Fréttablaðið - 26.07.2007, Page 38

Fréttablaðið - 26.07.2007, Page 38
 26. JÚLÍ 2007 FIMMTUDAGUR6 fréttablaðið ísmót Á ÍSMÓT 2007 verður keppt um ljósmynd ársins, ljósmynd- ara ársins, ljósmyndastofu ársins og fleira sem snýr að ljósmyndurum. Unnur Ólöf Matthíasdóttir er fulltrúi í undirbúningsnefnd fyrir ljósmyndakeppnina og segir ljósmyndara gegna stóru hlut- verki í keppnum ÍSMÓTS. „Ljósmyndarar koma til með að verða í samstarfi við hinar grein- arnar á ÍSMÓTI, eins og hár- greiðslu, snyrtingu og klæðskurð- inn,“ segir Unnur og vísar þar til þess að í þeim greinum þurfi ljós- myndara til að senda inn myndir í keppnina. „Svo er auðvitað ljós- myndari í hverju tískuteymi,“ bætir hún við. „Í keppnina um ljósmynd árs- ins senda ljósmyndarar inn mynd, hvort sem það er andlitsmynd, landslag, auglýsingamynd eða hvað sem er þannig að sú keppni er algjörlega opin að því leyti. Síðan verður sýning á öllum inn- sendum myndum á ÍSMÓT,“ segir Unnur og bætir við: „Svo munu ljósmyndarar líka senda inn myndaseríur með tíu til tólf myndum úr sömu tökunni og besta serían verður valin. Það geta verið barnamyndir, fjölskyldumyndir, brúðkaupsmyndir eða hvað sem er. Eina skilyrðið fyrir þátttöku er að ljósmyndarinn sé í Ljósmynd- arafélagi Íslands.“ Unnur segir ljósmyndara einnig verða á keppninni sjálfir að mynda módelin sem verða í keppnum á sviði. „Það verður sett upp stúdíó á staðnum til að taka módelljósmyndir af hárgreiðslum og fleira,“ segir Unnur sem vonar að þátttakan verði góð. „Við erum að ýta við félagsmönnum okkar og ég hef fengið alveg ágætis undir- tektir hjá þeim sem ég hef talað við.“ sigridurh@frettabladid.is Ljósmyndarar gegna stóru hlutverki Unnur Ólöf Matthíasdóttir, ljósmyndari á Svart hvítt og lit, er í undirbúningsnefnd fyrir ljósmyndakeppnina á ÍSMÓT 2007. Hún býst við góðri þátttöku í keppni ljós- myndara á mótinu. FRÉTTABLAÐIÐ/ANTON Anna María Jónsdóttir heldur utan um keppni í snyrtingu á ÍSMÓT 2007 og er spennt að sjá hvernig keppnin þróast þar sem tíu ár eru síðan slík keppni var haldin síðast. „Það er loksins að verða að veru- leika að fá svona keppni,“ segir Anna María og bætir við: „Það verður keppt í andlitsbaði, hand- snyrtingu, litun og plokkun meðal meistara og sveina.“ Anna María segir takmarkað- an fjölda keppenda komast að þannig að ef of margir skrái sig til þátttöku verði að draga um hverjir fái að vera með. „Það eru margir alveg rosalega spennt- ir fyrir þessu enda eru sýningar sem þessi alltaf rosalega góð aug- lýsing til að koma sjálfum sér og stofunni á framfæri,“ segir Anna María. Spurð hvort það sé ekki flókið að dæma keppnina í andlitsmeð- ferð með yfirborðshreinsun, nuddi og maska, segir Anna María: „Það er ekki öfundsvert hlutskipti að vera dómari í þeirri keppni en þar er fyrst og fremst horft til vinnu- bragðanna eins og almennt er í prófum í snyrtifræði. Þá er fylgst með því hvernig keppendur bera sig að og hversu fagmannlega þeir vinna verkin. Aftur á móti er auðveldara að dæma í litun og plokkun enda er mjög augljóst hvað verið er að gera þar.“ Verðlaunamedalíur verða að launum fyrir efstu sætin í snyrti- keppnunum en að auki fær snyrti- fræðingur ársins vegleg verðlaun frá fyrirtækjum og heildverslun- um. „Auk þess fær sigurvegar- inn titilinn snyrtifræðingur árs- ins og hann mun án efa verða góð auglýsing fyrir hann,“ segir Anna María og bætir því við að auðvitað verði allir þátttakendur að vera í Félagi snyrtifræðinga. Sjálf ætlar Anna María ekki að keppa í snyrtikeppnunum enda viti hún alveg hvað hún hafi að geyma og að hún sé góður fagmaður. „Ég þarf enga aukaviðurkenningu en ætla samt að taka þátt í tískuteymi með Selmu Ragnarsdóttur kjóla- meistara. Annars hlakka ég bara rosalega til að fylgjast með sýn- ingunni og keppninni á ÍSMÓT.“ sigridurh@frettabladid.is Loksins keppt í snyrtingu Anna María Jónsdóttir er snyrtifræðingur í Laugum Spa og heldur utan um keppni í snyrtingu á ÍSMÓT. FRÉTTABLAÐIÐ/VILHELM - GLÆSILEG KEPPNI MEISTARA OG SVEINA- Hvetjum hársnyrtifólk um land allt að skrá sig í keppni ársins fyrir 1. ágúst næstkomandi á www.si.is/ismot Taktu þátt og þín stofa gæti hlotið þennan veglega titil ásamt tilnefningu í alþjóðlegu verðlaunahátíðina Global Salon Awards, sem fram fer í Hollywood á næsta ári! Helstu umboðsaðilar hársnyrtigeirans á Íslandi efna til litakeppna á Ísmóti 2007 - og sigurvegarar keppa svo til úrslita um titilinn Litun og litur ársins! Nordic Youth Skills 2007 Einnig á ÍSMÓTI 2007: Hver vinnur titilinn Hársnyrtir ársins 2007? Hvaða stofa verður Hársnyrtistofa ársins? Hvaða hárlitur verður kosinn Litur ársins? Ungliði ársins / Nordic Youth Skills Listsköpun í hári - LJÓSMYNDAKEPPNI MEISTARANNA - Hvetjum ljósmyndara í Ljósmyndarafélagi Íslands að skrá myndir í keppni ársins fyrir 1. ágúst næstkomandi á www.si.is/ismot Taktu þátt og þín stofa gæti hlotið þennan veglega titil! Sjá nánar keppnisreglur fyrir Stofur ársins í tilteknum þjónustuiðngreinum á www.si.is/ismot. LJÓSMYND ÁRSINS? Hvaða stofa verður Ljósmyndastofa ársins? Hvaða mynd verður

x

Fréttablaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.