÓT 2007 er keppni Samtaka iðnaðarins um tískuteymi ársins. Teymin samanstanda af einum fag-
manni úr hverju fagfélagi innan ÍSMÓTS auk módels. Þegar hafa átta teymi skráð sig til þátttöku en hugsanlega munu fleiri teymi bætast í hópinn áður
en að keppninni kemur. Tískuteymi hafa áður starfað á vegum Samtaka iðnaðarins og vakið mikla lukku jafnt meðal fagfólks og almennings.