Fréttablaðið - 07.09.2007, Qupperneq 40
7. SEPTEMBER 2007 FÖSTUDAGUR4 fréttablaðið heilsa & hreyfing
Húðsnyrtivörurnar frá Dr.
Hauschka eru framleiddar
úr lífrænum náttúruefnum.
Fyrirtækið, sem hefur
starfað í 40 ár, er ekki rekið í
gróðaskyni. Stór hluti ágóðans
rennur til góðgerðamála og
kvikmyndastjörnur um allan
heim elska Hauschka, enda
margþættar ástæður til þess.
Meðvituðum neytendum fjölgar
á degi hverjum. Heyrst hefur að
hlutabréfakaup í fyrirtækjum sem
sérhæfa sig í lífrænni framleiðslu
séu fjárfesting sem hægt sé að
stóla á, enda er mótsvar við öllu:
„Slow-food“ er svörun við „fast-
food“ og lífrænar snyrtivörur
svar við þeim sem, líkt og mörg
matvæli, innihalda rotvarnar- og
aukefni sem hugsanlega þjóna
fremur hagsmunum seljanda en
kaupanda.
Þýska snyrtivörufyrirtækið Dr.
Hauschka var stofnað árið 1967
af efnafræðingnum Dr. Rudolf
Hauschka og snyrtifræðingnum
Elisabeth Sigmund. Þjóðverjar
hafa löngum verið framarlega í
öllu sem viðkemur náttúruvernd,
heildrænum meðferðum og
vistvænni framleiðslu og því
er óhætt að álykta að vörurnar
frá Dr. Hauschka standi undir
kröfum um þarlenda gæðastuðla.
Hér á landi hefur um nokkurt
skeið verið rekin snyrtistofa undir
nafni Dr. Hauscka, en slíkar stofur
eru reknar með sama sniði víða
um heim og byggja á heildrænni
meðferð fyrir líkama og sál. Það
er Inga Louise Stefánsdóttir
snyrtifræðingur sem er eigandi
stofunnar á Skólavörðustíg 16,
en um áratugaskeið hefur hún
helgað starfskrafta sína heilsu-
samlegu líferni og innri sem ytri
fegurð.
„Hugsunin á bak við meðferð
að hætti Dr. Hauschka byggir á
því að manneskjan sé öll ein heild
og þess vegna er þetta meira
en bara andlitsbað,“ segir hún.
Það er hverju orði sannara því
120 mínútna meðferð hjá Ingu
samanstendur meðal annars af
nuddi, slökun, heitum og köldum
bökstrum, örvun sogæðakerfis
ásamt andlitshreinsun og meðferð
með vörum frá Dr. Hauschka.
Eftir slíka meðferð er sú sem
hana hefur þegið endurnærð
bæði á sál og líkama og húðin
öðlast áberandi fallegan ljóma.
Slíkri meðferð er því hiklaust
hægt að mæla með fyrir konur
sem af einhverjum ástæðum eru
undir álagi eða þurfa á andlegri
og líkamlegri næringu að halda.
„Heimspeki Dr. Hauschka
gengur meðal annars út á að
heilbrigði skapi fegurð og því
skipti aldur engu máli í þessu
samhengi. Heilbrigð húð er falleg
húð, sama hvað manneskjan
er gömul. Á sama hátt stuðlar
andleg vellíðan að fallegu útliti
og að henni er einnig unnið í
meðferðinni,“ segir hún.
Fastir viðskiptavinir Ingu
eru margir og hún segir hópinn
fjölbreyttan. „Margar þeirra
sem koma til mín eru leikkonur,
lista- og fjölmiðlakonur sem búa
hér í grenndinni en svo koma líka
margir unglingar sem leita lausna
við húðvandamálum og ná oftast
mjög góðum árangri,“ segir Inga.
Um leið sé virkni varanna frá Dr.
Hauschka byggð á sama grunni
og náttúrulækningar. „Það á að
vinna með líkamanum en ekki
á móti honum. Til dæmis er
notuð olía á feita húð til að gefa
henni skilaboð um að hætta að
framleiða meiri húðfitu og mikil
áhersla er lögð á að nota ekki
næturkrem því það er þá sem
húðin vinnur að því að endurnýja
sjálfa sig og hvílast.“
Ásamt góðri viðskipta-
samvisku býður Dr. Hauschka
upp á vörur fyrir andlit, hár
og allan líkamann. Snyrti- og
nuddstofan er opin milli 9
og 18 en lokuð eftir hádegi á
miðvikudögum því þá veitir Inga
sérstaka ráðgjöf um vörurnar í
versluninni Yggdrasil sem er í
næsta húsi við stofuna.
margret@frettabladid.is
Hreinræktuð fegurð
GÆÐI OG GÓÐ HRÁEFNI ERU Í HÁVEGUM HÖFÐ á
veitingastaðnum Gló í Listhúsinu við Engjateig. Þar er leitast við að
bjóða upp á lífrænan mat, jafnt kjöt, fisk og grænmetisrétti. Mundu
bara að mæta tímanlega í hádeginu til að fá borð því vinsældir
staðarins fara vaxandi með degi hverjum.
Inga Louise Stefánsdóttir snyrtifræðingur fer mjúkum höndum um viðskiptavini sem
mæta til hennar á Snyrti- og nuddstofu Dr. Hauschka en þar er aðeins unnið með
snyrtivörur unnar úr lífrænum hráefnum og fyrirtækið ekki rekið í gróðaskyni.
FRÉTTABLAÐIÐ/ANTON
Samkvæmisdansar
Barnadansar
Hjónahópar
Funk-Hip Hop
Break
Freestyle
Salsa
Keppnishópar
Kennsla hefst laugardaginn 8. september
Haukahrauni 1, Bjarkarhúsinu, 220 Hafnarfirði
Innritun hefst miðvikudaginn 22. ágúst
í síma 5654027 og 8616522 frá kl. 13-20
og á heimasíðu www.dih.is
Opið hús sunnudaginn 9. september kl. 13-17,
danssýningar, heitt á könnunni.
Afslátt
ur fyrir
saumak
lúbba
fyrirtæ
ki og lo
kaða h
ópa.
Dansíþróttafélag
Hafnarfjarðar