Fréttablaðið - 26.07.2007, Page 46
26. JÚLÍ 2007 FIMMTUDAGUR14 fréttablaðið ísmót
Á ÍSMÓT 2007 verður keppt
um skartgrip ársins bæði fyrir
dömur og herra. Halla Bogadótt-
ir gullsmiður er í undirbúnings-
nefnd fyrir keppni gullsmiða og
segir fólk hafa alveg frjálsar
hendur með hönnun gripanna.
„Skartgripurinn má vera hvað
sem er, hvort sem það er hring-
ur, hálsmen eða annað og má þess
vegna vera úr óhefðbundnum
efnum,“ segir Halla og bætir því
við að ekkert þema sé um hönn-
unina eins og oftast áður. „Þetta
er í fyrsta sinn sem keppni er
haldin með þessu móti og í fyrsta
skipti sem Samtök iðnaðarins
standa fyrir keppni af þessu tagi.
Hingað til hefur Félag gullsmiða
haldið allar skartgripakeppnir,“
segir Halla. „Það verða vegleg
verðlaun fyrir skartgripi ársins
og ég vonast eftir góðri þátttöku
eins og alltaf þegar haldin hefur
verið samkeppni innan félags-
ins,“ bætir hún við. - sig
Skart fyrir bæði kynin
Halla Bogadóttir gullsmiður
vinnur að undirbúningi fyrir
keppni gullsmiða á ÍSMÓT
2007 og reiknar með góðri
þátttöku félagsmanna í
keppninni.
FRÉTTABLAÐIÐ/ANTON
Samtök iðnaðarins hafa sett saman nokkur tískuteymi undanfarin ár og jafnan
fengið landsþekkta einstaklinga til að vera módel teymanna. Jón Arnar Magnússon,
fyrrverandi tugþrautarkappi, tók sig einstaklega vel út í myndatökunni árið 2004 og
ljóst að teymið hans skilaði góðri vinnu við undirbúninginn.