Fréttablaðið - 07.09.2007, Síða 8

Fréttablaðið - 07.09.2007, Síða 8
HANDVERKFÆRI Við bjóðum mikið úrval af gæða handverkfærum. Einnig eigum við úrval af rafmagns- og loftverkfærum. WWW.N1.ISN1 VERSLUN BÍLDSHÖFÐA 9 · SÍMI 440 1200 F í t o n / S Í A Í bili er þetta bara spurn- ing um að tala saman og reyna að finna flöt á því að þetta valdi ekki hættu. Átta rússneskar sprengjuþotur flugu upp að lofthelgi Noregs og Bretlands í gær. Norðmenn fylgdust grannt með flugi þeirra og sendu tvær herþotur á móti þeim. Þegar rússnesku þoturnar nálguðust síðan bresku lofthelgina tóku Bretar við og sendu tvær herþotur til að fylgjast með þessum óboðnu gestum. Þetta er í annað sinn á innan við mánuði sem Rússar senda herþotur þessa leið. Síðast flugu þrjár rússneskar herþotur um þessar slóðir hinn 17. ágúst síðast- liðinn. Rússneskar herþotur höfðu þá varla sést á þessum slóðum síðan á tímum kalda stríðsins. „Ég mun biðja sendiherra Rúss- lands í Reykjavík að útskýra þetta fyrir mér,“ segir Grétar Már Sigurðsson, ráðuneytisstjóri í utanríkisráðuneytinu. „Það sem við höfum mestar áhyggjur af er að þær tilkynna sig ekki, og þá er það flugöryggi fyrst og fremst sem þarf að hafa í huga.“ Sendiherra Rússlands var reyndar krafinn skýringa eftir að rússnesku þoturnar þrjár sáust í ágúst, en enn hafa engin svör borist ráðuneytinu. Önnur við- brögð af hálfu íslenskra stjórn- valda eru þó ekki í bígerð. „Í bili er þetta bara spurning um að tala saman og reyna að finna flöt á því að þetta valdi ekki hættu,“ segir Grétar Már. Að sögn Grétars Más komu þessar þotur hvergi nálægt íslenskri lofthelgi. Það næsta sem þær fóru var 120 sjómílur suðaustur af Höfn í Hornafirði. „Þetta voru átta vélar, svo- kallaðar Tupolev 95 vélar, stundum kallaðar Björninn,“ segir Grétar Már. „Þetta eru langdrægar sprengjuflugvélar og þær flugu suðsuðvestur af Íslandi og þaðan til Færeyja. Þetta er sama flugleið og tvær af þessum þremur vélum sem komu í sumar fóru. Svo fóru þær sömu leið til baka.“ Grétar Már segir óvenjulegt að svo margar vélar hafi verið á ferð. Einnig komi nokkuð á óvart hve fluggeta þeirra sé mikil. „Þetta eru ekki nýjar vélar en þær virðast vera í ágætu flug- hæfu ástandi. Sumar þeirra eru sennilega framleiddar upp úr 1950. Ætli þeir séu ekki að sýna að þótt þessar vélar séu gamlar hafi þeim verið ágætlega viðhaldið.“ Hann segir þó eitt jákvætt við þetta atvik, en það er að eftirlit grannríkja okkar og samskipti við þau hafi reynst vel. „Við höfum notið góðs af þessu nágrannasamstarfi. Þetta er vaktað bæði af Norðmönnum og Bretum þannig að við fylgjumst vel með. Það er það mikilvæga í þessu.“ Rússar sýna fluggetu sína Átta rússneskar þotur flugu suðsuðvestur af Íslandi í gær. Íslensk stjórnvöld ætlast til að Rússar tilkynni slíkt fyrir fram svo tryggja megi almennt flugöryggi. Ban Ki-moon, framkvæmdastjóri Sameinuðu þjóðanna, og Omar al-Bashir Súdansforseti skýrðu frá því í gær að nýjar friðarviðræður hæfust 27. október, þar sem reynt yrði að finna lausn á átökunum í Darfúr- héraði. Ban Ki-moon er í heimsókn í Súdan og sagðist finna fyrir „áfalli og auðmýkt“ eftir að hann hafði heimsótt flóttamannabúðir í gær, þar sem þúsundir flóttamanna frá Darfúr fögnuðu ákaft þegar hann sagðist ætla að efla friðarviðleitni á vegum Sameinuðu þjóðanna. Átökin í Darfúr síðastliðin fjögur ár hafa kostað meira en 200 þúsund manns lífið og 2,5 milljónir manna eru á flótta.

x

Fréttablaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.