Fréttablaðið - 26.07.2007, Side 74

Fréttablaðið - 26.07.2007, Side 74
 David Beckham-æðið er skollið á í Los Angeles og það sést ekki síst á sölu Beckham-treyja. Nýja félagið hans, LA Galaxy, er þegar búið að selja 200 þúsund treyjur númer 23 þrátt fyrir að enski knattspyrnumaðurinn sé aðeins búinn að spila 12 mínútur fyrir sitt nýja lið. „Við höfum aldrei upplifað annað eins. Í augnablikinu er LA Galaxy- treyja Davids Beckham mest selda treyja í heimi,“ sagði markaðstjór- inn Chris McGuire. 200 þúsund treyjur seldar HK leikur í kvöld sjötta útileik sinn í Landsbankadeild karla þegar liðið sækir Skaga- menn heim upp á Akranes. Nýliðarnir hafa aðeins náð í eitt af ellefu stigum sínum utan Kópavogs í deildinni í sumar og það sem meira er þá eiga HK- ingar enn eftir að skora á útivelli í sumar. Liðið hefur nú leikið í 450 mínútur án marks á útivelli og markatalan er ekki glæsileg, 0-11. Eina stig HK á útivelli kom í markalausu jafntefli við Víkinga í leik sem fram fór í Fossvogi í fyrstu umferð og spurning hvort að nálægðin við Fagralund hafi haft eitthvað að segja. HK á eftir að skora á útivelli Landsbankadeild karla FH og HB gerðu marka- laust jafntefli í síðari leik liðanna í fyrstu umferð Meistaradeildar Evrópu í Færeyjum í gær. FH vann leikinn 4-1 og er þar með komið áfram en leikurinn í gær þótti ekki mikið fyrir augað. „Þetta var enginn glansfótbolti, einhverjir myndu kalla þetta vinnusigur,“ sagði Guðlaugur Baldursson, sem gegndi stöðu aðstoðarþjálfara hjá FH í gær í fjarveru Heimis Guðjónssonar. „Þetta var frekar jafn leikur en við kannski ívið sterkari. Við fórum varlega inn í leikinn og sáum hvað þeir ætluðu að gera en þeir ógnuðu okkur ekki mikið. Þeir sóttu ekki mikið og færðu sig ekki framarlega á völlinn og því vorum við frekar rólegir í leikn- um. Við hefðum getað sett mark eða mörk á þá þegar leið á leik- inn,“ sagði Guðlaugur sem sýndist sem leikmenn HB væru nánast búnir að gefast upp fyrir leikinn enda þremur mörkum undir eftir fyrri leikinn. „Maður fékk það svolítið á til- finninguna að þeir vildu bara ekki fá á sig mörg mörk og því voru þeir mjög varfærir í sínum aðgerðum. FH spilaði ágætlega í leiknum, sýnu betur í síðari hálf- leik en þeir fyrri. Við ákváðum bara að vera ekki að gera neina skandala í þessu og það tókst,“ sagði Guðlaugur.“ Íslandsmeistararnir mæta FC Bate frá Hvíta-Rússlandi í næstu umferð. Hún byrjar strax í næstu viku og verður lokið 8. ágúst en endanlegar dagsetningar á leikina eru ekki komnar í ljós. Bate er meistaraliðið í sínu landi og er byggt nánast algjörlega upp á heimamönnum. Þeir hafa sterkan heimavöll en Alexander Hleb, sem nú leikur með Arsenal, gerði garðinn frægan hjá félaginu á uppvaxtarárum sínum. Það er ljóst að ærið verkefni bíður FH í næstu umferð. FH kláraði verkefnið örugglega Víkingar stigu stríðsdans fyrir framan stuðningsmenn í gærkvöldi og fögnuðu, því sem gæti á endanum orðið ómetanleg- ur sigur, sigri á Frömurum. Mun- urinn á liðunum er nú kominn í fjögur stig auk þess sem KR-ingar nálgast þá bláklæddu óðfluga á stigatöflunni. Leikur Fram í gær var endurtekning frá því oft áður í sumar og er ljóst að illa mun fara ef Framarar fara ekki að nýta færin. Magnús Gylfason, þjálfari Vík- ings, stillti upp í eins konar 3-4-3 leikkerfi sem gafst liðinu einstak- lega vel í fyrri hálfleik. Sinisa Kekic naut sín til fullnustu uppi á toppi með hina eldfljótu Gunnar Kristjánsson og Egil Atlason sitt- hvorum megin við sig á köntunum. Dagskipun Magnúsar virtist vera að nýta hraða þeirra, en sú taktík reyndist liðinu heilladrjúg í fyrri leik liðanna í sumar. Heimamenn voru betri á öllum sviðum fótboltans í fyrri hálfleik og komust yfir með marki Kekic úr vítaspyrnu, sem þótti reyndar umdeild í meira lagi. Sá gamli bætti við öðru marki á 43. mínútu þegar hann batt endahnútinn á frá- bæra sókn Víkings þar sem Fram- arar voru gjörsamlega sundurspil- aðir. Sóknarleikur Fram náði nýjum lægðum í fyrri hálfleik og náði liðið varla að ógna marki heima- manna í fyrri hálfleik. Mark Jónas- ar Grana Garðarssonar, úr fyrsta skoti Fram á markið, á síðustu and- artökum fyrri hálfleiks kom því eins og þruma úr heiðskíru lofti og galopnaði leikinn á ný. Hjálmar Þórarinsson hressti mikið