Fréttablaðið - 07.09.2007, Qupperneq 62
Ath. 23.00
Hinn langlífi þáttur Jónasar
Jónassonar, Kvöldgestir á Rás 1
Ríkisútvarpsins, skartar í kvöld þeim
Jóni Baldvini Hannibalssyni og
gestgjafanum, sem hefur á langri
útvarpsævi skapað sér samtalsform
sem margir þykjast geta líkt eftir en
enginn getur náð til fulls. Spennandi
menn mætast.
Þýski markaðurinn hefur reynst
norrænum krimmahöfundum gull-
kista. Þar hafa þeir Mankell og Arn-
aldur náð fótfestu og nú skeiðar
hinn svokallaði krónprins íslensku
glæpasögunnar þar í lund. Bókaút-
gáfan List í dag gaf út glæpasöguna
Krosstré. Þar í landi fer stórt upp-
lag til bókabúða til kynningar og var
svo vel tekið að 20 þúsund eintök
seldust upp. Því er nú prentað meira.
Dómar eru teknir að birtast og eru
jákvæðir. Sömu sögu var raunar að
segja í Noregi þar sem sagan kom út
í sumar. Krosstré er væntanleg í
útgáfu í fleiri löndum Evrópu á
næstu missserum. Lesendur hér
heima bíða spenntir eftir næsta leik
„krónprinsins“ en krónprinsar eru
alltaf í mikilli hættu að einhver
annar geri kröfur til krúnunnar,
jafnvel drepi mann fyrir sætið.
Jón Hallur á þýsku
Í kvöld opnar sýning í
Listasafni Reykjavíkur
sem spannar allan feril
Eggerts Péturssonar list-
málara frá því hann tók að
birta verk sín opinberlega
og til þessa dags. Sýning-
unni fylgir vandað rit sem
rekur ferilinn með fjölda
mynda af hinum nosturs-
legu málverkum þessa
vinsæla listamanns.
Það er Ólöf K. Sigurðardóttir
sem er sýningarstjóri og hefur
hún unnið náið með listamannin-
um að undirbúningi sýningar-
innar. Mikill fjöldi verka úr eigu
einstaklinga og stofnana mun
prýða sýninguna en málverk
Eggerts eru eftirsótt enda fágæt.
Hann hefur sagt að hann komist
ekki yfir að mála nema örfá verk
á ári, enda sér hver maður sem
skoðar handbragð Eggerts á
striganum að það krefst langrar
yfirlegu og mikillar nákvæmnis-
vinnu.
Mörg verkanna á sýningunni
hafa ekki komið áður fyrir augu
almennings. Mikil eftirsókn er
eftir málverkum Eggerts og er
biðlisti af þeim sem vilja komast
yfir verk hans.
Eggert tók að mála smágerðar
myndir af íslenskum blómum
fyrir yfirlitsrit eftir Ágúst H.
Bjarnason um íslenska flóru. Í
þann tíma snemma á níunda ára-
tugnum hafði Eggert verið í hópi
þeirra sem heilluðust af minimal-
ismanum og hópuðust í kringum
Suðurgötu 7, þann tilraunasal
sem átti sér nokkurra ára tilvist
sem slíkur.
Náin kynni Eggerts af smá-
gerðu litskini íslenskra blóma
leiddu hann til nánast smásjár-
skoðunar á blómastæðum og
blómabeðum í harðgerðri
íslenskri náttúru. Verkin skáru
sig út úr öllu sem aðrir voru að
fást við í þann tíma þegar
expressjóníska málverki stökk
fram. Hamsleysið og pönkið sem
í því bjó var í algerri andstöðu
við hina kyrru en marglitu heima
íslenskra barða og móa sem Egg-
ert kannaði af ákefð og natni.
Eggert hélt sína fyrstu einka-
sýningu árið 1980 og hefur síðan
haldið fjölda einka- og samsýn-
inga hérlendis og erlendis.
Á sýningunni eru nokkur verk
frá upphafsárum listamannsins
en flest spanna þau síðustu tvo
áratugi þar sem íslenskar jurtir
og blóm hafa verið meginefni-
viðurinn. Eggert hlaut önnur
verðlaun Carnegie Art Award
sjóðsins árið 2006.
Nú getur almenningur áttað
sig á hinu stóra samhengi í list
hans og hvernig strokur og litir
hafa þróast í rannsókn hans á
huldum heimum í ríki litarins á
landi.
Sýningin mun standa til 4.
nóvember.
Einn fremsti samtímaljósmyndari Jap-
ans, Takashi Homma, opnar ljósmynda-
sýninguna TOKYO/REYKJAVÍK á
laugardaginn í 101 Gallery, Hverfis-
götu 18a, bak við Alþjóðahúsið.
Takashi Homma fæddist í Tókíó árið
1962. Hann lærði ljósmyndun í Tókíó á
árunum 1981-84 og bjó í London á
árunum 1990-92 þar sem hann vann
sem tískuljósmyndari fyrir hið fræga
blað I-D og önnur tískublöð af svipuð-
um toga. Myndir hans hafa birst á sýn-
ingum víða og í tímaritum um tísku og
arkitektúr en Homma hefur einnig
verið stórtækur í bókaútgáfu.
Hann hefur einbeitt sér að því að
mynda borgarlandslag og þá helst
úthverfi en hann er alinn upp í einu
slíku í úthverfi Tókíó.
Hann hefur myndað úthverfi víðs
vegar um heiminn en hann segist hafa
áhuga á þeim þar sem þau líti eins út
hvarvetna.
Fyrir mörgum vekja úthverfamynd-
irnar stemningu einangrunar og ónátt-
úru og vangaveltur um andleysi í arki-
tektúr. Takashi Homma sýnir hér
afrakstur heimsóknar sinnar til
Íslands ásamt myndum úr bókunum
Tokyo suburbia og Tokyo and my
daughter. Sýningarstjóri er Ragn-
heiður Pálsdóttir.
Japanskt borgarlandslag
Íslenskt stjórnborð
Íslenskar leiðbeiningar
Stórt hurðarop
20 ára ending
Eirvík kynnir
sportlínuna frá Miele
AFSLÁTTUR
30%
Miele gæði
ÞVOTTAVÉL frá kr. 99.900
Auglýsingasími
– Mest lesið