upp á spilamennsku Fram í síðari hálfleik og virtist sem algjör hugarfarsbreyting hafi átt sér stað hjá leikmönnum liðsins. Gestirnir pressuðu stíft og freistuðu þess að jafna um leið og heimamenn drógu sig smám saman aftar á völlinn. Framarar fengu sannarlega færin til að bæta við mörkum en það var alveg sama hvað reynt var - inn vildi boltinn ekki. Kekic, í sérflokki á vellinum eins og svo oft áður í sumar, var hins vegar hinn kátasti. „Þetta var yndislegt kvöld en ég er svekktast- ur með að hafa ekki náð í þrenn- una, það munaði ekki miklu,“ sagði hann með bros á vör. „Ég er mjög sáttur viðð spilamennsku okkar í fyrri hálfleik og ef við spilum svo- leiðis það sem eftir er sumars þurfum við engar áhyggjur að hafa. Við bökkuðum um of í þeim seinni en sem betur fer hafðist þetta.“ Kóngurinn Sinisa Kekic gekk frá Frömurum KR náði í stig fjórða leik- inn í röð þegar liðið gerði 1-1 jafn- tefli við Breiðablik í 11. umferð Landsbankadeildar karla á Kópa- vogsvellinum í gær. Blikar voru mun meira með boltann og fengu fjölda færa en það munaði þó engu að fjölmennur og skynsamur varn- arleikur KR-inga hefði fært þeim fyrsta útisigur sumarsins. Blikar hafa ekki unnið KR-inga í tæp ell- efu ár og hafa sjaldan fengið betra tækifæri en í gær. „Mér fannst það gott að koma til baka og jafna leikinn gegn 11 manna varnarmúr en ég vildi fá meira út úr leiknum. Við erum að byggja upp lið og verðum ennþá öflugri í restina á þessu tímabili og svo á því næsta. Við stefnum á að komast í topp fjögur en það verður erfiðara þegar við gerum bara jafntefli og vinnum ekki leiki,“ sagði Ólafur H. Kristjáns- son, þjálfari Breiðabliks. „Við erum að reyna að spila fótbolta eins og ég vil sjá hann spilaðan. Liðið sem ég var með í fyrra var með mann sem gerði 11 mörk í 13 leikjum og ég vildi gjarnan vilja hafa einn svoleiðis í þessu liði. Þá værum við á allt öðrum stað í töfl- unni,“ sagði Ólafur. Blikar byrjuðu mjög vel og fengu meðal annars tvö dauðafæri í röð á 6. mínútu sem Stefán Logi Magnússon varði í bæði skiptin mjög vel. KR-ingar hugsuðu fyrst og fremst að loka svæðum, sóttu á fáum mönnum og reyndu síðan að nýta vel föstu leikatriðin sín. Þeir á leið hálfleikinn fóru þeir að ógna Blikavörninni sem sofnaði síðan á verðinum í hornspyrnu Kristinn Magnússon stóð einn og yfirgefinn fyrir framan mark- teiginn og skallaði boltann aftur fyrir sig og í markið eftir að horn Rúnars Kristinssonar hafði verið skallað aftur inn á teiginn. KR- ingar voru komnir yfir gegn gangi leiksins. Blikar voru mun meira með boltann og sköpuðu sér fjölda færa en KR voru samt ávallt beitt- ir þegar þeir loksins komust örsjaldan inn á vallarhelming þeirra grænklæddu. Hafi áhorfendum fundist KR- ingar vera aftarlega í fyrri hálf- leik sáu þeir þá detta ennþá oftar í þeim seinni. Gunnlaugur Jónsson og Ágúst Gylfason gekk vel að stýra varnarvinnu liðsins og smá saman var eins og Blikar misstu þolinmæðina. Það var ekki fyrr en að Ólafur Kristjánsson sendi inn varamanninn Steinþór Þorsteins- son að eitthvað fór að gerast aftur. Steinþór var ekki lengi að setja mark sitt á leikinn. Aðeins tveim- ur mínútum eftir að hann kom inn á komst hann upp að endamörkum og gaf fyrir þar sem Arnór Aðal- steinsson skallaði boltann fyrir fætur Nenad Zivanovic í mark- teignum og Blikar höfðu loksins náð að koma boltanum yfir mark- línuna. Blikar fengu góð tækifæri til þess að skora sigurmarkið en líkt og áður í leiknum varði Stefán Logi Magnússon ítrekað frá þeim úr úrvalsfærum. Teitur Þórðarson, þjálfari KR vildi fá fleiri stig. „Það var klaufa- legt að fá á okkur þetta mark í lokin því við erum að verjast vel í gegnum allan leikinn. Við lögðum upp með að verjast vel og fá okkar færi úr skyndisóknum. Við höld- um áfram að taka stig úr okkar leikjum en því miður bara eitt því við vildum gjarnan fá öll þrjú úr þessum leik. Þegar þú tapar ekki leikjum byggir þú upp sjálfstraust í liðinu og þetta mjakast svona hægt og rólega,“ sagði Teitur. KR-ingar voru nálægt því að vinna fyrsta útisigurinn í Kópavogi í gær. Blikar náðu að jafna í lokin en þeir áttu öll stigin skilin. KR-ingar sitja enn sem fastast á botni Landsbankadeildar karla.

x

Fréttablaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.